Skessuhorn


Skessuhorn - 04.01.2012, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 04.01.2012, Blaðsíða 19
19MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR Laus er til umsóknar staða framkvæmdastjóra hjúkrunar og rekstrar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Stofnunin skiptist í átta starfseiningar í landshlutanum, þar af fjórar með legurými. Ráðið verður í stöðuna frá 1. apríl 2012. Starfskjör byggjast á kjarasamningum og lögum um starfsmenn ríkisins. Áskilið er að viðkomandi hafi próf frá viðurkenndri stofnun hjúkrunarmenntunar, umtalsverða reynslu af mannauðsmálum og stjórnunarreynslu í heilbrigðisþjónustu, hafi góða leiðtoga- og skipulagshæfileika, búi yfir lipurð í samskiptum og samvinnu og sé reiðubúinn að takast á við krefjandi verkefni í breytilegu starfsumhverfi. Framkvæmdastjóri hjúkrunar og rekstrar á sæti í framkvæmdastjórn, tekur þátt í gerð rekstrar- og starfsemisáætlana og kemur fram fyrir hönd stofnunarinnar sem hjúkrunarfræðilegur forsvarsmaður. Um faglega ábyrgð að öðru leyti er vísað til 10 gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Umsóknir skulu sendar Guðjóni S. Brjánssyni, forstjóra HVE, Merkigerði 9, 300 Akranes eða á netfang gudjon.brjansson@hve.is. Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2012. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af stjórnunarstörfum auk upplýsinga um fræðilegar rannsóknir, ritstörf og önnur þau atriði sem máli kunna að skipta. Stöðunefnd framkvæmdastjóra hjúkrunar metur hæfni umsækjenda. sbr. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu á þeim, innsendum gögnum og umsögn stöðunefndar. Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) tók til starfa þann 1. janúar 2010 og varð til með sameiningu átta heilbrigðisstofnana á Vesturlandi en þær eru: Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi, Heilsugæslustöðin Borgarnesi , Heilsugæslustöðin Búðardal, Heilsugæslustöðin Grundarfirði, Heilbrigðisstofnunin Hólmavík, Heilbrigðisstofnunin Hvammstanga, Heilsugæslustöðin Ólafsvík, Heilsugæslustöðin og St. Franciskusspítalinn Stykkishólmi. Við Heilbrigðisstofnun Vesturlands starfa alls um 440 manns og fjárhagslegt umfang stofnunarinnar á árinu 2012 nemur um 3 milljörðum króna. Sjá nánar www.hve.is. Framkvæmdastjóri hjúkrunar HVE FYRIRTÆKI, FÉLAGASAMTÖK OG EINSTAKLINGAR Erum farin að taka á móti pöntunum í þorrahlaðborðin Sendum á sunnanvert Vesturland Pantanir í síma 430 6767 R E S T A U R A N T Stillholti 16-18 • Akranesi • galito.is • 430 6767 • galito@galito.is NÚ STYTTIST Í ÞORRA! SK E S S U H O R N 2 01 2 Árið 2012 kem ur fyr ir í ýms um spám um „ heimsendi“ eða „nýja öld“ í þró un manns ins. Þessi fjöl­ þjóð legi á hugi varð kveikj an að „ Project 12,“ fjöl þjóð legu lista­ og ljós mynda verk efni/sam keppni þar sem sam tíma sag an, árið 2012, er skrá sett og þannig stuðl að að Samn ing ar voru und ir rit að ir sl. fimmtu dag milli Vega gerð ar inn ar og lands hluta sam taka á Vest ur­ og Norð ur landi, um að sveit ar fé lög in á þess um svæð um taki frá og með ára mót um við for ræði af rík inu um skipu lagn ingu al menn ings sam­ gangna á vest an­ og norð an verðu land inu. Rík ið hef ur áður gert sam­ bæri lega samn inga við lands hluta­ sam tök á Suð ur landi og Aust ur­ landi. Engra breyt inga er þó að vænta á leið inni Ak ur eyri­Reykja­ vík og leið um út frá þeirri að al leið fyrr en í fyrsta lagi næsta haust. Ó laf ur Sveins son for stöðu mað ur At vinnu ráð gjaf ar Vest ur lands seg ir í sam tali við Skessu horn að tím inn verði nú not að ur til að þróa leið irn­ ar á Vest ur landi þannig að þær falli eins vel að þjón ustu við í bú ana og kost ur er. Það verð ur m.a. gert með því að sam þætta al menn ar á ætl ana­ ferð ir skóla keyrslu. Smári Ó lafs son sam göngu verk fræð ing ur hjá VSÓ ráð gjöf hef ur unn ið með lands­ hluta sam tök un um að því að þróa nýtt al menn ings sam gangna kerfi. Með al ann ars hef ur ver ið hug mynd­ in á leið inni Reykja vík­Ak ur eyri að aka bæði í gegn um Sauð ár krók og Akra nes. Smári sagði í sam tali við Skessu horn að þetta myndi ráð ast í samn inga gerð á nýju ári, en ekki myndi veita af tím an um til und ir­ bún ings. Bjóða þyrfti leið irn ar út og í fram haldi af því þurfi verk tak ar tíma til að laga tækja kost að leið um. „Það get ur t.d. tek ið nokkra mán­ uði að fá vagna er lend is frá, þannig að ég myndi frek ar skjóta á að ekið yrði eft ir nú gild andi kerfi út árið 2012,“ seg ir Smári. þá Sveit ar fé lög in taka við for ræði al menn­ ings sam gangna Ein mynd eða lista verk á mán uði árið 2012 heims friði og um hverf is vit und. Klukk an 12 á há degi, á tólfta degi mán að ar ins, er þátt tak end um boð ið að taka ljós mynd eða búa til lista verk og hlaða inn á vef svæði verk efn is ins www.2012project12. com þar sem al menn ing ur get­ ur skoð að og greitt þeim at kvæði. Verk efn ið Project 12 er með höf­ uð stöðv ar á Akra nesi. Það er skráð á huga manna fé lag stofn­ að 2011 með það að mark miði að koma ár inu 2012 á spjöld sög unn­ ar, inn leiða heims frið og efla um­ hverf is vit und. Stofn andi Project 12 er Pauline McCarthy. Hún er fædd og upp al in í Skotlandi og hef ur búið í níu lönd um en sett­ ist að á Ís landi og hef ur búið hér í tæp 19 ár. Þátt tak end ur í Project 12 geta val ið um fjóra flokka eða þemu: ­ 12:12:12: Árið 2012 skrá sett í 12 svip mynd um ­ Frið ur 2012: List og ljós mynd­ un sem hvet ur til heims frið ar ­ Gaia 2012: List og ljós mynd­ un sem vek ur at hygli á um hverf­ is mál um ­ Tylft ar stúd ía: Upp á halds hlut lýst með einni mynd á mán uði Verð laun in í hverj um hinna fjög­ urra flokka eru ljós mynda bún að ur að verð mæti 1.200 (evr ur). Fyrstu verð laun í keppn inni er viku ferð til Ís lands (ef verð launa hafi er á Ís­ landi get ur hann val ið um ferð til London, Glas gow eða New York). Bestu fram lög in í Project 12 verða gef in út á bók og DVD diski, á samt því að vera sýnd á röð sýn inga sem fyr ir hug að ar eru á ár un um 2013 og 2014. Nú þeg ar hafa nokkr ar evr­ ópsk ar borg ir lýst á huga á að halda Project 12 sýn ing ar. Fyr ir 12 evru skrán ing ar gjald ger ast menn ævi fé­ lag ar í Project 12. -Frétta til kynn ing

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.