Fréttablaðið - 30.03.2015, Síða 18

Fréttablaðið - 30.03.2015, Síða 18
FÓLK|HEIMILI FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir STÓLL OG BORÐ „The Lazy Butler er ætlað að vera persónulegt rými á sama hátt og kist- illinn var áður. Það má nota bæði sem stól og borð, hægt er að hengja föt á það sem og geyma í því persónulega muni. Ljósastaur- inn er mín tenging við þá framþróun sem fylgdi iðnbylt- ingunni.“ Það gekk ótrúlega vel á Mars-inum, ég var því miður ekki sjálfur viðstaddur en var með trygga bakhjarla sem stóðu sýn- inguna fyrir mig. Epal tók húsgagnið í framhaldinu í sölu sem er mikill heiður, þetta er háklassa búð,“ segir Hjalti Axelsson vöruhönnuður en hann kynnti hirsluna Lazy Butler, eða lata brytann á HönnunarMars á dög- unum. Lazy Butler er smíðaður hér á landi úr sérvöldum viði og sækir Hjalti inn- blásturinn til kistla og kofforta fyrri alda. „Kistillinn er merkilegt fyrirbæri,“ segir Hjalti. „Þegar fólk flutti úr sveitunum til borgarinnar á tímum iðnbylt- ingarinnar á árunum 1760 til 1870 tók að fjölga í borg- unum og þær stækkuðu óðum. Mér fannst áhuga- vert að skoða hvaða hluti fólkið tók með sér og hvernig breytingin frá bónda í borgara breytti þörfum og lifnaðarháttum einstaklings- ins. Kistillinn er persónu- legasti hluturinn sem fólkið úr sveit- unum hafði með sér og var ein verð- mætasta eign þeirra og gegndi líka hlutverki borðs og sætis á löngum ferðalögum eða inni á heimilinu. Koff- ort eru mörg hver til enn þann dag í dag og það segir mikið um mikilvægi hlutarins, hversu mikið var lagt í gæði við smíði þessara gripa. The Lazy Butler, er ætlað að vera persónulegt rými á sama hátt og kistillinn var áður. Það má nota bæði sem stól og borð, hægt er að hengja föt á það sem og geyma í því pers- ónulega muni. Ljósastaurinn er mín tenging við þá framþróun sem fylgdi iðnbyltingunni þegar götur borg- anna urðu upplýstar sem og tenging við heimkomuna að kveikja ljós og hengja af sér. Bakkinn í húsgagninu er ætlaður fyrir það sem við erum með í vösunum til dæmis símann, peninga- veskið og smáaura. Stærra hólfið gæti til dæmis geymt höfuðföt og hanska.“ Hjalti hefur verið búsettur í borg- inni Vín í Austurríki með nokkrum hléum síðustu fimm ár. Þar hefur hann fengist við grafísk verk fyrir bókagerð en skráði sig nýlega sem sjálfstæðan hönnuð og vinnur að eigin verkefnum. „Undanfarið hef ég verið að vinna að stól og sé fyrir mér að kynna hann heima á Íslandi þegar hann verður tilbúinn. Annars er þetta frekar mikið bóhemlíf hér úti, hönnuðir eru lepjandi kaffi á kaffihúsum og hafa lítið að gera, það er offramboð á hönnuðum en mörg framleiðslufyrir- tæki í Evrópu eru hætt. Það þarf að vera svolítið þrjóskur til að standa í þessu, skapa sér sín eigin tækifæri, rétt eins og á Íslandi.“ ■ heida@365.is LATI BRYTINN ÍSLENSK HÖNNUN Hjalti Axelsson starfar sem sjálfstæður vöruhönnuður í Vín í Austurríki. Hann tók þátt í HönnunarMars á dögunum og kynnti húsgagn sem hann byggir á kistlum og koffortum fyrri alda. BÓHEMLÍF Í VÍN Hjalti Axelsson vöruhönnuður segir offramboð á hönn- uðum í Vín sem þambi því kaffi á kaffihúsum borgarinnar. „Það þarf að vera svolítið þrjóskur til að standa í þessu, skapa sér sín eigin tækifæri, rétt eins og á Íslandi.“ MYND/HJALTI AXELSSON NÝTT HÚSGAGN Lati brytinn fékk góðar við- tökur á HönnunarMars- inum og er nú til sölu í versluninni Epal. UNDIR SMÁHLUTINA Undir lokinu er hólfaður bakki sem Hjalti segir henta undir smáhlutina. ● Forsíðumynd Brúðkaups- blaðsins sem fylgdi Frétta- blaðinu á fimmtudag var tekin af Ruth Ásgeirsdóttur hjá Ljósmyndir og list. Hún er af Eyrúnu Birnu Jónsdóttur. LEIÐRÉTT *P re nt m ið lak ön nu n Ca pa ce nt o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu. Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU 2 9 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 5 0 -4 4 8 0 1 4 5 0 -4 3 4 4 1 4 5 0 -4 2 0 8 1 4 5 0 -4 0 C C 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.