Fréttablaðið - 30.03.2015, Qupperneq 52
30. mars 2015 MÁNUDAGUR| MENNING | 20
Fermingargjöf
til framtíðar
Eternity
LED borðlampi
9.990 kr.
lÍs en kus
✓
✓
25 - 50% afsl. af skíðavörum til páska.
Skíðahjálmar og
bakhlífar 30 - 50% afsl.
Gönguskíðabúnaður 30% afsl.
Svigskíðabúnaður
30 - 40% afsl.
Fjallaskíðabúnaður 25% afsl.
PÁSKASPRENGJA
LEIKRIT ★★★ ★★
Fjalla Eyvindur
og Halla
Sýnt í Þjóðleikhúsinu
HÖFUNDUR
JÓHANN SIGURJÓNSSON
LEIKARAR ESTHER TALÍA CASEY, KRISTINN
ÓLI HARALDSSON, NÍNA DÖGG FILIPPUS-
DÓTTIR, ODDUR JÚLÍUSSON, PÁLMI GESTS-
SON, RAGNHEIÐUR STEINDÓRS DÓTTIR,
SIGURÐUR SIGURJÓNSSON, STEFÁN
HALLUR STEFÁNSSON, STEINN ÁRMANN
MAGNÚSSON, TINNA GUNNLAUGSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON
LEIKSTJÓRN STEFAN METZ
LEIKMYND OG BÚNINGAR SEAN MACKAOUI
LÝSING: HALLDÓR ÖRN ÓSKARSSON
TÓNLIST OG HLJÓÐMYND: ELVAR GEIR
SÆVARSSON
Síðasta frumsýning Þjóðleikhúss-
ins á stóra sviðinu þetta leikárið fór
fram á fimmtudaginn. Nú er glímt
við eitt frægasta verk íslenskra
leikbókmennta: Fjalla-Eyvind eftir
Jóhann Sigurjónsson. Í núverandi
mynd Stefans Metz, sem bæði leik-
stýrir sýningunni og sér um leik-
gerðina, kallast verkið Fjalla-
Eyvindur og Halla.
Sagan er kannski flestum kunn, í
stuttu máli eru örlög ekkjunnar Höllu
og ráðsmanns hennar miðpunktur
framvindunnar en flekkótt fortíð
hans á eftir að umturna lífi þeirra
beggja. Nína Dögg leikur þennan
mikla kvenskörung íslenskra leikbók-
mennta en nær ekki afgerandi tökum
á innri togstreitu Höllu. Frammi-
staða hennar er frekar átakalaus
fyrir utan mjög góða spretti strax
eftir hlé þegar Halla og Arnes rekast
á, þá sýnir hún hvers hún getur verið
megnug. Frammistaða Stefáns Halls
er ekki ósvipuð en innri átök og sárs-
auki Fjalla-Eyvindar eru aldrei opin-
beruð á nægilega kraftmikinn hátt.
Ástríðan sem logar á milli Fjalla-
Eyvindar og Höllu verður aldrei
áþreifanleg í leik Nínu Daggar og
Stefán Halls þannig að ákvörðun
hennar um að fylgja honum til fjalla
verður illskiljanleg. Þrátt fyrir til-
raunir til að gera tilhugalíf þeirra
krassandi á sviðinu þá hverfur
spennan um leið og þau fjarlægjast
líkamlega.
Sigurður Sigurjónsson fer með
hlutverk Arnesar og sýnir hversu
djúpur og ljóðrænn texti Jóhanns
getur verið með firnasterkum leik.
Hann sligast eftir sviðinu, íklædd-
ur aleigunni og hræðist ekki útlegð-
ina en bugast að lokum. Hreppstjór-
ann Björn leikur Steinn Ármann
Magnússon og kemur skemmtilega á
óvart, hann er bæði aumkunarverð-
ur og ógnandi, kaldur og kjökrandi
í senn. Leikhópurinn í heild sinni er
sterkur, samansettur af leikurum á
öllum aldri, sumir hoknir af reynslu
og aðrir að taka sín fyrstu skref.
Hin ógurlega íslenska náttúra er
bókstaflega flutt inn á stóra sviðið í
glæsilegu opnunaratriði. Jökullinn
hangir yfir hjónaleysunum alveg frá
byrjun og á vissum augnablikum er
líkt og hann hafi augu. Aftur á móti
er bjargið sem birtist eftir hlé nær
tilgangslaust og vannýtt nema sem
sviðsstáss. Á þennan máta myndast
ósamræmi í annars ágætri leikmynd
Seans Mackaoui. Sama vandamál
má finna í búningunum sem er ein-
hvers konar blanda af nútímafatnaði
og hefðbundnum flíkum, búningur
Arnesar heppnast vel en aðrir, s.s.
leðurjakki Höllu, missa marks.
Elvar Geir Sævarsson sér um tón-
listina sem skortir afgerandi sér-
stöðu en hljóðmyndin hans er virki-
lega vel heppnuð, þá sérstaklega á
lokaspretti sýningarinnar þegar byl-
urinn umlykur eymdarlega parið.
Ljósahönnunin er í höndum Hall-
dórs Arnars Óskarssonar og einstaka
atriði eru gífurlega falleg, t.d. síðustu
augnablik sýningarinnar.
Stefan Metz tekur áhættu með því
að brjóta upp framsetningu verks-
ins en hún borgar sig ekki fyllilega.
Texti Jóhanns er gríðarlega sterkur,
sérstaklega síðustu tveir þættirnir,
en þeir eru ekki sviðsettir á nægi-
lega dramatískan hátt að þessu sinni.
Ferðalögin út í sal eru undarlegt stíl-
brot sem gera lítið fyrir sýninguna,
þá sérstaklega var sviðsetningin á
byrjun fjórða þáttar þannig að það
dregur gífurlega úr hatrömu tilfinn-
ingastríðinu sem Fjalla-Eyvindu og
Halla heyja sín á milli. Einnig er erf-
itt að sjá ástæður fyrir sviðsetningu
Tótu, barni þeirra tveggja, í brúðu-
formi sem tvær litlar telpur stjórna.
Með þessu móti deyfast tilfinninga-
leg tengsl áhorfenda við stúlkuna en
hennar harmrænu endalok eru samt
sem áður einstaklega vel leyst í eftir-
minnilegu atriði.
Heildarmynd sviðsetningarinnar á
þessu öfluga leikverki er áhugaverð
en Stefan virðist forðast vissa átaka-
punkta í verkinu bæði með stytting-
um á handriti og leikhúslausnum sem
ganga misjafnlega vel upp.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Bjartir punktar í
sviðsetningu og þrumandi endurkoma
Sigurðar Sigurjónssonar ná ekki að
draga sýninguna fram í ljósið.
Átakalítil örlög Fjalla-Eyvindar og Höllu
TÓNLIST ★★ ★★★
Nicole Benedetti og Sin-
fóníuhljómsveit Íslands
Verk eftir Respighi, Mozart og
Hindemith.
Einleikari: Nicola Benedetti.
Hans Graf stjórnaði Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands
Harpa, fimmtudaginn 26. mars
Tónleikar Sinfóníuhljómsveit-
ar Íslands á fimmtudagskvöldið
byrjuðu vel. Fyrstar á dagskránni
voru þrjár Botticelli-myndir eftir
Ottorino Respighi. Eins og titill-
inn gefur til kynna var tónlistin
innblásin af þremur málverkum
meistarans, Vorinu, Vegsömun
vitringanna og Fæðingu Venusar.
Tónlistin var skemmtilega fram
borin af Sinfóníunni. Sú síð-
asta var áhrifamest, þar var því
lýst hvernig ástargyðjan reis úr
hafinu í risavaxinni hörpuskel.
Fyrst heyrðist lágvært muldur úr
strengjunum sem átti auðheyri-
lega að tákna sjávarnið. Svo byrj-
aði músíkin að vaxa, hún var vold-
ug áheyrnar. Hápunkturinn var
tignarlegur, hörpuskelin opnaðist,
gyðjan blasti við í allri sinni dýrð.
Það var svo magnað að maður fékk
gæsahúð.
Til að skapa slíka upplifun verð-
ur hljómsveitin auðvitað að leika
almennilega. Það gerði hún undir
öruggri og smekkvísri stjórn Hans
Graf. Strengirnir, sem mest mæðir
á, voru fallega samtaka og breið-
hljómandi. Stígandin var glæsilega
byggð upp. Öll fínlegu litbrigði
tónmálsins voru fagurlega útfærð,
af nákvæmni og nostursemi.
Leiðin lá niður á við eftir það.
Fimmti fiðlukonsert Mozarts þar
sem Nicola Benedetti var einleik-
ari, var fremur óskemmtilegur.
Tæknilega séð spilaði Benedetti
af yfirburðum. Tónninn í fiðlunni
hennar var þéttur og safaríkur, öll
tónahlaupin skýr og fumlaus. En
túlkunin var dálítið yfirdrifin. Það
var eins og fiðluleikarinn reyndi
að kreista eins miklar tilfinning-
ar úr hverri hendingu og mögulegt
var, í stað þess að leyfa tónlistinni
bara að flæða. Túlkandinn verður
ekki alltaf að GERA svona mikið.
Stundum þarf aðeins að taka egóið
úr umferð og láta tónlistina tala
sjálfa. Þarna á tónleikunum fékk
maður aldrei að njóta Mozarts, ein-
leikarinn þvældist of mikið fyrir.
En hafi Mozart verið þreytandi
var Matthías málari, sinfónía eftir
Paul Hindemith, eins og sterkur
svefnlyfjaskammtur. Rétt eins og
tónlistin eftir Respighi er hún hug-
leiðing um málverk, í þetta sinn
altaristöflu eftir Matthias Grüne-
wald. Hindemith var uppi á fyrri
hluta aldarinnar sem leið og var
mjög flinkur sem tónskáld. Hann
hafði fræðina á hreinu og skapaði
tónsmíðar sem voru fullkomlega
byggðar upp eftir öllum viðeigandi
formúlum. Fyrir bragðið eru þær
einstaklega agaðar og rökfastar,
en það er ekkert fjör í þeim, engin
gleði, ekkert fútt. Tónlistin er svo
þurr að hún er eins og sandpappír.
Hljómsveitin má eiga það að hún
spilaði þetta erfiða verk af fag-
mennsku. Heildarhljómurinn var
fínpússaður og í góðum fókus. En
það er ekki hægt að búa til silki-
poka úr svínseyra. Graf stjórnaði
af röggsemi og hljómsveitin spilaði
af krafti. Engu að síður var þetta
ys og þys út af engu, tóm leiðindi.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Flott tónlist eftir
Respighi, en Mozart var oftúlkaður og
Hindemith var þreytandi þótt hann
væri vel spilaður.
Eins og sandpappír
FJALLA-
EYVINDUR
OG HALLA
Nína Dögg
Filippus-
dóttir, Stef-
án Hallur
Stefánsson
og Sigurður
Sigurjóns-
son í hlut-
verkum
sínum.
NICOLA BENEDETTI
MENNING
2
9
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
5
0
-4
E
6
0
1
4
5
0
-4
D
2
4
1
4
5
0
-4
B
E
8
1
4
5
0
-4
A
A
C
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K