Fréttablaðið - 11.03.2015, Side 22

Fréttablaðið - 11.03.2015, Side 22
 | 6 11. mars 2015 | miðvikudagur Klasasamstarfi ð byggir á þverfag- legri nálgun fyrirtækja og stofn- ana sem hafa hag af uppbyggingu ferðaþjónustu í landinu. Hugmynd- in varð að veruleika þegar aðilar úr atvinnulífi nu komu saman í október 2012 og hefur hann starfað óform- lega síðan þá. Markaðurinn ræddi við Rósbjörgu Jónsdóttur, verkefn- isstjóra hjá Gekon, Kristínu Hrönn Guðmundsdóttur, forstöðumann Verslunar og þjónustu hjá fyrir- tækjasviði Íslandsbanka og Sævar Skaptason, framkvæmdastjóra Ferðaþjónustu bænda, af þessu til- efni. Kristín og Sævar sátu í fagráði klasasamstarfsins. Fagráðið starf- aði frá október 2012 þegar starfsem- in var verkefnabundin. Frá áramót- um hefur fagráðið unnið að stofnun þessa félags. Með stofnun félags- ins er verið að styrkja starfsemina í sessi og þá mun ný stjórn félags- ins taka við. Rósbjörg segir að tilgangurinn með stofnun Íslenska ferðaklasans sé að styrkja enn frekar uppbygg- ingu innviða í greininni og efl a sam- keppnishæfni hennar. Sævar segir að þetta sé gert með því að tengja saman ólíka aðila. „Ekki bara þessa sem hafa algjörlega beinan hag af ferðaþjónustu, heldur taka inn aðila sem hafa óbeinan hag en eru samt mikilvægar stoðir í ferðaþjónust- unni í dag. Það eru til dæmis bank- ar, verslun og þjónusta og aðrir aðilar sem koma að greininni með einum eða öðrum hætti.“ Hverjir eru það sem koma að samstarfi nu? „Þetta eru allir helstu ferðaþjón- ustuaðilar, sem koma að fl utnings- þjónustu, fl ugfélög, bílaleigur og rútufyrirtæki. Þetta eru öll helstu hótelin í landinu, allar helstu ferða- skrifstofur og líka helstu afþreying- araðilar. Það eru þrjár stoðir sem skipta máli í ferðaþjónustu. Það eru fl utningsaðilar, af þreyingar aðilar og gisting,“ segir Rósbjörg. Hún bendir á að það sé afþreyingin sem selji hvern og einn áfangastað. Sævar segir að í ljósi sögunnar hafi fyrirtæki greinarinnar verið einangruð. Með fjölgun fyrirtækja og aukinni breidd hafi þörfi n fyrir samvinnu aukist. „Og þegar þessi vinna fer af stað 2012, þá eru menn kannski komnir á þann stað að þeir séu móttækilegri fyrir samvinnu og samstarfi en var áður,“ segir Sævar. Hann bendir á að Íslenski ferða- klasinn sé hrein viðbót við þá starf- semi sem unnin er og komi ekki í stað þeirrar starfsemi sem unnin er hjá Samtökum ferðaþjónustunn- ar, Ferðamálastofu og Íslandsstofu. Klasinn mun stuðla að auknu sam- starfi við þessa aðila og aðra. Kristín segir að til viðbótar við þá kjarnaaðila sem komi að stofn- un klasans þá hafi opinberir aðilar verið þátttakendur. „Og svo stuðn- ingsaðilar við greinina, eins og bankarnir, kortafyrirtæki, verk- fræðistofur, endurskoðunarskrif- stofur, lögfræðiskrifstofur og fl eiri.“ Hún segir að bankarnir, í það minnsta Íslandsbanki, hafi séð heilmikinn ávinning af því að vera aðilar að þessu klasasamstarfi sem stuðningsaðilar við greinina. „Þetta er samræðuvettvangur og þarna er búið að vinna að mörgum verkefn- um þar sem við höfum fengið bæði aukin tengsl við aðila í greininni og líka aukna þekkingu á bæði atvinnu- greininni og því umhverfi sem þess- ir aðilar starfa í,“ segir Kristín. Þetta hafi til að mynda hjálpað bank- anum að skilja sína viðskiptavini betur og átta sig á þörfum þeirra. Þannig verði til nýir þjónustuþætt- ir til að mæta þörfum þessara við- skiptavina. Hvernig hefur bankinn fundið helst fyrir þessari aukningu sem hefur verið í ferðaþjónustu á síð- ustu árum? „Til að mynda hefur töluverður hluti af vexti lánasafns bankans komið til vegna ferðaþjónustunnar og við sjáum áframhald þar á. Ekki bara í formi útlána heldur einnig í annarri þjónustu. Það eru til dæmis þættir sem snúa að viðskiptabanka- þjónustu, verkefna- og tækjafjár- mögnun, ráðgjöf og gjaldeyrisvið- skiptum og áhættuvörnum þar sem til að mynda þessir aðilar eru fl est- ir með tekjur í erlendri mynt en kostnað í íslenskum krónum,“ segir Kristín. Hún segir að þessi aukna þekking skili sér inn í bankann og auðveldi allar ákvarðanir varðandi lánveitingar til dæmis. Hún segir að þetta hafi aukið þekkingu bank- anna á atvinnugreininni. „Ef maður horfi r á síðustu tvö árin sem klas- inn hefur verið starfandi, þá hafa verið ákveðnir vinnuhópar starf- andi undir klasanum sem hafa verið að einblína á ákveðin verkefni. Þar hefur til dæmis bankinn sett starfs- menn í þessa vinnuhópa. Þannig að þekkingin skilar sér þaðan inn í bankann,“ segir hún. Þessi niður- staða endurspegli þörfi na á sam- ræðu og samvinnu þessara ólíku hagsmunaaðila. Markmið að efla nýsköpun „Það markmið sem verður lögð megináhersla á er að efl a nýsköpun í atvinnugreininni. Önnur verkefni eru að halda áfram að efl a samvinnu og samstarf. Stuðla að aukinni fag- mennsku og gæðum í greininni og efl a innviði ferðaþjónustunnar. Þetta eru þau meginmarkmið sem verður lögð áhersla á,“ segir Kristín. Sævar bætir því við að það sé mjög mikilvægt fyrir ferðaþjón- ustuna, með fjölgun ferðamanna, að það sé stunduð virk vinna við nýsköpun og stuðlað sé að nýjum hugmyndum sem skapa aukið virði. „Að hverfa frá grunnþáttum, að selja einfalda þjónustu,“ segir Sævar. Hvað meinarðu með nýsköpun og hvar stöndum við í samanburði við önnur lönd? „Við sjáum að með tilkomu auk- inna samskipta skapandi greina við ferðaþjónustu hefur margt breyst til hins betra,“ segir Sævar. Hann segir til dæmis að þeir markaðir, sem hafi verið settir upp í Hörpu og víðs vegar um land allt, séu vísar að þeirri nýsköpun sem er komin af stað og ákveðinn grunnur sem þyrfti að taka lengra. „Það þarf að innleiða nýsköpun inn í fyrirtækin, með nýjum vörum, nýjum aðferð- um og leiðum til að ná til framtíðar- viðskiptavina,“ segir Sævar. ÚTTEKT Jón Hákon Halldórsson jonhakon@frettabladid.is Til að mynda hefur tölu- verður hluti af vexti lánasafns bankans komið til vegna ferðaþjónustunnar og við sjáum áfram- hald þar á. Björgólfur Jóhannsson Icelandair Group Davíð Björnsson Landsbankinn Eggert Benedikt Guðmundsson N1 Friðrik Pálsson Hótel Rangá Grímur Sæmundsen Bláa lónið Kristín Hrönn Guðmundsdóttir Íslandsbanki Sigurhans Vignir Valitor Rannveig Grétarsdóttir Elding Hvalaskoðun Steingrímur Birgisson Höldur – Bílaleiga Akureyrar Sævar Skaptason Ferðaþjónusta bænda ÞESSIR SKIPUÐU FAGRÁÐ FERÐAKLASANS Auka samvinnu á sviði ferðamála Á morgun verður Íslenski ferðaklasinn formlega stofnaður. Hugmyndin er að styrkja uppbyggingu greinarinnar enn frekar og efla samkeppnishæfni. Mikilvægt að efla nýsköpun í greininni og auka þannig verðmætasköpun. BREIÐUR VETTVANGUR Rósbjörg Jónsdóttir, Sævar Skaptason, Kristín Hrönn Guðmundsdóttir og fleiri hafa átt með sér óformlegt samstarf frá haustinu 2012. Á morgun verður það starf gert formlegra á stofnfundi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1 0 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 1 7 -1 C 3 8 1 4 1 7 -1 A F C 1 4 1 7 -1 9 C 0 1 4 1 7 -1 8 8 4 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.