Skessuhorn


Skessuhorn - 25.06.2008, Side 7

Skessuhorn - 25.06.2008, Side 7
Írskir dagar á Akranesi Taktu helgina frá og kíktu á Skagann! Írskir dagar verða haldnir hátíðlegir á Akranesi dagana 4. - 6. júlí n.k.. Þessi magnaða hátíð er ein stærsta fjölskylduhátíð sem haldin er á Íslandi og laðar til sín þúsundir gesta í heimsókn á Skagann á hverju ári. Íbúar bæjarins leggja mikinn metnað í hátíðina og skreyta bæinn hátt og lágt með fánum, blöðrum og veifum í írsku fánalitunum - að sjálfsögðu! Brottfluttir Skagamenn flykkjast á fornar slóðir til að taka þátt í gleðinni - en auðvitað eru allir boðnir velkomnir á Írska daga! Ekki missa af þessari frábæru helgi á Akranesi! Verið velkomin á Írska daga 2008! www.irskirdagar.is 4.-6. júlí 2008 Ertu með rautt hár? Mundu þá að skrá þig í keppnina um rauðhærðasta Íslendinginn! Glæsileg verðlaun í boði! Vertu með á markaðnum! Tryggðu þér borð og leyfðu sölumanninum í þér að njóta sín! Fimmtudagur 3. júlí Gamli vitinn á Breið - ljósmyndasýning Friðþjófs Helgasonar. Á sýningunni, sem haldin er inni í gamla vitanum á Breiðinni eru myndir sem Friðþjófur hefur tekið á Breiðinni á síðustu mánuðum. Listasetrið Kirkjuhvoll - Sumarsýning Kirkjuhvols 2008! Sýning á verkum frá Listasafni ASÍ. Þarna má m.a. sjá dýrgripi eftir listamenn á borð við Jóhannes S. Kjarval, Ásgrím Jónsson og Jón Stefánsson. 15:00 - 17:00 Húsasmiðjan býður Skagamönnum í grill og gleði. Kíktu á svæðið og fáðu þér eina með öllu! Föstudagur 4. júlí Jet Ski leiga á Langasandi - hefurðu prófað þotuskíði? Ef ekki - er þá ekki kominn tími til? Ljósmyndasýning Ljósmyndasafns Akraness með myndum frá Írskum dögum 2007 opnar í Upplýsingamiðstöðinni í Skrúðgarðinum. 14:00-18:00 Markaðsstemning í Akraneshöllinni. 14:00-18:00 Tívolí á Jaðarsbökkum - Frábært tívolí fyrir börn á öllum aldri! 20 metra fallturn, hringekjur klessubilar og hoppkastalar. 14:00-18:00 Írskir dagar í miðbænum - stuð og stemning í miðbænum! 15:00 og kl. 16:00 Safnasvæðið að Görðum. Námskeið í keltneskum dönsum. Skráning á staðnum. Götugrillin vinsælu um allan bæ um kvöldið. 22:00 - 24:00 Kvöldvaka á Kirkjubraut! Ný dönsk og Eurobandið! Ballstemning í miðbænum fram eftir kvöldi! Ekki missa af þessum frábæru hljómsveitum í hörkustuði á sviðinu í miðbænum! Á milli hljómsveita verður boðið upp á tískusýningu frá Ozone. Opið í Ozone frá kl. 20:00 - 24:00! Laugardagur 5. júlí Fjölbreytt skemmtidagskrá um allan bæ! Akraneshlaupið Ræst verður frá Akratorgi. Kl. 10:30 - 21 km hlaup, kl. 11:00 - 10 km hjólreiðar og kl. 11:30 - 10 hlaup, 3.5 km skemmtiskokk, 2 og 3.5 km ganga. Útsýnisflug með þyrlu frá þyrlupallinum við íþróttavöllinn! Jet Ski leiga á Langasandi - hefurðu prófað þotuskíði? Ef ekki - er þá ekki kominn tími til? 10:00-12:00 Sandkastalakeppni á Langasandi. Glæsilegir vinningar í boði - láttu sköpunarþörfina fá útrás! Taktu fram skóflu og fötu og mættu á Langasand! 11:00-13:00 Dorgveiðikeppni á "Stóru bryggjunni" (Aðalhafnargarði) í boði Módel á Akranesi. Glæsilegir vinningar í boði! 11:00-18:00 Tívolístemning á Jaðarsbökkum allan daginn. Frábært tívolí fyrir börn á öllum aldri! 20 metra fallturn, hringekjur klessubilar og hoppkastalar. 10:00 -18:00 Risamarkaður í Akraneshöllinni! Ef þú vilt selja eða kaupa eitthvað þá er þetta rétta augnablikið og rétti staðurinn! Minnum sérstaklega á stórbókamarkað Bókasafns Akraness. 13:00 "Bylgjan í beinni" frá Akranesi. 15:00 Rauðhærðasti Íslendingurinn á Jaðarsbökkum! Hin árvissa keppni um Rauðhærðasta Íslendinginn fer fram á Jaðarsbökkum - hver verður rauðhærðastur í ár! Glæsilegur ferðavinningur í boði - ferð fyrir einn til borgar rauðhærða fólksins, Dublin á Írlandi! Rauðhærðir keppendur mæti kl. 14:45 í Akraneshöllina þar sem dómnefnd mun meta hvern lokk og úrslit verða kynnt kl. 15:00. Skráning á staðnum, á www.irskirdagar.is, í síma 433 1000 eða með tölvupósti: loa@akranes.is. 14:00 Mótorcross á Langasandi - glæsileg sýning, spól og læti frá félögum í Vélhjólaíþróttafélagi Akraness. 14:00 Kraflyftingamót í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. 14:00-16:00 "Hittnasta amman" í körfu á Jaðarsbakkasvæðinu! Áfram amma! Skráning á staðnum. Glæsilegir vinningar! Í fyrra mættu um 60 ömmur á víta- punktinn - hvaða amma rústar þessu í ár? Eru engar ömmur utan Akraness? Hvernig er með ömmur úr Hafnarfirði eða frá Hólmavík? Skráning á staðnum, á www.irskirdagar.is, í síma 433 1000 eða með tölvupósti: loa@akranes.is. Götuleikhúsið setur skemmtilegan svip á bæjarlífið á meðan á hátíðinni stendur. 20:30-23:30 Café Mörk - Oran Mór Keltnesk söngveisla þar sem sönghópurinn Oran Mór flytur írskættaðar söngperlur. Lopapeysan 2008 Stærsta og magnaðasta ball ársins á Íslandi! Hið árvissa Lopapeysuball verður haldið á Írskum dögum - við höfnina á Akranesi - fimmta árið í röð. Í ár verður dagskráin ekkert slor frekar en fyrri ár - fyrstur stígur á svið hin alkunni Ragnar Bjarnason og svo er það Jet Black Joe sem kemur þar á eftir. Sálin hans Jóns míns slá svo botninn í gleðina og spila fram á nótt. Sunnudagur 7. júlí Jet Ski leiga á Langasandi - ekki spurning að prófa! 14:00 - 17:00 Fjölskyldudagur í Skógræktinni - Lokahátíð Írskra daga 2008! Skemmtilegur dagur fyrir alla fjölskylduna. Grill og Svali fyrir alla! Hoppkastalar og önnur frábær leiktæki. 15:00 Barnaskemmtun Söngvaborgar! Söngavkeppni Akraness - Allir krakkar á aldrinum 7 - 14 ára geta tekið þátt í þessari fráb æru keppni. Skráning á staðnum, með tölvupósti (loa@akranes.is) eða í síma 433 1000. Skemmtidagskrá Söngvaborgar með leiknum atriðum og söng af Söngvaborgunum. Fram koma Sigga Beinteins, María Björk, Lóa Ókurteisa (Helga Braga) Masi (Björgvin Franz) Subbi sjóræningi (Björgvin Franz). Magni Ásgeirsson mætir með gítarinn og leikur og syngur nokkur lög. Listasetrið Kirkjuhvoll og Safnasvæðið að Görðum opið alla helgina. Aðgangur að dagskrá Írskra daga er ókeypis nema annað sé tekið fram! Góða skemmtun á Írskum dögum!

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.