Fréttablaðið - 30.03.2015, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 30.03.2015, Blaðsíða 22
Páskar MÁNUDAGUR 30. MARS 20154 Tsoureki er klassískt brauð sem Grikkir baka á páskum. Eggin sem sett eru ofan á brauðið eruð iðulega rauð í Grikklandi en auð- vitað má leika sér með það. Oft er notað krydd sem heitir Mahlab en erfitt getur reynst að nálgast það á Íslandi. Hér er því uppskrift af Foodnetwork að Tsoureki þar sem kryddinu er sleppt. ½ bolli volgt vatn 2 ¼ tsk. þurrger 5 ½ bolli hveiti ½ bolli sykur 1 ½ bolli mjólk 5 msk. ósaltað smjör 1 tsk. fínt salt 2 stór egg léttþeytt (og aukaegg til að pensla brauðið) 2 tsk. möluð fennelfræ ¼ tsk. möndludropar 3 harðsoðin egg (lituð) jurtaolía Blandið gerinu saman við vatnið í hrærivélarskál. Þeyt- ið létt samanvið 1 msk. af hveitinu og 1 msk. af sykri. Hyljið með viskustykki og látið bíða í fimm til tíu mín- útur þar til blandan freyðir. Hitið mjólkina í potti yfir lágum hita í um sex mínútur, takið af hellunni og hrær- ið smjör, afganginn af sykrinum og saltið saman við. Látið kólna í fimm mínútur. Blandið mjólkurblöndunni saman við gerblönduna. Hrærið saman við tvö þeytt egg og bætið smám saman við hveiti, fennel og möndludropum. Aukið hrað- ann á hrærivélinni þar til deigið verður að blautum bolta. Setjið deigið á hveitistráðan flöt. Hnoðið og bætið við hveiti eftir þörfum. Smyrjið skál og setjið deigið ofan í. Hyljið og látið hefast í einn og hálfan tíma á hlýjum stað. Sláið deigið niður og látið hefast á ný í um klukkutíma. Skiptið nú deiginu í þrennt. Rúllið hverjum hlut varlega í 40 cm langa lengju. Setjið á bökunarplötu og fléttið lengjurnar saman og látið þær mynda hring. Lituðu harðsoðnu eggin skal nudda með olíu og þurrka með eldhúspappír. Þrýstið þeim ofan í deigið með jöfnu millibili. Hyljið og látið hefast í klukkustund. Hitið ofninn í 180 gráður, penslið brauðið með eggi og bakið þar til brauðið er gullinbrúnt eða í um 45 mínútur. Látið kólna í hálftíma áður en skorið er í það. Lituðu eggin eru aðeins til skrauts en ekki átu. Grískt páskabrauð Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður er órjúfanleg-ur hluti páskahátíðarinn- ar á Ísafirði og í nágrenni. Hátíð- in hefur verið haldin á hverju ári síðan 2004 og hefur alltaf verið ókeypis inn á hana auk þess sem öll vinna kringum hana er unnin í sjálfboðavinnu. Stemningin er fyrir vikið sérstök og skemmtileg enda allir að skemmta sér á jafn- ingjagrundvelli, hvort sem það eru listamennirnir sjálfir, heima- menn eða gestir segir Birna Jón- asdóttir, rokkstjóri hátíðarinn- ar. „Hér skemmta sér allir saman enda er Aldrei fór ég suður hátíð fólksins. Þar sem ekkert kost- ar inn fer fólk og kemur þegar því hentar andrúmsloftið er ró- legt og heimilislegt. Ef ekki væri fyrir óbilandi kraft sjálfboðaliða, dyggan stuðning styrktaraðila og vilja tónlistarfólks þá væri hátíð- in ekki söm.“ Flestar v insælustu hljóm- sveitir og listamenn þjóðar- innar hafa komið fram á hátíð- inni undanfarin ár, meðal ann- ars Páll Óskar, Retro Stefson, Hjaltalín, Hjálmar, Kaleo, Bubbi Morthens, Nýdönsk auk heima- mannsins Mugi sons. Auk vin- sælla listamanna hefur fjöldi ungra og efnilegra sveita komið þar fram í bland við listamenn frá Vestfjörðum og þar kennir sannarlega ýmissa grasa. Tónlistarmaðurinn Mugison og faðir hans, Papamug, eru upp- hafsmenn hátíðarinnar en hug- mynd kviknaði yfir bjórglösum í útlöndum sumarið 2003. Næstu páska var fyrsta hátíðin haldin og síðan hefur hún ekki stopp- að. „Það er góð blanda af heima- mönnum, brottfluttum Vestfirð- ingum og fólki sem á engar ættir að rekja hingað vestur sem sækir hátíðina. Fjölbreytt tónlistaratriði verða til þess að fólk á öllum aldri sækir hana, amma og barnabarn standa hlið við hlið, dilla sér og njóta tónlistarinnar.“ Eftir að hafa starfað svo lengi að skipulagi hátíðarinnar eru margar góðar minningar sem standa upp úr að sögn Birnu. „Oft eru það at- riðin sem maður þekkir lítið til sem grípa mann algjörlega eða stjörnur frá æsku sem koma og rifja upp fyrir manni hvers vegna þær voru töff og eru það enn. Það sem situr kannski einna mest eftir í minningunni er að sitja um há- nótt á gólfinu í stofunni minni í Japan og fylgjast með hátíð- inni í gegnum tölvuna árið 2005. Ég hef sjaldan fengið jafn mikla heimþrá!“ Hátíðin í ár verður með breyttu sniði en nú hefst hún á fimmtu- degi og teygir sig fram á sunnudag. „Upphitunartónleikar verða víðs- vegar um bæinn á fimmtudegi en hátíðin sjálf er sett á föstudaginn með tónleikum í kirkjunni ásamt fleiri viðburðum. Á laugardegin- um er sem dæmi heimkomuhá- tíð, súputónleikar og að sjálfsögðu skemmutónleikarnir okkar. Hátíð- inni lýkur svo á sunnudaginn með fjölbreyttum tónleikum. Í heildina leitumst við eftir þéttari hátíð með meiri rólegheitum baksviðs, aukn- um samfélagskrafti og meira lífi í bænum. Með þessum breytingum vonumst við til þess að enn fleiri finni eitthvað sem kitlar áhuga- svið þeirra og dregur fólk út að hlusta á góða tónlist.“ Allir skemmta sér vel saman Það er jafnan mikið fjör um páskana á Ísafirði en þá fer meðal annars fram tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá 2004 og hana sækir fólk á öllum aldri. Ókeypis er inn og mjög fjölbreyttur hópur listamanna stígur jafnan á svið. Birna Jónasdóttir er rokkstjóri tónlistarhá- tíðarinnar Aldrei fór ég suður. MYND/HELGA LIND MAR Diskókóngurinn Páll Óskar heldur uppi frábærri stemningu hvert sem hann fer. Stemn- ingin er alltaf frábær á hátíðinni og aðsóknin er góð. Nýdönsk spilaði við góðar undirtektir árið 2011. MYNDI/ALDREI FÓR ÉG SUÐUR 2 9 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 5 0 -6 C 0 0 1 4 5 0 -6 A C 4 1 4 5 0 -6 9 8 8 1 4 5 0 -6 8 4 C 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 6 4 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.