Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.03.2015, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 11.03.2015, Qupperneq 6
11. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvað bíða margir eldri borgarar eft- ir því að komast á hjúkrunarheimili? 2. Hvað fær Hólaskóli háa upphæð á þessu ári úr ríkissjóði til endurbóta á útisvæði vegna reiðkennslu? 3. Á hvaða kvikmyndahátíð var Sunn- eva Björk Helgadóttir tilnefnd til verðlauna? SVÖR: 1. 376. 2. 40 milljónir. 3. Winter Film Awards í New York. MENNING Fimmtán náttúruverndar- og úti- vistarsamtök hafa sent Illuga Gunnarssyni, mennta- og menningarmálaráðherra, álykt- un þar sem farið er fram á að Alþingi og ráðherra axli ábyrgð og tryggi starfsemi og rekstur Náttúrugripasafns Íslands, sem er eitt þriggja höfuðsafna landsins. Í ályktuninni er skorað á Alþingi og ráð- herra „að taka hið fyrsta af skarið varðandi málefni Náttúruminjasafnsins og búa þannig um hnútana að starfsemi þessa höfuðsafns þjóðarinnar í náttúrufræðum rísi undir nafni og sómi sé af við miðlun á fróðleik og þekk- ingu um náttúru landsins, náttúrusögu, nátt- úruvernd og nýtingu náttúruauðlinda, eins og lög kveða á um“. Eins og Fréttablaðið hefur fjallað um á síðustu vikum er staða Náttúruminjasafns- ins dapurleg og til skammar að mati borgar- stjóra og fleiri. Stofnunin er fjársvelt, ekkert sýningahald starfrækt og skrifstofuaðstaðan nýverið í lausu lofti eftir uppsögn á húsaleigu- samningi. Samtökin krefjast þess að stjórnvöld axli ábyrgð og tryggi Náttúruminjasafninu starfs- umhverfi og fjármagn til reksturs sem hæfir höfuðsafni og gerir því kleift að sinna lög- bundnum hlutverkum sínum. - shá Þess er krafist af Alþingi og ráðherra að Náttúruminjasafni Íslands sé sýnd tilhlýðileg virðing: Fimmtán samtök fylkja sér að baki NMSÍ Nöfn samtakanna fimmtán: Náttúruverndarsamtök Íslands Bandalag íslenskra skáta Félag húsbílaeigenda ● Ferðaklúbburinn 4x4 Framtíðarlandið ● Fuglavernd Hið íslenska náttúrufræðifélag Kayakklúbburinn ● Landssamband hestamanna Náttúruverndarsamtök Suðurlands Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands Skógræktarfélag Íslands Ungir umhverfissinnar ● Útivist Landvernd ➜ Krefja stjórnvöld um aðgerðir VERSLUN Mikil eftirspurn er eftir verslunarhúsnæði á Grandanum í Reykjavík og bárust 45 umsóknir um þrjú verslunarpláss þar, og á Geirsgötu í Gömlu höfninni. Á vef Faxaflóahafna segir frá því að þar sem eftirspurn var verulega umfram framboð var gert samkomulag við leigjendur í tveimur rýmum til við- bótar við Grandagarð um að rýma þau fyrir miðjan apríl. Teknar voru upp viðræður við fimm af umsækj- endunum 45, en gangi saman mun á svæðinu bætast við sala á klassískum reiðjólum, handverkskökuhús, sérverslun með nautakjöt, gullsmíðaverkstæði og sala á borðbúnaði og gjafavöru. Verði ekki af gerð samnings við ofangreinda aðila þá verður nýr aðili kallaður til úr hópi umsækjenda. - shá Alls sóttu 45 verslunarmenn um þrjú laus pláss á Granda og Geirsgötu: Slegist um pláss á Grandanum UPPBYGGING Gömlu verbúðirnar og Grandinn er að verða eitt mest spennandi hverfið í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hjól atvinnulífsins Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is GOTT ÚRVAL VERSLUN Árið 2014 voru starfandi tæplega 180 dagvöruverslanir á Íslandi. Velta verslananna vegna sölu á dagvöru er áætluð um 130 milljarðar króna á árinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Sam- keppniseftirlitsins um stöðu á dag- vörumarkaði. Hlutdeild Haga er um 48-49% en fyrirtækið rak árið 2014 alls 41 dagvöruverslun. Af verslana- keðjum var Bónus með hæstu hlutdeildina eða 38-39%. Hlut- deild Kaupáss var um 19-20% en þar af var hlutdeild Krónunn- ar 15-16%. Samkaup voru með 15-16% hlutdeild en þar af var hlutur Nettó 8-9% af heildar- markaði. 10-11/Iceland var með 5-6%. Aðrar dagvöruverslanir sem hafa nokkra markaðshlut- deild eru Fjarðarkaup og Víðir en hlutdeild þeirra var á bilinu 1-3%. Samkeppniseftirlitið segir að heldur hafi dregið úr markaðs- hlutdeild Haga frá árinu 2009. Hlutur minni verslana hafi á sama tíma aukist. - jhh Tæp 50% kaupa í matinn hjá Hagkaupi og Bónus: Með mikla forystu VERSLAÐ Í HOLTAGÖRÐUM Bónus er með tæplega 40 prósenta markaðshlut- deild. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EFNAHAGSMÁL „Í þeim skýrslum og greiningum sem birst hafa síð- ustu mánuði er ekki að finna aug- ljósa ástæðu fyrir því að úti sé um frið á vinnumarkaði,“ segir Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands og nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabank- ans, í nýrri grein í efnahagsritinu Vísbendingu sem út kom í gær. Hann segir mikilvægt að safna upplýsingum um þróun kaupmátt- ar hinna ýmsu stétta til þess að koma í veg fyrir að óánægja ein- stakra stéttar- félaga verði til fyrir misskiln- ing. „Ef ekki tekst að lægja öld- urnar á vinnu- markaði á næstu v i k u m m e ð bættri upplýs- ingagjöf er mikil vægt að ríkis- stjórn stigi fram og móti tillögur í samvinnu við aðila vinnumark- aðar, bæði stéttarfélög launafólks og atvinnurekendur, tillögur sem miða að því að þorra launafólks finnist ekki á sig hallað,“ segir Gylfi í grein sinni. Ríkisvaldið geti til dæmis boðið breytingar á skattkerfi og ríkisútgjöldum eða kerfisbreytingar, í skiptum fyrir verðstöðugleika. „Kannski væri upplagt að ríkisstjórnin beitti sér fyrir átaki í húsnæðismálum sem miðaði að því að lækka verð á minni íbúðum,“ stingur hann upp á. Gylfi bendir í greininni á að Seðlabankinn verði lögum sam- kvæmt að bregðast við verðbólgu- þrýstingi með vaxtahækkunum. „Ef verðbólga eykst til dæmis úr tveimur prósentum í sex þyrftu vextir að hækka um meira en fjór- ar prósentur svo raunvextir nái að hækka til þess að slá á eftir spurn, framleiðslu og atvinnu í því skyni að minnka verðbólguþrýstinginn.“ Kjarasamningar sem ýttu undir verðbólgu hefðu því einnig veru- leg áhrif á vaxtakostnað ríkis- sjóðs, fyrirtækja og einstaklinga, til viðbótar því að eftirspurn, atvinna og lífskjör yrðu verri en ella. Ef hins vegar tækist að ná nýju jafnvægi segir Gylfi að sátt yrði meiri í samfélaginu, meiri atvinna, aukinn kaupmáttur, lægri vextir og vaxtakostnaður, og þar með lægri útgjöld ríkissjóðs. „Með lægri vaxtakostnaði ríkissjóðs er mögulegt að grynnka á skuldum hans og auka útgjöld til ýmissa þjóðþrifaverkefna, svo sem á sviði heilbrigðis- eða menntamála.“ olikr@frettabladid.is Ríkið bregðist við ef ekki er slegið á ólgu Í tölum um þróun kaupmáttar einstakra hópa er ekki að finna augljósa ástæðu fyrir því að úti sé um frið á vinnumarkaði, segir Gylfi Zoëga hagfræðingur í nýrri grein. Takist ekki að lægja öldurnar sé mikilvægt að ríkisstjórnin láti til sín taka. Gylfi Zoëga segir hagstjórnarvandann felast í að þótt hverju stéttarfélagi finnist réttlætanlegt að fara fram með miklar launakröfur sé það ekki skynsamlegt fyrir þjóðfélagið í heild og tekur dæmi úr umferðinni: „Það getur virst vera skynsamlegt hjá einum ökumanni að aka hraðar en allir aðrir svo fremi sem hinir aka áfram hægt. Hann kemst þá fyrr á áfanga- stað en aðrir. En ef allir hegða sér eins er voðinn vís.“ Hraðatakmarkanir á vinnumarkaði felist í að brugðist sé við með vaxtahækkunum, eða frestuðum vaxtalækkunum. „Til lengri tíma litið skiptir höfuðmáli að stöðugleiki sé í efnahagsmálum; verðlag sé stöðugt og gengi krónunnar sömuleiðis.“ Segir stöðugleikann skipta höfuðmáli Á FRÍDEGI VERKALÝÐSINS Gylfi bendir á að finnist félagsmönnum einstakra stétt- arfélaga tekjuskipting óréttlát geta þeir freistast til þess að gera meiri kaupkröfur en ella óháð atvinnustigi og skeyti þá litlu um áhrif á verðbólgu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍELGYLFI ZOËGA VEISTU SVARIÐ? 1 0 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 1 7 -2 B 0 8 1 4 1 7 -2 9 C C 1 4 1 7 -2 8 9 0 1 4 1 7 -2 7 5 4 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.