Fréttablaðið - 11.03.2015, Page 2
11. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Aldís, eruð þið í standandi
vandræðum?
„Nei, við viljum að skynsemin ráði“
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hvera-
gerðis er á móti lagafrumvarpi sem
myndi banna akstur með standandi far-
þega utan þéttbýlis frá 1. janúar 2019.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/V
IL
H
EL
M
SPURNING DAGSINS
Ástralía 12. til 29. október
Ferðask r i f s to fa
Ley f ishaf i
Ferðamannastofu
Verð á mann í tvíbýli kr 687.000
Upplýsingar í símum 845-1425 / 899-1295
eða á tölvupósti info@iceline.isIceLine Travel
Nánari ferðalýsing á www.iceline.is
Sydney, Brisbane, Fraser Island, þjóðgarðar o.fl.
er meðal þess sem boðið verður upp á í þessari ferð.
SJÁVARÚTVEGUR Vestanganga
loðnu hefur skilað miklu magni af
loðnu og mokveiði er í utanverðum
Breiðafirði, suðvestur af Látra-
bjargi, þegar friður er til veiða
fyrir veðri og vondu sjólagi.
Fáist ekki nokkrir góðviðrisdag-
ar til veiða er hætt við að flotinn
nái ekki að veiða 390 þúsund tonna
loðnukvótann. Skip HB Granda,
Faxi RE, kom til hafnar á mánu-
dagskvöld með fullfermi, um 1.500
tonn. Að sögn Hjalta Einarsson-
ar, fyrsta stýrimanns, hefur tíðin
verið með fádæmum slæm allt frá
áramótum. Skipin stundi veiðar við
ákaflega erfiðar aðstæður.
„Sjó hefur aldrei náð að slétta á
milli bræla og það hefur orðið mikið
veiðarfæratjón vegna hinnar miklu
kviku sem er í sjónum. Á meðan það
lóðar á nægilegt magn af loðnu út af
Breiðafirði þá halda skipin sig þar.
Það styttist hins vegar í hrygningu
hjá loðnunni og það, sem við þurfum
nauðsynlega á að halda, eru nokkrir
góðviðrisdagar áður en vertíðinni
lýkur,“ segir Hjalti. - shá
Drjúg vestanganga í Breiðafirði en veður og vont sjólag plagar sjómenn:
Svartsýni um að kvótinn náist
HEILBRIGÐISMÁL Sóttvarnalæknir
sér ekki ástæðu til að vara við
ferðalögum á svæði þar sem misl-
ingar hafa verið að greinast. Þetta
er svar við þeirri spurningu hvort
ástæða sé til að hefja bólusetningu
gegn mislingum fyrr en mælt er
með hér á landi, eða við 18 mánaða
aldur.
Þó segir í tilkynningu að ef fólk
ferðast til svæða þar sem misl-
ingar hafa verið að greinast sé í
góðu lagi að bólusetja börn fyrr en
við 18 mánaða aldur. Sé barn hins
vegar bólusett á fyrsta aldursári
þurfi að endurbólusetja það við 18
mánaða aldur. - shá
Bólusetja má börnin fyrr:
Varar ekki við
ferðalögum
FAXI RE 262.000 tonn af 390.000
tonna kvóta voru komin á land í gær.
MYND/HBGRANDI
KJARAMÁL Ljóst er að félagsmenn
Starfsgreinasambandsins verða
kallaðir til atkvæðagreiðslu um
boðun verkfalls eftir að slitnaði
upp úr samningaviðræðum Starfs-
greinasambandsins og Samtaka
atvinnulífsins í gær.
Drífa Snædal, framkvæmda-
stjóri Starfsgreinasambandsins,
segir Samtök atvinnulífsins ekki
hafa komið til móts við kröfur
sambandsins. Samtök atvinnulífs-
ins segja Starfsgreinasambandið
hafna verðstöðugleika með kröfum
um tugprósenta launahækkun og
bera ábyrgð á viðræðuslitunum.
- srs
Slitnaði upp úr viðræðum:
Munu kjósa um
verkfallsboðun
JAFNRÉTTI „Upphaflega átti félagið aðallega að
standa að því að búa til umræðuhóp og stofna undir-
félag fyrir nemendafélögin. Síðan, eftir að hafa hist
í fyrsta skipti, ákváðum við að halda Pride-viku,“
segir Adda Guðrún Gylfadóttir, stjórnarmeðlimur í
Catamitus, hinseginfélagi Menntaskólans í Reykja-
vík.
Adda er einn skipuleggjenda hins eginviku sem
haldin er í fyrsta skipti í MR um þessar mundir.
„Dagskráin er afar fjölbreytt og inniheldur
fræðslu og fyrirlestra í bland við skemmtilega við-
burði,“ segir Adda. Hún nefnir að í samstarfi við
Verzlunarskóla Íslands verði haldin sameiginleg
fræðsla fyrir foreldra og starfsfólk skólanna í Bláa
sal Verzlunarskólans á fimmtudagskvöld.
„Svo vonum við að aðrir skólar taki sér þetta
til fyrirmyndar, stofni sín félög og haldi svipaðar
vikur. Við erum öll mjög spennt að sjá hvernig þetta
fer og erum viss um að þetta muni bara stækka á
milli ára,“ segir Adda.
Þess má geta að femínistafélag MR hélt fyrstu
kvenréttindaviku sína í síðustu viku þar sem Vigdís
Finnbogadóttir ræddi við nemendur. - ie
Tímamót í MR þar sem nemendur fagna fjölbreytileika mannlífsins:
Hinseginvika menntaskólanema
ADDA GUÐRÚN GYLFADÓTTIR Segir að hinseginvikunni
hafi verið gríðarvel tekið.
SKÁK Reykjavíkurskákmótið, það
þrítugasta í röðinni, hófst í gær.
Mótið er afmælismót Friðriks Ólafs-
sonar, fyrsta stórmeistara Íslands,
honum til heiðurs áttræðum.
Metfjöldi keppenda er mættur til
leiks, en 273 skákmenn frá 38 lönd-
um tefla á mótinu.
Mótið er óvenju sterkt og þrír
af ofurstórmeisturum heims eru
mættir til leiks; Aserinn Shakhr-
iyar Mamedyarov, David Navarra
frá Tékklandi og Úkraínumaðurinn
Pavel Eljanov.
Sterkustu skákmenn landsins láta
sig ekki vanta. Hannes Hlífar Stef-
ánsson hefur fimm sinnum sigrað
á mótinu. Hann er nýkominn frá
Evrópumóti einstaklinga þar sem
hann stóð sig afar vel. Í heimavarn-
arliðinu eru einnig stórmeistararn-
ir Héðinn Steingrímsson, Hjörvar
Steinn Grétarsson, Stefán Kristjáns-
son, Henrik Danielsen og Þröstur
Þórhallsson ásamt Íslandsmeistar-
anum Guðmundi Kjartanssyni.
Úrslit voru eftir bókinni í fyrstu
umferð, eins og oft á opnum mótum
og aðeins fimm prósent skáka end-
uðu með jafntefli. - shá
Þrítugasta Reykjavíkurskákmótið hófst í gær:
Metfjöldi þátttakenda
1. LEIKUR Forseti FIDE,
hinn umdeildi Kirsan
Ilyumzhinov, lék fyrsta
leikinn á mótinu fyrir
stigahæsta skákmann
mótsins, Shakhriyar
Mamedyarov gegn Greg-
ory Lux. S. Björn Blöndal,
formaður borgarráðs,
Gunnar Björnsson, for-
seti Skáksambands
Íslands, og Friðrik Ólafs-
son fylgjast með.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVÍÞJÓÐ Sænsk stjórnvöld ætla ekki
að framlengja vopnasölusamning
við Sádi-Arabíu. Að nokkru ræðst
þessi ákvörðun af djúpstæðum
ágreiningi um mannréttindamál.
Á mánudaginn komu Sádi-Arabar
í veg fyrir að Margot Wallström,
utanríkisráðherra Svíþjóðar, fengi
að flytja ræðu á þingi Arababanda-
lagsins í Kaíró.
Vopnasölusamningurinn var
gerður árið 2005 og hefur einu
sinni verið framlengdur, en rennur
út síðar á þessu ári. - gb
Svíar hafa fengið nóg:
Hætta að selja
Sádum vopn
VEÐUR Um 250 björgunarsveitar-
menn voru að sinna útköllum víða
um land í gær. Mikil skerðing varð
á samgöngum þegar illviðri gekk
yfir suður- og vesturhluta landsins.
Um hádegi í gær skall á mikill
stormur sem entist langt fram á
kvöld. Langflest útköll björgunar-
sveitarmanna voru vegna bíla sem
höfðu fest sig eða ekið út af vegi.
Því er spáð að veðrið haldist að
nokkru óbreytt fram yfir næstu
helgi. „Það er ofboðslegur lægða-
gangur á næstunni, við erum eigin-
lega beint í skotlínunni,“ segir Elín
Björk Jónasdóttir, veður fræðingur
á Veðurstofu Íslands. „Veðurlagsút-
lit er svipað og hefur verið undan-
farna daga og það sér eiginlega ekki
fyrir endann á því,“ segir Elín.
Á höfuðborgarsvæðinu varð
verklag um röskun á skólastarfi
gangsett og foreldrar og forráða-
menn beðnir um að tryggja að börn
þeirra yrðu sótt í skóla. Skólayfir-
völd sáu til þess að börnin færu
ekki úr skóla nema í fylgd forráða-
manna.
Í Kaldárseli urðu 35 leikskóla-
börn strandaglópar og var björg-
unarsveit Hafnarfjarðar kölluð út
þeim til aðstoðar. Þá seinkaði flest-
um ferðum Strætó og sumar ferðir
féllu niður.
Á suðvesturhorni landsins var
fjölda vega lokað og ófært var á
flestum vegum á Suðurlandi. Talið
er að á annað hundrað bíla hafi fest
sig á leiðinni til og frá Gullfossi,
Geysi og á Þingvöllum.
Tvær flugvélar frá Easy Jet sem
áttu að lenda síðdegis á Keflavík-
urflugvelli lentu í staðinn á Egils-
stöðum. Vélarnar héldu þó áfram
eftir um klukkustundar bið á Egils-
stöðum. Nokkrar flugvélar sátu
fastar á Keflavíkurflugvelli þar
sem ekki gafst kostur á að taka á
móti þeim við flugstöðina vegna
veðurhamsins.
Fjöldahjálparstöð var opnuð
á Suðurnesjum á vegum Rauða
krossins. Hjálparstöðin tók á móti
rúmlega tuttugu grunnskólanem-
um frá Manchester ásamt leið-
beinendum þeirra. Nemarnir voru
í hjálparstöðinni í um tvær klukku-
stundir eða þangað til opnað var
fyrir umferð um Reykjanesbraut.
stefanrafn@frettabladid.is
Ísland í skotlínu
mikils lægðagangs
Fjöldi björgunarsveitarmanna var að störfum við útköll í gær. Mikil röskun á
skólastarfi og samgöngum. Nokkrar flugvélar fastar á Keflavíkurflugvelli. Fleiri
lægðir á leiðinni næstu daga og ekki sér fyrir endann á lægðaganginum.
VEÐRA-
HAMUR
Víða um
land var
ófært í gær.
1
0
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
1
7
-0
3
8
8
1
4
1
7
-0
2
4
C
1
4
1
7
-0
1
1
0
1
4
1
6
-F
F
D
4
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K