Fréttablaðið - 23.10.2014, Síða 56
23. október 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 36
Leikur nasista
Patrick Stewart,
sem margir
þekkja úr
X-Men-mynd-
unum og Star
Trek-þáttunum,
mun leika
nýnasista í
spennutryllin-
um Green Room. Myndin fjallar
um ungt fólk í pönkhljómsveit
sem festist inni á tónleikastað
og verður vitni að hræðilegum
glæp. Þau þurfa síðan að berjast
fyrir lífi sínu gegn hópi nýnas-
ista sem vilja útrýma öllum
vitnum.
BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS
76 ára Christopher Lloyd
leikari
Þekktastur fyrir: Back to the Future
Kit Carson látinn
Handritshöf-
undurinn og
leikarinn L.M.
Kit Carson lést
á mánudaginn
73 að aldri
eftir langvinn
veikindi. Hann
vann handritið
að Paris, Texas eftir Wim Wenders
og skrifaði meðal annars handritin
að Texas Chainsaw Massacre 2 og
endurgerðinni af Breathless frá
1983. Hann hjálpaði Wes Anderson
og leikaranum Owen Wilson að
fá græna ljósið fyrir fyrstu mynd
þeirra í fullri lengd, Bottle Rocket.
Fury Stríðsmynd
Aðalhlutverk: Brad Pitt, Shia
LaBeouf, Logan Lerman
FRUMSÝNINGAR
8,3/10 7,6/10
Hemma Drama
Aðalhlutverk: Simon J. Berger, Lia
Boysen, Moa Gammel
Rússneskir kvikmyndadagar hefj-
ast í dag í Bíói Paradís og standa
til 27. október. Rjómi rússneskrar
kvikmyndagerðar nútímans verð-
ur sýndur en allar myndirnar eru
verðlaunamyndir. Frítt er inn á
opnunarmyndina í kvöld kl. 18.00
en um er að ræða myndina The
Postman’s White Nights.
Myndin fjallar um guðsvolað
þorp í Rússlandi og er lýst sem
„síðkommúnískri nostalgíu með
vodkabragði“. Handritið er byggt
á sönnum sögum og er notast við
alvöru þorpsbúa sem leika í mynd-
inni. Leitin að aðalleikaranum tók
meira en ár. Myndin hlaut Silfur-
ljónið fyrir bestu leikstjórn auk
Green Drop-verðlaunanna á kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum í ár.
Stórmyndin Leviathan verður
einnig sýnd en hún var útnefnd
framlag Rússlands til Óskars-
verðlaunanna í ár. Sagan er byggð
á Jobsbók Biblíunnar en myndin
tekst á við spillingu og kúgun í
Rússlandi. Athygli vekur að mynd-
in var fjármögnuð að hluta til af
menningarmálaráðuneyti Rúss-
lands en framleiðandi myndarinn-
ar hefur sagt að ólíklegt sé að leik-
stjóri myndarinnar muni fá slíkan
styrk aftur.
Einnig verður hægt að sjá mynd-
irnar Angels of Revolution, sem
fjallar um nokkra framúrstefnu-
listamenn í Rússlandi eftir að
kommúnisminn tók völdin, Two
Women sem er byggð á frægu
leikriti Ivans Turgenjev og White
Reindeer Moss sem byggð er á
tveimur bókum eftir frægasta
rithöfund af þjóðflokki Neneta í
Norður-Rússlandi, Önnu Nerkagi.
- þij
Sýna síðkommúníska
nostalgíu í kvöld
Rússneskir kvikmyndadagar hefj ast í Bíói Paradís í kvöld.
THE POST-
MAN’S
WHITE
NIGHTS
Alvöru
þorpsbúar
leika í mynd-
inni.
➜ Rjómi rússneskrar kvik-
myndagerðar nútímans verður
sýndur en allar myndirnar eru
verðlaunamyndir.
Leikarinn Matthew McConaughey
hlaut American Cinematheque-
verðlaunin á þriðjudaginn en þau
eru veitt framúrskarandi lista-
mönnum í skemmtanabransanum
sem „einsetja sér að leggja fram
eitthvað sem skiptir máli til kvik-
myndalistarinnar“. McConaughey
hefur starfað sem leikari í Holly-
wood í 22 ár.
Í verðlaunaafhendingarveisl-
unni á Hilton-hótelinu í Beverly
Hills deildi leikarinn reynslu sinni
með gestum og leiðrétti ýmsan
misskilning. „Mér var ekki boðið
hlutverkið í Titanic,“ sagði hann.
„Fyrsta reglan: handrit með tíu
milljónir dala áfastar er fyndn-
ara en sama handritið með ein-
ungis eina milljón áfasta. Í öðru
lagi verður maður að gera ráð
fyrir að uppbygging handritsins
hjálpi manni við leikinn,“ bætti
McConaughey við og sagði sögu
af sjálfum sér við upphaf ferils
síns, þegar hann var mjög upptek-
inn af því að leika „eðlilega“ og las
ekki handritið fyrr en hann mætti
á tökustað. „Þá komst ég að því að
minn hluti var tveggja blaðsíðna
eintal á spænsku.“
Þriðja reynslan sem McConaug-
hey vildi deila snerist um að mæta
með börnin sín í upptökuverið.
Snemma á leikferlinum taldi hann
það vera slæma hugmynd. Þetta
viðhorf hans breyttist þegar hann
eignaðist loksins börn. „Mér finnst
alveg frábært að hafa börnin mín
með á tökustað.“
Fjölmargar stjörnur gerðu góð-
látlegt grín að leikaranum svo
sem Kate Hudson, Reese Wither-
spoon, vinur hans Woody Harrel-
son og Sandra Bullock, sem las
upp ljóð eftir sig. Leikstjórinn
Richard Linklater, sem leikstýrði
McConaughey í Dazed & Confus-
ed og The Newton Boys, hafði
þetta að segja: „Hann fór aldrei
úr bolnum, í hvorugri myndinni.“
Grínarinn Jimmy Kimmel var
kynnir kvöldsins og gerði auðvit-
að góðlátlegt grín að leikaran-
um. „Hann er ekki bara snoppu-
fríður,“ sagði hann, „hann er
líka með æsandi kropp.“ Undir
lokin skáluðu þeir Kimmel og
McConaughey síðan í Miller Lite-
bjór á sviðinu. torduringi@frettabladid.is
McConaughey hylltur
Leikarinn Matthew McConaughey hlaut American Cinematheque-verðlaunin.
SKÁL Í BOTN Mcconaughey skálar með Jimmy Kimmel og dóttur sinni.
• 15,6" HD LED Mattur skjár (1366x768)
• AMD Dual-Core E2-2000 örgjörvi
• AMD Radeon HD7340 skjástýring
• 500GB harður diskur
• 4GB 1333MHz vinnsluminni
• HDMI, 3xUSB2.0, VGA · kortalesari
• PowerPlus rafhlaða m. 1000 hleðslum
• Windows 8 og Bluetooth 4.0
• 13,3" HD LED Skjár (1366x768) - Mattur
• AMD Quad-Core örgjörvi
• AMD Radeon HD7340 skjástýring
• 128 GB SSD harður diskur
• 4 GB DDR3 1333MHz vinnsluminni
• HDMI, 2xUSB2.0, 1xUSB3.0, kortalesari
• 8 klst. rafhlöðuending
• Windows 8 og Bluetooth 4.0 • Hvít
MIKIÐ FYRIR LÍTIÐ
· ATIV BOOK 9 LITE
FRÁBÆR TÖLVA
FYRIR FÓLK Á FERÐINNI
FÁÐU ÞÉR
ÞÚ SÉRÐ ALDREI
EFTIR ÞVÍ
84.900TILBOÐ: 109.900TILBOÐ: 129.900
149.900
TILBOÐ:
/með snertiskjá:
535U3C-KO1
• 13,3" HD LED Skjár (1366x768) - Mattur
• AMD Dual-Core A6-4455M örgjörvi
• AMD Radeon HD7500G skjástýring
• 500GB harður diskur
• 4GB 1333MHz vinnsluminni
• HDMI, 2xUSB2.0, USB3.0 · Kortalesari
• PowerPlus rafhlaða m. 1500 hleðslum.
• Windows 8 og Bluetooth 4.0 • Títan grátt
EIN SÚ ALLRA
VINSÆLASTANP275E5E-K01
OPIÐ VIRKA DAGA KL.10–18 · LAUGARDAGA KL.11–15
LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800 · ormsson.is
OPIÐ VIRKA DAGA KL.10–18 · LAUGARDAGA KL.12–16
SÍÐUMÚLA 9 · SÍMI 530 2900 · samsungsetrid.is