Fréttablaðið - 30.03.2015, Síða 54
30. mars 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 22
Leikkonan Angelina Jolie kom
fram opinberlega í fyrsta sinn
eftir að hún lét fjarlægja eggja-
stokka sína og eggjaleiðara fyrir
rúmum þremur vikum, á Nickel-
odeon Kid’s Choice-verðlaunahá-
tíðinni sem haldin var á laugar-
daginn.
Jolie fór heim með verðlaun sem
uppáhaldsillmennið fyrir hlutverk
sitt í myndinni Male ficent.
Leikkonan, sem kom ásamt
börnum sínum Zahara og Shil oh
Jolie-Pitt, flutti hjartnæma þakk-
arræðu þar sem hún sagðist sjálf
hafa sem barn upplifað að vera
öðruvísi en með tíð og tíma hefði
hún áttað sig á því að það að vera
öðruvísi væri góður eiginleiki og
hún vonaðist til þess að þeir sem
sætu í salnum áttuðu sig á því líka.
Það er gott að
vera öðruvísi
Verðmætasköpun íslensku ullar-
innar hleypur á milljörðum sam-
kvæmt niðurstöðum skýrslunnar
Samfélagsleg þýðing sauðfjárbú-
skapar, sem unnin er fyrir Land-
samband sauðfjárbænda.
Kemur meðal annars fram að
líkleg verðmæta-
sköpun er varð-
a r prjóna -
skap úr ull á
Íslandi öllu
sé á bilinu
tveir til fjórir millj-
arðar ár hvert.
„Við höfum í nógu
að snúast og
markhópurinn
okkar er mjög
blandaður
af Íslend-
ingum og
útlending-
um,“ segir
Bergþóra
Guðnadótt-
ir, eigandi og
hönnuður Far-
mers Market
sem sérhæf-
ir sig í fram-
leiðslu á ullar-
vörum hvers
konar.
Fyrirtækið er eitt það fremsta
á sínu sviði hérlendis og hefur
verið iðið við kolann undanfarin
tíu ár. „Íslenska ullin hefur sína
sérstöku eiginleika svo við notum
hana þegar við á, hún er alltaf
„inni“.“
Ekkert lát virðist vera á
vinsældum ullarvara á
Íslandi og mikil gróska
er í gangi segir Bergþóra.
„Við höfum lagt okkur fram
um að huga vel að nýsköpun í
okkar framleiðslu og það skiptir
máli til að halda okkur gangandi.“
Bergþóra bendir á að aukin
umhverfisvitund hafi góð áhrif
á verslun með íslensku ullina
þa r sem
almenn-
ingur
hrífist af
hreinni
afurð
og segir
hér engu
skipta
hvort sé
horft t i l
innlends
mark-
aðar eða
erlends.
- ga
Sauðkindin hvergi af baki
dottin í verðmætasköpun
Prjónaskapur úr íslenskri ull hefur enn sterka samfélagslega þýðingu í hinu íslenska hagkerfi .
250 g sveppir
130 g beikon
1 laukur
2 dl sýrður rjómi
2 dl rjómi
½ grænmetisteningur
salt og pipar
smá af cayenne-pipar (má sleppa)
Skerið sveppina í fernt, hakkið
laukinn og skerið beikonið í bita.
Hitið smjör á pönnu og steikið
sveppina þar til þeir eru komnir
með góða steikingarhúð, bætið
lauk og beikoni á pönnuna og
steikið áfram þar til beikonið er
fullsteikt og laukurinn orðinn
mjúkur. Hellið rjóma og sýrðum
rjóma yfir og látið sjóða við vægan
hita í nokkrar mínútur. Smakkið
til með grænmetiskrafti, salti
og pipar. Endið á að setja örlítið
af cayenne-pipar fyrir smá hita.
Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum á
pakkningu. Blandið pastanu saman
við pastasósuna og hrærið smá
af pastavatninu saman við. Það
skemmir ekki fyrir að rífa parmesan
yfir áður en rétturinn er borinn
fram en það má þó vel sleppa því.
Dásamlega gott á báða vegu.
Uppskrift fengin af Ljufmeti.com
Pasta í rjómasósu með beikoni og sveppum
Fljótlegur pastaréttur sem er líka einfalt og ódýrt að útbúa, eiginleikar sem koma sér vel í upphafi vikunnar.
➜ Það skemmir ekki fyrir
að rífa parmesan yfir áður
en rétturinn er borinn fram
en það má þó vel sleppa
því. Dásamlega gott
á báða vegu.
FYRIRMYND Angelina Jolie flutti hjart-
næma og uppbyggilega þakkarræðu við
Nickelodeon Kid’s Choice-verðlauna-
veitinguna. NORDICPHOTOS/GETTY
ÚR NÓGU AÐ MOÐA Bergþóra Guðnadóttir segir prjónaskap bjóða upp á mikla
möguleika. Farmers Market er eitt okkar fremsta fyrirtæki á þessu sviði.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SVIÐSMYNDAGREINING
Úr höftum
með evru?
31. mars | kl. 8:30 | Borgartúni 27
Morgunverðarfundur um
sviðsmyndir við losun
fjármagnshafta. Hvernig yrði
umhverfið ef höftin yrðu losuð
samhliða upptöku evru?
Skráning og frekari
upplýsingar á vefsíðu KPMG
kpmg.is
Popphljómsveitin Destiny’s Child
kom saman, öllum að óvörum, í
fyrsta skipti í rúm tvö ár, á þrí-
tugustu Stellar Gospel-tónlistar-
verðlaununum á laugardagskvöld.
Beyoncé Knowles, Kelly Row-
land og Michelle Williams komu
saman og fluttu lagið Say Yes
sem tilnefnt var til þrennra
verðlauna á Stellar Gospel-verð-
launahátíðinni.
Knowles og Rowland unnu með
Williams að laginu og tónlistar-
myndbandi við það en lagið er að
finna á plötunni Journey to Free-
dom sem Williams gaf út árið
2014.
Síðast kom hljómsveitin saman
árið 2013 í hálfleikssýningu
Super Bowl.
Örlagabarnið
tók lagið
FLOTTAR Hljómsveitin var starfandi frá
árinu 1990 til ársins 2006 og átti ófáa
smelli. NORDICPHOTOS/GETTY
LÍFIÐ
2
9
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
5
0
-6
2
2
0
1
4
5
0
-6
0
E
4
1
4
5
0
-5
F
A
8
1
4
5
0
-5
E
6
C
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K