Fréttablaðið - 23.10.2014, Síða 36

Fréttablaðið - 23.10.2014, Síða 36
KYNNING − AUGLÝSINGLagnir, kynding og snjóbræðsla FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 20144 Langflestir landsmenn njóta hita- veitu, eða um og yfir 90%, aðrir nota rafmagnshitun eða olíukyndingu. Hér eru nokkur húsráð sem gætu lækkað orkureikninginn. Einangrun Góð einangrun húsnæðis er forsenda þess að hægt sé að halda orkunotkun til hitunar í lágmarki. Nýir þéttilist- ar í dyrum og gluggum er ódýr lausn og dregur verulega úr hitatapi húsa. Talsverður kostnaður fylgir því að bæta einangrun húsa en slíkar að- gerðir borga sig í sumum tilfellum, til dæmis samhliða öðru viðhaldi. Ef endurnýja þarf gler þá borgar sig að setja upp filmugler sem hefur mun betri einangrunareiginleika en hefðbundið gler. Í eldri húsum getur oft verið hagkvæmt að bæta einangr- un í þaki. Lækkun innihita Algengur hiti í húsum hér á landi er 23-25 gráður en rannsóknir sýna að 20 gráðu innihiti er kjörhiti með til- liti til loftgæða og líðanar íbúa. Það er gott að hafa það bak við eyrað að hitakostnaður hækkar um sjö pró- sent ef hiti er hækkaður um eina gráðu. Í svefnherbergjum má jafn- vel lækka hitann allt niður í 18 gráð- ur og í geymslum og öðrum herbergj- um sem ekki eru notuð að staðaldri mætti hann jafnvel vera 15 gráður. Hægt er að kaupa einfaldar hitastýr- ingar sem stilla má að vild og lækka hita í íbúðinni á meðan íbúar sofa eða eru að heiman. Þannig er hægt að ná niður hitastigi að meðaltali þó alltaf sé 20 gráðu hiti á meðan ein- hver er á ferli. Loftun Nauðsynlegt er að endurnýja inni- loftið reglulega. Það er samt mikil sóun á hita og fjármunum að hafa glugga opna langtímum saman. Slík síloftun er afar ómarkviss leið til loft- skipta og veldur miklu hitatapi. Skil- virkasta leiðin til loftskipta er að lofta vel út í 10-15 mínútur en hafa alla glugga lokaða þess á milli. Opnir gluggar skila litlum loftskiptum en valda miklu hitatapi með tilheyrandi kostnaði. Að henda peningum út um gluggann er orðatiltæki sem á vel við. Röðun húsmuna Röðun innbús hefur líka áhrif á orku- notkun. Bókahillur eða veggteppi á útvegg minnka til dæmis orku- tap en þau draga úr loftstreymi við kaldan útvegginn. Eins geta rúllu- gardínur minnkað útgeislun gegn- um glugga að næturlagi. Þær draga úr loftstreymi og kælingu við glerið. Það er hins vegar mikilvægt að draga þær frá á daginn og hleypa ókeypis hitageislum sólar inn. Húsgögnum ætti ekki að stilla fast upp að ofnum. Það truflar eðlilega hringrás loftsins um herbergið og hindrar geislun frá ofninum. Ofnar, sem lokast inni á bak við gluggatjöld nýtast jafnframt illa en gluggatjöld- in draga úr varmagjöf þeirra. Þar sem ofnar eru undir gluggum ættu gluggatjöld ekki að ná neðar en að gluggakistu. Skjól Þegar híbýli eru kynt myndast ör- þunnur hitahjúpur í kringum húsið. Ef þessi hitahjúpur blæs í burtu þá þarf stöðugt að mynda hann á ný með tilheyrandi orku. Það sparar því orku að mynda skjól þannig að loftið í kringum veggi hússins hald- ist kyrrt. Þetta skjól má mynda með trjám. Best er að hafa lauftré við suð- urhlið en barrtré við norðurhlið. Lauftrén missa lauf á haustin þann- ig að sólin getur gefið ókeypis varma í gegnum berar greinarnar á björt- um vetrardögum. Á norðurhlið er hins vegar betra að hafa sígræn tré sem mynda jafnt og stöðugt skjól allan ársins hring. Birt með leyfi Orkuseturs. Sjá nánar áorkusetur.is. Svona má draga úr orkunotkun Íslensk heimili nota, samkvæmt Orkuveitu Reykjavíkur, árlega að meðaltali 4-5 tonn af heitu vatni á hvern fermetra húsnæðis. Um 90% af notkuninni eru vegna húshitunar. Hér eru nokkur ráð til að minnka hana og lækka orkureikninginn. Síloftun er ómarkviss leið til loftskipta og veldur miklu hitatapi. Frekar ætti að lofta út 10-15 mínútur í senn. Ofnar, sem lokast inni á bak við gluggatjöld nýtast jafnframt illa en gluggatjöldin draga úr varmagjöf þeirra. NORDICPHOTOS/GETTY Húsgögnum ætti ekki að stilla fast upp að ofnum. Það truflar eðlilega hringrás loftsins um herbergið og hindrar geislun frá ofninum. DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · Hljóðlát Stórt op > auðvelt að hlaða Sparneytin amerísk tæki. <Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerísk gæðavara Amerísk gæðavara Það finnst ekki öllum skemmtilegt að moka snjó þótt það sé ágætis hreyfing. Sérstaklega er leiðinlegt að moka tröppur fyrir utan hversu hættulegar þær geta verið. Hitamottur eru frábær hugmynd en það er kanadískt fyrirtæki, CanadaMats.com, sem framleiðir slíkar mottur. Þær eru lagðar á stéttina, tröppur, bílainnkeyrslu, fyrir framan heita pottinn eða á hverjum öðrum stað þar sem fólk gengur um og vill losna við snjóinn. Motturnar eru settar í samband við rafmagn en í þeim er sérstakur hitaleiðari sem bræðir snjó og ís. Hægt er að taka motturnar inn þegar hlýnar í veðri en þær mega vera úti allan veturinn. Við vitum ekki til þess að motturnar hafi verið fluttar inn hingað til lands. Þeir sem hafa áhuga geta kynnt sér þær betur á heimasíðu fyrirtækisins. Snjóhitamottan nefnist Hotflake og er Canada Mats með einkaleyfi á hönnuninni. Engin hætta er á skammhlaupi eða raflosti þótt vatn liggi á mottunni. Hitamotta bræðir snjóinn Frábær lausn í snjónum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.