Skessuhorn - 28.11.2007, Blaðsíða 45
37 MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER
Cheyenne – Ný verslun,
fullt af frábærum fatnaði fyrir unga
og hressa fólkið
Frábær tilboð alla vikuna
Gallabuxur frá kr. 3.590
Bolir frá kr. 1.000
Peysur frá kr. 2.500
Jakkar frá kr. 4.990
Akranes – Dalbraut 1 s: 561-4200
Reykjavík – Laugavegur 86 s: 561-4100
Opið virka daga 11-18 Laugardaga 11-17
Við minnum á jólamarkaðinn okkar í Gallerí
Álfhóli á Bjarteyjarsandi um helgina.
Opið verður laugardag og sunnudag milli
klukkan 13.00 og 18.00.
Til sýnis og sölu eru fjölbreyttir munir og
einnig er boðið upp á ekta heitt súkkulaði, kaffi
og nýbakað góðgæti.
Þá munu þverflautunemendur úr Tónlistarskóla
Akraness leika hugljúf jólalög fyrir gesti.
Njótum aðventunnar á yfirvegaðan
og þægilegan hátt.
Vonumst til að sjá sem flesta!
Jólakveðja frá aðstandendum Álfhóls
www.bjarteyjarsandur.is
Utan við sig
Það gerðist enn og aftur fyrir
nokkru síðan að maður nokkur
af Skaganum settist inn á bar til
að fá sér nokkra létta. Þegar hann
var búinn að fá nóg og ætlaði
að standa upp af barstólnum,
datt hann beint á andlitið. Hann
reyndi að standa upp, en datt aftur.
Þá skreið hann út að hurðinni.
Þar hóf hann sömu tilraun sem
mistókst. Maðurinn skreið út
og ákvað að fara bara á fjórum
fótum þessa 600 metra sem voru
heim til hans. Við útidyrnar
heima hjá sér reyndi hann eina
ferðina enn að standa upp með
sama árangri og fyrr, hann datt.
Því skreið hann bara upp stigana,
upp í svefnherbergið. Datt beint
á andlitið ofan á hjónarúmið og
steinsofnaði. Morguninn eftir
vaknaði hann við að konan hans
öskraði: „Ómar varstu á fylliríi
eina ferðina enn?“ „Já,“ heyrðist
umlað undir sænginni. „Þeir
voru að hringja frá barnum, þú
gleymdir hjólastólnum aftur.“
Hvað ungur
nemur, gamall
temur
Ungur maður sem réði sig sem
leiðbeinanda í gagnfræðaskóla úti
á landi var orðinn ansi þreyttur
á nemendum sínum eftir fyrstu
vikuna. Í einum tímanum, þegar
honum þótti börnin sýna vægast
sagt takmarkaða færni, sagði
hann: „Mig langar að biðja alla þá
sem eru heimskir að standa upp.“
Enginn stóð upp og eftir mínútu
þögn sagði leiðbeinandinn: „Hvað
er að gerast, eruð þið öll orðnir
vitringar?“ Þá stóð einn ungur
piltur upp og kennarinn spurði:
„Svo þú telur þig heimskan?“
„Neei,“ svaraði drengurinn. „Ég
bara vorkenndi þér að standa
þarna einn.“
Hefndin er sæt
Forstjórafrú lenti í eldsvoða
og brenndist. Andlit frúarinnar
fór verst og þurfti að græða nýtt
skinn á hana. Hún var ekki með
nóg skinn sjálf til ígræðslunnar
svo bróðir hennar sem jafnframt
er bílstjóri (sendisveinn)
forstjórans, eiginmanns hennar,
bauðst til að gefa skinn. Það
gekk upp og var tekið skinn af
rasskinn bróðursins og grætt á
kinnar forstjórafrúarinnar. Þegar
kinnarnar voru grónar kom
forstjórafrúin til bróður síns og
vildi launa honum greiðann en
hann sagði: „Þú ert sko margbúin
að launa mér. Mér er það sérstök
ánægja að sjá manninn þinn kissa
þig á kinnarnar. Ég þarf ekki
meira.“
Tvær gjafir
Þegar Guð hafði skapað Adam
og Evu sagði hann: „Nú á ég tvær
gjafir eftir handa ykkur, kúnstina
að pissa standandi og..“ „Hana
vil ég fá!“ hrópaði Adam. Eva
kinkaði kolli játandi og Adam
fékk gjöfina... Adam skríkti af
kæti, hljóp um allan lystigarðinn,
pissaði á trén upp og niður, þaut
niður á strönd og pissaði allskyns
munstur í sandinn... Guð og Eva
fylgdust kímin með hamingju
Adams og Eva spurði „hver er hin
gjöfin?“
Guð svaraði:
„Heilinn, Eva... heilinn..“
Ekki fleira úr sveitinni að sinni.
Kveðja, Birna.