Fréttablaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 36
11. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 20 „Ég ætla að vera með dagskrá til heiðurs bandarísku djass- söngkonunni, tónskáldinu og baráttukonunni Abbey Lincoln,“ segir Guðlaug Ólafsdóttir söng- kona um framlag sitt á tón- leikum Jazzklúbbsins Múlans í kvöld. Hún mun koma þar fram með hljómsveit sinni, ásamt Kristbirni Helgasyni og kvart- ett hans sem reyndar ríður á vaðið með brasilíska tónlist og lög úr amerísku söngbókinni. Tónleikarnir eru í Björtuloftum í Hörpunni og hefjast klukkan 21. Sungið á Björtuloft um Söngvarakvöld Múlans verður á Björtuloft um í kvöld. DJASSSÖNGKONAN Guðlaug Dröfn kemur fram með hljómsveit. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Þetta er bókin sem ekki varð. Úrval mynda sem ekki fengu að vera með í bókinni Reykjavík sem ekki varð en fá nú sitt tæki- færi á HönnunarMars,“ útskýrir Anna Dröfn Ágústsdóttir sagn- fræðingur þegar forvitnast er um sýninguna í Crymogeu sem opnuð er í dag. Hún tekur fram að Guðni Valberg, eiginmaður hennar, sé arkitekt að sýning- unni en þau hafi skrifað bókina saman. Þriðja prentun af bókinni var að koma út en hún seldist upp fyrir jól. Anna Dröfn er ánægð með viðtökurnar. „Okkur finnst þetta afar skemmtilegt efni og höfum ekki náð að slíta okkur frá því enn þá.“ Þeir sem halda að bygging- ar fæðist fullskapaðar í höfði arkitekta komast að öðru á sýn- ingunni. Meðal mynda þar eru skissur af Hallgrímskirkju og þar sést hugsanaferlið sem Guð- jón Samúelsson, arkitekt hennar, fór í gegnum. Svo eru þar líka myndir af borginni eins og hún er, sem módelin hafa verið sett inn í. Þá getur fólk séð muninn á því hvernig borgin hefði mögu- lega getað orðið og því hvernig útkoman varð. Eða eins og Anna Dröfn segir: „Við setjum skissurnar í sam- hengi við borgina eins og við þekkjum hana.“ gun@frettabladid.is Úrval mynda sem ekki er í bókinni Reykjavík sem alls ekki varð er efni HönnunarMars-sýningar Crymogeu á Barónsstíg 27 sem er í höndum Önnu Drafnar Ágústsdóttur og Guðna Valberg. Í CRYMOGEU „Okkur finnst þetta afar skemmtilegt efni og höfum ekki náð að slíta okkur frá því ennþá,“ segir Anna Dröfn sem hér er með Guðna manni sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HALLGRÍMSKIRKJA Ein af nokkrum skissum Guðjóns Samúelssonar arkitekts af Hallgrímskirkju, á sýningunni í Crymogeu. HJÁ OKKUR FERÐAST TASKAN ALLTAF FRÍTT MEÐ BÓKAÐU Á UU.IS Ámundi Sigurðsson hönnuður hefur starfað sem grafískur hönn- uður síðustu þrjátíu árin og upp- lifað róttækar tæknibyltingar með tilheyrandi auknum hraða og útbreiðslu grafískrar hönnunar í öllu okkar umhverfi. Í dag verð- ur opnuð yfirlitssýning á verkum Ámunda í Hönnunarsafni Íslands þar sem hann sýnir gríðar lega fjölbreytta og áhugaverða flóru verka sem hann hefur unnið á ferlinum. „Mér finnst þetta fyrst og fremst mikill heiður og er afskap- lega þakklátur fyrir þetta tæki- færi. Ég gerði mér kannski ekki alveg grein fyrir því hvað ég var að fara út í með svona yfirlits- sýningu því undirbúningurinn er búinn að vera alveg gríðar leg vinna. En nú er ég loksins búinn að skera niður og byrjaður að hengja upp.“ Ámundi lítur ekki svo á sem það sé einhver einn ákveðinn stíll sem einkenni hann sem hönn- uð. „Þegar ég fór að taka saman allt þetta efni og gefa mér tíma til þess að skoða þetta þá sá ég í raun marga Ámunda. Ég fór því að velta því fyrir mér hver ég væri í þessu tilliti. Niðurstaðan var að ég er í raun mella og mið- ill. Það er þetta tvennt sem ég geri og tekst á við í mínu starfi frá degi til dags. Með mella þá á ég nú við þann hluta vinnunnar sem er unninn beint eftir pöntun fyrir ákveðna viðskiptavini; aug- lýsingar, merki o.s.frv. Eftir öll þessi ár vil ég meina að ég sé nú orðinn nokkuð góð mella – góður við mína viðskiptavini og svo kem ég með ný trikk handa þeim af og til. Svo er það stundum þannig þegar maður er í leitinni að hug- myndum þá fer hugurinn svolít- ið til hliðar og þá kemur einhver í gegn. Ég held að þetta sé svona einhvers konar flæði sem er þarna fyrir ofan okkur og þeir sem eru að gera góða hluti virka þá oft eins og miðlar. Það hefur nú tekið mig drjúg- an tíma að þroskast og læra að treysta. Þora að gefa sér tíma til þess að horfa á það sem maður telur kannski til mistaka því þá reynast þar oft björtustu gim- steinarnir. Til þess að það gerist þarf maður að slaka á og leyfa þessu að koma. Ef þetta á að ganga upp verður maður að láta af allri meðvirkni við viðskiptavininn og fylgja því sem maður trúir á. Þannig veiti ég miklu betri þjón- ustu með því að skila margfalt betra verki.“ magnus@frettabladid.is Ég er mella og miðill Hönnunarsafn Íslands efnir til sýningar á hönnun Ámunda Sigurðssonar. ÞAKKLÁTUR Ámundi Sigurðsson hefur á orði hversu þakklátur hann sé fyrir það tækifæri að fá að skoða feril sinn með þessum hætti og leyfa öðrum að njóta þess með honum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MENNING Til þess að það gerist þarf maður að slaka á og leyfa þessu að koma. 1 0 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 1 7 -0 8 7 8 1 4 1 7 -0 7 3 C 1 4 1 7 -0 6 0 0 1 4 1 7 -0 4 C 4 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.