Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.10.2014, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 23.10.2014, Qupperneq 62
23. október 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 42 BAKÞANKAR Frosta Logasonar Ég hef miklar áhyggjur af okkur Íslend-ingum þessa dagana. Fólk virðist ekki hafa neinn skilning á nauðsyn valdstjórn- arinnar til þess að vopnavæðast. LÖGREGLAN hefur lengi viljað taka í notkun svokallaðar rafbyssur, en því hefur almenningur hingað til verið mótfallinn. Því hefur verið ákveðið að koma fyrir hríð- skotabyssum og Glock-skammbyssum í bifreiðum lögreglumanna þangað til niður- staða fæst í rafbyssumálið. Og þá verður allt vitlaust! Í rauninni var það ekki einu sinni íslenska lögreglan sem ákvað þetta. Aðstoðarmað- ur forsætisráðherra segir nefnilega að okkar góðu frændur Norðmenn, sem ekki hafa efni á að senda okkur eitt jólatré á ári lengur, vilji endilega gefa okkur vopnin. Vígbúinn lög- regluafli á Íslandi er sem sagt norsk ákvörðun. Er það ekki bæði krúttlegt og vinalegt? EN hver er annars vilji fólksins í landinu þegar kemur að löggæslumálum? Er ekki öruggara að hafa hríðskotabyssur í lög- reglubílum svona til vonar og vara ef ein- hver kynni að missa stjórn á skapi sínu? Er fólk búið að gleyma atvikinu á Lauga- veginum, þar sem stórhættuleg kona lenti í átökum við lögregluna og endaði svo á því að skalla bekk rétt áður en hún réðst á hellulagða gangstéttina með andlitið á sér að vopni? ER ekki auðséð mál að því fleiri skotvopn- um sem lögreglan hefur yfir að ráða, þeim mun minni verður áhugi almennings, og glæpamanna, til þess að vígbúast? Er það ekki alltaf þannig? Sjáið bara Bandaríkin. Þar er lögreglan svo vel vopnuð að ekki nokkrum manni dettur í hug að taka upp á því að skjóta mann og annan. HINGAÐ til hafa glæpamenn á Íslandi ekki notað byssur að neinu ráði. Viljum við ekki örugglega að lögreglan verði fyrri til? Þannig að hún geti lært almennilega hvern- ig á að nota þessi tæki áður en til fyrsta alvöru byssubardagans kemur hér á landi. ÉG meina, viljum við ekki að hænan komi á undan egginu, eða nei bíddu, var það öfugt? Léttvægar hríðskotabyssur Í kvöld munu Stefán Pálsson og Höskuldur Sæmundsson, kennarar í Bjórskólanum, slá til risavaxins bjórpartís á Kexi Hosteli til að slúðra um bókina Bjór – Umhverfis jörð- ina á 120 tegundum eftir þá kappana. „Við erum að leiða saman öll íslensku brugghúsin. Það gerist nú ekki á hverj- um degi,“ segir Stefán en brugghúsin munu kynna afurðir sínar í veislunni. Bókin er fyrsta frumsamda bjórbókin á íslensku. „Það hafa komið út tvær þýddar bjórbækur þannig að það er orðið tímabært að gefa loksins út eina bók á móðurmálinu. Það eru náttúrulega vel flestar íslensku tegundirnar dekk- aðar innan um helstu og kunnuglegustu erlendu bjórana. Þannig að menn eru bara í góðum félagsskap.“ Crymogea gefur bókina út en Rán Flygenring sér um teikningar. Aðspurður um uppáhaldsbjórinn segir Stefán að mis- munandi bjórar séu það við mismunandi tilefni. „Núna er að styttast í jólin og þá fer maður í eitthvað karamellu- kenndara. Þá er tíminn fyrir Bock-bjórana svokölluðu,“ segir Stefán sem er líka mikill aðdáandi Chimay-bjórsins, sem bruggaður er af belgískum munkum. - þij Blása til allsherjar bjórveislu Stefán Pálsson og Höskuldur Sæmundsson munu slúðra um nýju bjórbókina sína í kvöld. KOMINN TÍMI TIL Stefán segir tímabært að bjórbók komi út á móðurmálinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK ROBERT DOWNEY JR OG ROBERT DUVALL FARA Á KOSTUM Í FRÁBÆRRI MYND SEM KEMUR SKEMMTILEGA Á ÓVART NEW YORK OBSERVER TOTALFILM.COM BORGRÍKI 2 5:50, 8, 10:10 KASSATRÖLLIN 2D 5:50 GONE GIRL 10 DRACULA UNTOLD 8, 10:20 WALK AMONG TOMBSTONES 5:40, 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar ÍSL TAL BORGRÍKI KL. 5.45 - 8 - 10.10 GONE GIRL KL. 5.45 - 9 THE EQUALIZER KL. 10.15 PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8 BOYHOOD KL. 9 VONARSTRÆTI KL. 6 KL.5.45 - 8 - 10.10 BORGRÍKI LÚXUS KL. 3.30 - 5.45 - 8 GONE GIRL KL. 4.45 - 8 - 10.30 GONE GIRL LÚXUS KL. 10.10 DRACULA KL. 10.45 THE EQUALIZER KL. 8 THE MAZE RUNNER KL. 5.30 - 8 KASSATRÖLLIN ÍSL TAL2D KL.3.30 - 5.45 KASSATRÖLLIN 3D ÍSL TAL KL. 3.30 SMÁHEIMAR 2D KL. 3.30 „TÖ FF, BRENGLUÐ OG Ö GRANDI“ - EMPIRE „EIN AF ALBESTU MYNDUM ÁRSINS“ -T.V., BIOVEFURINN -V.J.V, SVARTHÖFÐI.IS -H.S.S.,MBL -H.S.S.,MBL Fyrrverandi borgarstjóri New York-borgar, Rudy Giuliani, tók þátt í mótmælum fyrir framan Metropolitan-óperuna í borginni í gær og hélt ræðu. Tilefni mót- mælanna var óperan The Death of Klinghoffer, sem fjallar um morð PLO, Frelsissamtaka Palestínu, á Leon Klinghoffer, amerískum gyð- ingi. Þar vestra telja mótmælend- ur að óperan sé Palestínumönnum of hliðholl og mæli hryðjuverkum bót. Giuliani, sem hefur áður beitt sér fyrir því að ákveðnum listsýn- ingum í borginni verði lokað, segir að óperan gefi brenglaða mynd af sögunni. Núverandi borgarstjóri, Bill de Blasio, sagði við New York Times að hann bæri virðingu fyrir málfrelsi. - þij Mótmæla óperu RUDY GIULIANI Hefur áður reynt að loka listsýningum í New York. NORDICPHOTOS/GETTY „Við erum mjög stoltir af því hvað það er rosalega mikið af Íslandi í myndinni, allar vatnatökurnar og jökullinn,“ segir Árni Björn Helga- son, yfirmaður erlendrar fram- leiðslu hjá Saga Film, sem er nýbú- inn að sjá stórmyndina Interstellar. Hluti hennar var tekinn upp á Svínafellsjökli fyrir rúmu ári með aðstoð Saga Film en myndin verður frumsýnd hér á landi 7. nóvember. Rúmlega 300 manna tökulið vann við myndina hér á landi, þar af yfir 100 Íslendingar. „Eftir að hafa séð stiklurnar, þar sem var gefið í skyn hversu mikið er sýnt af Íslandi í myndinni, vorum við að búast við slatta og við fengum það.“ Leikstjóri Interstellar er Christ- opher Nolan, sem m.a. er þekktur fyrir Batman-þríleik sinn. Matt Damon, Matthew McCon aughey og Anne Hathaway eru í aðalhlutverk- um. „Þetta er allt hið besta fólk og enginn var með neina stjörnustæla,“ segir Árni Björn, spurður út í sam- skipti sín við Hollywood-stjörnurn- ar. „Allir voru mjög mikið á jörð- inni og Nolan er kóngurinn í ríki sínu. Það er enginn stærri en hann í Hollywood,“ segir hann. „Á netinu eru menn að tala um Óskarsverð- laun en maður veit ekkert um það. Það er vonandi að þetta verði fyrsta íslenska „landslagið“ sem fær Ósk- arsverðlaun en ekki bara tilnefn- ingar.“ Tökurnar á Svínafellsjökli stóðu yfir í tíu daga og gengu mjög vel, fyrir utan einn dag þegar hætta þurfti við tökur vegna veðurs. McConaughey og Hathaway dvöldu á Íslandi alla tíu dagana en Damon var hér í fimm daga. Spurður hvað stjörnurnar hafi gert á milli kvikmyndataka segir Árni Björn að þær hafi ekki gert neitt nema að vinna. „Það var ekk- ert verið að dúlla sér upp um fjöll og firnindi. Það var allt keyrt í gegn. Nolan vinnur mjög hratt og þess vegna skipti þetta veður í raun ekki máli því hann var búinn að vinna upp þann tíma. Árni Björn er mjög hrifinn af Interstellar. „Hún er dálítið löng en menn verða að vera viðbúnir því. Þetta eru ekki 90 mínútur af froðu heldur eru miklar pælingar þarna í gangi,“ segir hann. Til stendur að halda forsýningu á myndinni hér á landi og bjóða íslenska tökuliðinu, þar sem um eins konar uppskeruhátíð verður að ræða. freyr@frettabladid.is Vonandi fær íslenska landslagið Óskarsverðlaun Árni Björn Helgason hjá Saga Film er ánægður með hvernig Hollywood-myndin Interstellar kemur út á hvíta tjaldinu. Stjörnur myndarinnar voru allar mjög jarðbundnar og langt í frá með einhverja stæla. MATTHEW MCCON- AUGHEY Stórmyndin, með Matthew McConaughey í aðalhlutverki, var að hluta til tekin upp á Íslandi í septem- ber í fyrra. Bresku ofurfyrirsætunni Cöru Delevingne er margt til lista lagt. Þrátt fyrir að vera ein vin- sælasta og uppteknasta fyrir- sæta í heiminum í dag gefur hún sér tíma til þess að sinna öðrum verkefnum eins og að leika í kvikmyndum og semja tónlist. Um helgina bárust fréttir af því að hún hefði síðustu átta mánuði verið að semja tónlist og fengið með sér í lið engan annan en Pharrell Williams. Óvíst er hvenær tónlist þeirra kemur út, en þau gáfu í skyn að hún yrði gefin út leynilega og óvænt að hætti Beyoncé, en hún gaf út plötu á netinu í byrjun árs, án nokkurs fyrirvara. Ofurfyrirsæta gefur út plötu Eftir að hafa séð stiklurnar, þar sem var gefið í skyn hversu mikið er sýnt af Íslandi í myndinni, vorum við að búast við slatta og við fengum það. Árni Björn Helgason ÁRNI BJÖRN HELGASON Ánægður með hvernig Inter- stellar kemur út á hvíta tjaldinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.