Skessuhorn


Skessuhorn - 11.09.2013, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 11.09.2013, Blaðsíða 5
5MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013 SKRÁÐU ÞIG NÚNA! www.lbhi.is/namskeid endurmenntun@lbhi.is - síma 433 5000 Endurmenntun LbhÍ Mengun - meðhöndlun úrgangs Hefst 16. sept. á Hvanneyri Mengun - vatnsmengun Hefst 21. okt. á Hvanneyri Cornelis Aart Meijles umhverfisverkfræðingur í Hollandi Lífrænn landbúnaður Ragnhildur Helga Jónsdóttir umhverfisfræðingur við LbhÍ Hefst 20. sept. á Hvanneyri Trjáfellingar og grisjun Í samstarfi við Skjólskóga Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur við LbhÍ Hefst 17. sept. á Þingeyri Á stubbnum Ýmsir sérfræðingar á sviði skógræktar Hefst 1. nóv. á Hvanneyri Hefst 22. mars 2014 á Hvanneyri Margt er um að vera í Dölum síð- astliðinn laugardag. Meðal þess má nefna að réttað var í Ljárskógarétt og Tungurétt og þá var Laxdæluhá- tíð þar sem Guðrún Ósvífursdótt- ir bauð gestum heim til veislu að Laugum. Þá var svokölluð heima- smölun þeirra Laxdælinga farin á laugardag. Veður var hlýtt og gott til smalamennskunnar þrátt fyrir að blési hressilega. Féð var margt og gekk smölun að öllu leyti vel. Eins og myndirnar bera með sér var glatt á hjalla og margir þátttakendur. Það þótti þó tíðindum sæta að fjögur pör gengu í hjónaband þennan sama dag þar sem að töl- urnar 7, 9 og 13 þykja álitleg- ur brúðkaupsdagur. Ein vígslan fór fram í Kvennabrekkukirkju en þrjár í Hjarðarholtskirkju. Systkin- in frá Engihlíð í Laxárdal fóru t.d. ríðandi til kirkju eftir að hafa rétt- að með sínum væntanlegu mökum og fylgdu þeim margir gestir. Eft- ir vígsluna héldu þau til síns heima. Fögnuður var svo fram eftir kvöldi víða í sveitinni að afloknu góðu dagsverki. bae Einstakur menningarviðburð- ur mun eiga sér stað í Grundar- firði næstkomandi sunnudag þeg- ar hin nýstofnaða fransk-íslenska sinfóníuhljómsveit, FIFO, held- ur sína fyrstu tónleika. Hljómsveit- in var stofnuð í kjölfar heimsóknar Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands til Frakklands fyrr á þessu ári. Markmið hljómsveitarinnar er að kynna franska og íslenska tón- list ásamt því að beina sjónum að fransk-íslenskum tengslum sem lýsa sér til dæmis í vinabæjartengslum Grundarfjarðar og frönsku borg- arinnar Paimpol. Þá er það einn- ig markmið hljómsveitarinnar að vekja athygli á sögulegum atburð- um sem tengja þjóðirnar. Hljóm- sveitin er samsett af hljóðfæra- leikurum úr Kammersveit Reykja- víkur og meðlimum úr Sinfóníu- hljómsveit UNESCO. Amine Ko- urder er stjórnandi hljómsveitar- innar en hann er friðarlistamaður UNESCO og hefur starfað víða í Frakklandi og einnig við Óperuna í St. Pétursborg. Tónleikarnir hefjast klukkan 18 á sunnudaginn í sal Fjölbrauta- skóla Snæfellinga og á efnisskránni eru verk eftir tónskáldin Albert Roussel, Þorkel Sigurbjörnsson og Piotr Ilitch Tchaikovsky. Ein- leikari er Martial Nardeau, flautu- leikari. Meðal gesta á tónleikunum verða borgarstjóri Paimpol ásamt starfsmönnum, franski sendiherr- ann og Lionel Tardy þingmaður útlendingadeildar franska þingsins. „Þetta er einstakur og stór viðburð- ur á okkar mælikvarða og að mörgu að huga í undirbúningi,“ segir Alda Hlín Karlsdóttir menningar- og markaðsfulltrúi Grundarfjarð- ar og bætir við: „Ég vona að fólk láti þennan viðburð ekki framhjá sér fara.“ Mánudaginn 16. septem- ber mun FIFO síðan halda tónleika í Norðurljósasal Hörpu, en þann dag verða 77 ár liðin síðan skipið Pourqoui Pas? fórst út af Mýrum. sko Stórtónleikar í Grundarfirði Heimasmölun og nokkur brúðkaup sama daginn

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.