Fréttablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 23.10.2014, Blaðsíða 70
23. október 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 50 MORGUNMATURINN „Ég er hérna í 35 stiga hita. Þetta er alveg æðislegt, gerist ekki betra,“ segir Hafþór Júlíus Björnsson, næststerkasti maður heims. Hann er staddur á eyjunni Bar- ein, skammt frá Sádi-Arabíu, þar sem hann er einn af aðalgestunum á IGN-tölvuleikjahátíðinni sem fer fram á föstudag og laugardag. „Ég verð hérna í viku og verð í nokkra aukadaga til að slappa af og njóta mín.“ Á hátíðinni mun hann gefa eiginhandaráritanir, fara í viðtöl og myndatökur. Margar dyr hafa opnast Haf- þóri Júlíusi síðan hann vakti heimsathygli fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones þar sem hann lék Gregor Clegane, eða „Fjallið“. „Game of Thrones kom manni ágætlega á kortið,“ segir hann. Í síðustu viku fór hann í svip- aða ferð er hann sótti ráðstefnuna Film and Comic Con í Lond- on í fyrsta sinn. „Ég skrif- aði hátt í sex hundruð eigin- handaráritanir á einum degi og svo var ég í við- tölum og myndatök- um.“ Spurður hvort hann muni leika áfram í Game of T h rones vill hann sem minnst um það segja. „Kar- akterinn minn var mjög særður í lokaþættinum [í fjórðu þáttaröð] en fólk sem hefur lesið bækurnar veit hvað gerist.“ Engar tökur á Game of Thrones eru fyrirhugaðar hér á landi það sem eftir er ársins en tökur hafa staðið yfir á Spáni að undanförnu. - fb Gaf 600 eiginhandaráritanir á einum degi Kraft ajötunninn Hafþór Júlíus Björnsson úr Game of Thrones er gestur á tölvuleikjaráðstefnu í Barein. Game of Thrones kom manni ágætlega á kortið. HAFÞÓR JÚLÍUS Margar dyr hafa opnast krafta- jötninum eftir að hann lék í Game of Thrones. Birta Björnsdóttir fatahönnuður, betur þekkt sem Birta í Júniform, ætlar að selja rekstur verslunarinn- ar. Hún mun áfram starfa sem aðal- hönnuður merkisins, en er búsett á Spáni og hefur því verið erfitt fyrir hana að sinna rekstrinum hér heima. „Það hefur verið draumur hjá mér lengi að losna undan rekstrinum sjálfum og mér bauðst tækifæri til þess. Nú get ég einbeitt mér að hönn- uninni, sem ég elska að gera. Ég mun geta sinnt því betur en nokkru sinni fyrr, ásamt því að sinna hinni ástríð- unni minni sem er að mála portrett- myndir,“ segir Birta. Þær Ingibjörg Þorvaldsdóttir og Katla Jónasar- dóttir, eigendur verslunarinnar Öxn- eyjar á Klapparstíg, keyptu rekst- urinn af Birtu. „Við höfum einbeitt okkur að því að selja íslenska hönnun og Birta vildi færa reksturinn niður í miðbæ svo við slógum til,“ segir Ingibjörg. Í dag ætla þær að opna með Júni- form í versluninni og af því tilefni ætla þær að gefa 10% af allri sölunni til Krabbameinsfélagsins. „Júniform verður stærra í sniðum en áður og mun vera mjög stór partur af versl- uninni. Vetrarlínan hefur sjaldan verið stærri eða úrvalið meira.“ - asi Birta selur rekstur Júniform Birta Björnsdóttir lætur drauminn rætast og einbeitir sér að fatahönnun. NÝIR EIGENDUR Þær Katla og Ingibjörg eru spenntar að taka við rekstrinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI NORÐURLJÓSASAL HÖRPU 1. OG 2. JANÚAR 2015, KL. 17:00 HOFI AKURYRI 3. JANÚAR 2015. KL 17:00 & 20:00 MIÐASALA ER HAFIN Á HARPA.IS, MENNINGARHUS.IS & MIÐI.IS ATHUGIÐ TAKMARKAÐ MAGN MIÐA - AÐEINS ÞESSIR SÝNINGADAGAR #OPERUDRAUGARNIR finndu Óperudrauganna á facebook.com/operudraugarnir ÓPERU DRAUG ARNIR Nýárstónleikar Nanna Rögnvaldardóttir, mat- móðir og rithöfundur, rakst á síðu í Mogganum frá miðjum kreppuár- um þar sem Helga Sigurðardóttir húsmæðrakennari setur upp viku- matseðil fyrir fjölskyldu. Nanna ákvað að gera tilraun vegna umræðunnar um matar- kostnað og neysluviðmið ríkis- stjórnarinnar upp á 248 krónur á máltið og fylgja þessum matseðli. Hún fór sínar leiðir í uppskriftum og spann upp í tengslum við tíð- arandann. „Mín niðurstaða er sú að ég held ég fari að horfa meira til fortíðarinnar í eldamennsku og rifja upp ýmislegt. Þegar fjöl- skyldan kom í mat þá blossaði upp nostalgía. Það sama gerðist hjá mörgum sem lesa bloggið mitt, þar sem ég birti uppskriftirnar og myndir. Mataræði okkar Íslend- inga hefur nefnilega breyst alveg gífurlega á tiltölulega stuttum tíma,“ segir Nanna og þverneitar því að eldamennskan sé flókin en það kom henni á óvart hvað matur- inn var í raun ódýr. „Það var alltaf tvírétta og ég gat notað afgang af kvöldmatnum í hádeginu daginn eftir og jafnvel notað forréttinn eða eftirréttinn í morgunmat. Ég get lifað góðu lífi á 750 krónum á dag samkvæmt þessum matseðli, það er niðurstaðan.“ Hráefnin á matseðlinum voru ódýr en Nanna segir það alls ekki koma niður á næringunni. Þvert á móti. „Það eru engar unnar mat- vörur á þessum matseðli heldur kjöt, innmatur, ferskur fiskur og grænmeti. Einnig eru ódýr hrá- efni í for- og eftirréttunum,“ segir Nanna og bætir við að gott sé að hafa í huga að nýta hráefnin í fleiri en eina máltíð enda felist mikill sparnaður í því, sérstaklega þegar eldað er fyrir fáa. Næsta tilraun Nönnu verður að skoða kreppumatseðla sem gerð- ir voru samkvæmt framfærslu- viðmiði bæjaryfirvalda á fjórða áratug síðustu aldar. Þá hélt Hús- mæðrafélagið samkeppni og hús- mæður settu saman matseðla sem áttu að standast þessi viðmið, sem Fór aft ur til fortíðar og sparaði í leiðinni Nanna Rögnvaldardóttir fylgdi áttatíu ára gömlum matseðli í viku. Matarkostn- aðurinn var um 750 krónur á dag og því hver máltíð undir 248 krónum. MATGÆÐINGUR Helsta áhugamál Nönnu er matargerð og matarsaga og því hafði hún gaman af því að elda rétti af áttatíu ára gömlum matseðli. Margt var á seðli- num sem hún hafði ekki borðað lengi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 80 ára gamall matseðill Helgu Oftast AB-mjólk með múslíi og slettu af jarðarberjasúrmjólk. Glas af sítrónuvatni, lýsi og kalk. Stundum hafragrautur en alltaf eitt soðið brúnegg. Helga Guðrún Johnson rithöfundur voru áttatíu aurar á dag á mann. En ætlar hún ekki að skella í slíkan kreppumatseðil fyrir okkur nútímafólkið? „Það er aldrei að vita,“ svarar Nanna sposk. erla@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.