Fréttablaðið - 11.03.2015, Qupperneq 28
| 8 11. mars 2015 | miðvikudagur
„Þarf þessa kaupauka yfi rhöfuð?
Hvað er svona sérstakt við störf
í þessari grein að það þurfi kaup-
auka. Af hverju þurfa starfs-
menn í bönkum frekar bónusa
en kennarar, hjúkrunarfræðing-
ar eða læknar?“ spyr Steingrím-
ur J. Sigfússon, fyrrverandi fjár-
málaráðherra, vegna frumvarps
um breytingar á lögum um fjár-
málafyrirtæki sem nú liggur
fyrir Alþingi.
Í 25. og 26. grein frumvarpsins
er kveðið á um heimildir Fjár-
málaeftirlitsins til þess að setja
reglur um breytileg starfskjör,
eða kaupauka. Jón Þór Sturlu-
son, aðstoðarforstjóri Fjármála-
eftirlitsins, segir að fyrirmynd-
ir slíkra reglna séu mun mótaðri
en ætla mætti í fyrstu því að
Fjármálaeftirlit Evrópusam-
bandsins (EBA) sem Fjármála-
eftirlitið hefur áheyrnaraðild að
hafi gefi ð út tæknistaðla og birt
drög að leiðbeiningum um fram-
kvæmd viðkomandi ákvæða í
svokallaðri CRDIV-tilskipun.
Fyrrnefnd ákvæði í frumvarp-
inu taka að miklu leyti mið af
þeirri vinnu.
Samkvæmt lögum sem sam-
þykkt voru frá Alþingi árið 2010
var fyrirtækjum gert heimilt að
greiða kaupauka að hámarki 25
prósent af föstum launum. Í til-
skipun Evrópusambandsins er
aftur á móti gert ráð fyrir að
kaupauki geti verið 100 prósent
af föstum launum og hluthafa-
fundur geti samþykkt að hækka
það upp í 200 prósent. Stein-
grímur segist feginn því að
frumvarpið sem liggur nú fyrir
Alþingi geri ekki ráð fyrir því
að hækka þetta þak. Stjórnvöld
hafa svigrúm til þess að fylgja
ekki tilskipun EBA varðandi
þetta atriði og setja strangari
reglur. Geri þau það ekki munu
þau hins vegar þurfa að skýra
fyrir þeim hvers vegna.
Steingrímur segir það þó mis-
ráðið að samkvæmt frumvarpinu
er gert ráð fyrir að einungis til-
teknir lykilstjórnendur og þeir
sem geti komið að ákvarðana-
töku eigi rétt á kaupauka. „Þann-
ig að þetta er ekki bara þak yfi r
alla starfsmenn fjármálafyrir-
tækja eins og hefur verið og er.
Eins fi nnst mér það líka ámælis-
vert að þeir sem sinna innra eft-
irliti og regluvörslu inni í bönk-
unum geta farið yfi r á kaupauka
samkvæmt þessu, en í gildandi
lögum er það bannað,“ segir
Steingrímur. Um þessa síðustu
athugasemd Steingríms segir Jón
Þór: „Menn geta haft sínar skoð-
anir á því hvort það sé heppilegt
eða ekki en þetta er aðlögun að
evrópsku regluverki.“
Þá segir Jón Þór að Fjár-
málaeftirlitið líti það jákvæð-
um augum að í regluverki EBA
hefur verið betur lýst hvernig
skuli horfa á mismunandi form
af kaupauka. „Þarna er farið vel
yfi r sviðið og reynt að samræma
framkvæmdina út frá því hvaða
form af umbun er verið að veita.
Hvort það sé í formi kaupréttar,
eða einhvers konar hlutabréfa-
eignar, eða annarra bónusa sem
fylgja einhvers konar reikni-
formúlu og svo framvegis. Það á
ekki að vera grundvallarmunur
á meðferðinni,“ segir Jón Þór.
Þá séu í regluverki EBA ákvæði
um frestun á greiðslum bónusa.
Útgreiðslu á ákveðnum hluta
kaupauka verður að fresta í þeim
tilgangi að skapa ekki of sterka
skammtímahvata. „Það verð-
ur að vera komin reynsla á það
að viðkomandi
grundvöllur
bónussins sé
viðvarandi,“
segir Jón Þór.
jonhakon@
frettabladid.is
Menn geta haft
sínar skoðanir
á því hvort það sé
heppilegt eða ekki en
þetta er aðlögun
að evrópsku
regluverki.
Jón Þór Sturluson,
aðstoðarforstjóri FME
Hvað er
svona
sérstakt
við þessi störf að það
þurfi kaupauka.
Steingrímur J. Sigfússon,
fyrrverandi fjármálaráðherra
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfi s-
og auðlindaráðherra, skipaði Sig-
ríði Auði Arnardóttur í embætti
ráðuneytisstjóra í byrjun mán-
aðarins. Sigríður Auður, sem er
með embættispróf í lögfræði og
hdl., hefur starfað í ráðuneyt-
inu frá árinu 1998 og gegnt þar
embætti skrifstofustjóra frá
árinu 2003, á skrifstofu laga
og upplýsingamála, skrifstofu
laga og stjórnsýslu og á skrif-
stofu umhverfis og skipulags.
Sigríður Auður var staðgengill
ráðuneytis stjóra frá 2007 til 1.
mars 2014 þegar hún var settur
ráðu neytisstjóri til eins árs.
„Starfið er mjög fjölbreytt,
krefjandi og skemmtilegt eins og
umhverfi smálin eru í eðli sínu.
Umhverfi smálin eru svo samof-
in okkur öllum og því hafa fl estir
skoðanir á þeim og þeim fylgja
oft miklar tilfi nningar. Ekki eru
nú allir alltaf sammála hvaða
leiðir eigi að fara til að ná sett-
um markmiðum, en mikilvægast
er að leita farsælla lausna sem
hægt er að framfylgja. Samráð
og samvinna eru lykilþættir í
starfi nu og grundvallaratriði að
hlusta vel á öll sjónarmið. Til að
ná raunverulegum árangri þurf-
um við að leggja okkur fram við
að eiga samtal við almenning,
hagsmunaðila og atvinnulífi ð. Við
hér í ráðuneytinu gætum mikil-
vægra auðlinda, sem eru náttúr-
an og umhverfi okkar,“ segir Sig-
ríður Auður um starf sitt.
Sigríður segir að sér hafi allt-
af fundist gaman að starfa við
umhverfi smálin og í stjórnsýsl-
unni. „Ég man bara ekki eftir
einum degi í starfi sem mér
hefur leiðst, enda alltaf nóg að
gera, það má segja að það sé
aldrei dauð mínúta. Það gerir
fjölbreytnin í starfi nu og alltaf
einhver mál sem þarf að bregð-
ast fl jótt við. Það er vandfund-
inn lífl egri vinnustaður, en það
að vinna í ráðuneyti felur í sér
að takast á við ögrandi verkefni.
Ég er afskaplega heppin með
samstarfsfólk í ráðuneytinu, hér
er mikill mannauður, fólk með
mikla reynslu, menntun og þekk-
ingu og góð samvinna þar sem
allir hjálpast að,“ segir hún.
Sigríður hefur mikinn áhuga á
fólki og hefur gaman af að stúd-
era fólk, hvað býr að baki orðum
og gjörðum. „Þetta er því kjörið
starf fyrir mig enda felur það í
sér að hitta fólk úr ýmsum áttum
með ólíkan bakgrunn og mis-
munandi sjónarmið, sem hefur
miklu að miðla,“ segir hún.
Sigríður segir áhugamálin
m.a. lúta að starfi nu sínu. „En
utan vinnu er það að ferðast um
landið okkar, útivist af ýmsu
tagi, eins og skíði, golf og göng-
ur með hundinn minn sem lætur
mig sannarlega vita ef ég slaka á
þar. Samvera og spjall með góðu
fólki er það sem gefur mér mest,
svo má ekki gleyma líkamsrækt-
inni, ekki síst fyrir sálina, það er
ekkert betra en að byrja daginn
í ræktinni með góðum vinum,“
segir hún.
jonhakon@frettabladid.is
Best að byrja daginn í
ræktinni með vinum
Sigríður Auður Auðunsdóttir var á dögunum skipuð ráðuneytis-
stjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Í frítíma sínum kýs
hún að ferðast um landið og stunda útivist af ýmsu tagi.
MIKILL ÁHUGI Á VINNUNNI Sigríður Auður segir að á vettvangi vinnunnar hitti hún fyrir margt
fólk og hún hafi gaman af að stúdera fólk, hvað býr að baki orðum og gjörðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í fyrsta lagi er hún frábær félagi, hvort sem er í leik
eða starfi. Ég starfaði með henni í fimmtán ár. Hún var
staðgengill minn í sjö ár í ráðuneytinu. Hún er mjög góð
í mannlegum samskiptum. Hún stjórnaði skrifstofu hjá
mér og gerði það mjög vel og hélt góðum liðsanda á
skrifstofunni hjá sér. Hún er lögfræðingur og hefur mjög
faglegan metnað en samt alltaf mjög stutt í léttleikann
hjá henni. Hún er mikill stuðbolti í partíum. Ég myndi segja að helsti galli,
þótt sumir myndu telja það kost, að hún á til að vera helst til samviskusöm.
Magnús Jóhannesson, framkvæmdastjóri Norðurskautsráðsins.
Sigríður eða Sigga, eins og ég er vön að kalla hana,
er yndisleg, klár og skemmtileg vinkona sem ég hef
þekkt síðan við vorum fimm ára gamlar. Hún er mikill
gleðipinni, góður gestgjafi og er dugleg að bjóða fólki
heim til sín. Hún hefur gott innsæi, er mikill pælari og
fyrir vikið getur hún oft verið utan við sig sem á köflum
er mjög fyndið. Sigga er skapgóð en getur líka verið
mjög beinskeytt og ákveðin ef svo ber undir. Hún er ráðagóð, traust og
góð manneskja sem alltaf er gott að eiga að.
Sigríður Guðrún Guðmundsdóttir æskuvinkona.
STUÐBOLTI Í PARTÍUM
Í samræmi við evrópskt regluverk
Hugmyndir um kaupaukakerfi sem finna má í frumvarpi um breytingar að lögum um fjármálafyrirtæki byggjast á
evrópskri fyrirmynd. Fyrrverandi fjármálaráðherra spyr hvort bankastarfsmenn þurfi yfirhöfuð kaupauka.
BANKARNIR Fyrstu umræðu um frumvarp um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki er lokið. Frumvarpið er núna í nefnd. Ákvæði í frum-
varpinu sem lúta að breytilegum starfskjörum taka mið af evrópsku regluverki.
Ég man bara
ekki eftir
einum degi í starfi
sem mér hefur leiðst,
enda alltaf nóg að
gera.
1
0
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
1
7
-2
1
2
8
1
4
1
7
-1
F
E
C
1
4
1
7
-1
E
B
0
1
4
1
7
-1
D
7
4
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K