Skessuhorn


Skessuhorn - 11.09.2013, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 11.09.2013, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 37. tbl. 16. árg. 11. september 2013 - kr. 600 í lausasölu HVAR OG HVENÆR SEM ER Með Arion appinu tekur þú stöðuna með einum smelli og borgar reikningana, hvar og hvenær sem er. Þú færð appið á Arionbanki.is. Skannaðu QR kóðann og sæktu appið frítt í símann þinn H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3 -1 8 9 2 10 töflur 25% afslát tur Einstaklega mjúkar, teygjanlegar og halda sér vel. Buxur sem gefa öllum konum flottar línur. Bylting í buxnasniði fyrir dömur Tilboð vikunnar Keila 1.430 kr/kg BORGARNESI Það hafa löngum verið sögð forréttindi að alast upp í sveit. Nálægð við náttúruna og dýrin ásamt því frjálsræði sem því fylgir vegur upp ýmsa kosti sem vissulega fylgja búsetu í þéttbýli. Eftir rigningar síðustu daga og vikur skellti hann Aron Sölvi Atl- ason í Dalsmynni sér út á á leikfangatraktorinn sinn. Að keyra í pollana á mikilli ferð er ekki leiðinlegt, ekki síst þegar maður er vel búinn. Ljósm. iss. Með stærri grindhvalavöðum síð- ari árin lenti í sjálfheldu við strand- l e n g j u n a milli Rifs og Ólafsvík- ur síðastlið- ið laugar- dagskvöld . Nokkrir tug- ir hvala dráp- ust í fjörunni og var kjöt af þeim nýtt af heimamönnum. Sjá umfjöllun um grindhvalavöðuna á bls. 18-20. mm Nú síðla sumars hefur veðráttan reynst bændum á Vesturlandi erf- ið og víða sem seinni sláttur hef- ur ekkert gengið eða illa. Jafnvel þótt komi þurrkglenna eru tún afar blaut og erfið yfirferðar og því nær ómögulegt að ná góðri heyverkun. Raunar er það svo að menn reyna að ná heyinu snerti- þurru í rúllur um leið og færi gefst. Í liðinni viku gerði þó víða tveggja daga þurrt veður og voru afar margir bændur sem slógu og hirtu hey, þrátt fyrir blaut tún. „Það er nú eða aldrei,“ sögðu tveir bændur í uppsveitum Borg- arfjarðar sem unnu saman að hey- skap undir lok vikunnar. Guðjón Jóhannesson bóndi í Syðri Knarrartungu er einn þeirra sem glímt hefur við erfiða veðráttu nú síðla sumars. Honum varð að orði sl. laugardagsmorgun, þegar hann hlustaði á regnið lemja þak- ið á mjaltabásnum, að þurrkvonin væri dáin. Guðjón er hagmæltur með ágætum og rammar í tveim- ur vísum sínum ágætlega inn hug- renningar bóndans í lok vætusams sumars: Í haustlitum stendur háin, híma við fjósvegginn kýr. Þurrkvonin þegar er dáin, þá gerast ráðin dýr. Þú reynir ef rignir ekki, að raka hvert fölnað strá. Rúlla upp fljótandi flekki, og flokka sem úrvalshá. mm Veiðimet í Norðurá í Borgarfirði gæti fallið núna í vikunni. Næst- síðasta hollið kom úr ánni á mánu- dagskvöld að lokinni þriggja daga veiði með 155 laxa. Veiðin var þar með komin í 3.205 laxa í sumar og er farin að nálgast metið sem slegið var veiðisumarið mikla 2008 þeg- ar 3.307 l a x a r veiddust í Norðurá. „Þetta var mjög góð veiði hjá h o l l i n u sem var að koma úr ánni og ef álíka gengur hjá því næsta er ekki ólík- legt að metið falli,“ sagði Birna G. Konráðsdóttir á Borgum, formað- ur Veiðifélags Norðurár, í samtali við Skessuhorn í gær, en þá voru þrír dagar eftir af veiðitímabilinu í Norðurá. Birna segist ekki í vafa um að góð veiði í sumar muni hjálpa til við sölu veiðileyfa fyrir næsta sumar, en veiðifélagið mun sjálft selja veiði- leyfin í samvinnu við nýjan veiði- réttarhafa í Norðurá, Einar Sigfús- son. Einar er einnig með Haffjarð- ará á leigu. Um leið hættir Stang- veiðifélag Reykjavíkur leigu árinn- ar eftir tæplega sjö áratuga sam- starf við landeigendur. Birna seg- ir að slök veiði sumarið 2012 hafi gert erfitt fyrir hjá mörgum um sölu veiðileyfa, ekki síst í ár á Vest- urlandi sem voru vatns- og fisklitar í fyrra. Þá veiddust ekki nema 953 laxar í Norðurá, en til samanburðar veiddust 2.134 laxar sumarið 2011 og 2.279 sumarið áður. þá Rúlla upp fljótandi flekki Þrátt fyrir erfiða veðráttu í sumar hafa margir bændur lokið slætti. Er því víða búsældarlegt að líta heim að bæjum þegar stæður af rúllum prýða hlöðin nærri gripahúsin. Meðfylgjandi mynd er tekin í liðinni viku og horft heim að hinu snyrtilega Skorholti í Hvalfjarðarsveit. Veiðimet í Norðurá gæti fallið í vikunni Grindhvalavaða

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.