Skessuhorn - 11.09.2013, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013
Vörur og þjónusta
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
Sími 820-3722 • hilmirb@simnet.is
Flutningar fyrir
einstaklinga &
fyrirtæki
STEINI STERKI
Borgarnesi
861 0330
SENDIBÍLA
ÞJÓNUSTA
Þorsteinn Aril íusson
861 0330
SENDIBÍLAÞJÓNU Réttum, sprautum
hjólastillum
Rúðuskipti
Almennar viðgerðir
Reitarvegi 3, 340 Stykkishólmi
690 2074 / 438 1586
TRÉSMIÐJAN AKUR EHF.
Trésmiðjan Akur ehf. • Smiðjuvöllum 9
300 Akranesi
Sími 430 6600 • akur@akur.is • www.akur.is
ÖLL ALMENN TRÉSMÍÐAÞJÓNUSTA
Endurbætur og nýsmíði
Þök – Klæðningar – Gluggar – Útihurðir – Sólpallar
Pennagrein
„Menningarlíf er ein af forsendum
búsetu, rétt eins og atvinna, heilbrigð-
isþjónusta, menntun og félagslegt ör-
yggi. Hlutverk ríkisins í menningar-
málum snýr einkum að því að skapa
skilyrði og standa vörð um menningu
og menningararf.“ Í menningarstefnu
stjórnvalda sem kom út í vor sem leið,
er menningarstefnunni ætlað að end-
urspegla þann kraft sem einkenn-
ir menningarlíf á Íslandi og stuðla að
enn frekari eflingu þess. Menning-
arstefnan er gott veganesti fyrir alla
sem starfa að menningarmálum, gef-
in út af Mennta- og menningarmála-
ráðuneyti 2013. Með gerð menning-
arsamninga leggja stjórnvöld áherslu
á að hlúa sérstaklega að þeim svæðum
sem síst geta notið þjónustu frá helstu
menningarstofnunum landsins. Sér-
stök áhersla er á að efla menningu
barna og ungmenna í landinu öllu og
stuðla að því að þau séu virkir þátt-
takendur. Menningarstofnanir eru
hvattar til þess að skipuleggja dagskrá
sína með börn og ungmenni í huga
og haga starfsemi sinni þannig að
þau eigi greiðan aðgang að listum og
menningu, óháð efnahag og búsetu.
Hvatt er til samvinnu stjórnvalda við
þá fjölmörgu aðila sem starfa á sviði
menningar.
Stjórnvöld leggja áherslu á ár-
angursríkt samstarf við sveitarfélög
og landshlutasamtök þeirra á sviði
menningarmála og hvetja til þess að
þessir aðilar taki höndum saman um
einstök menningarverkefni. Menn-
ingarsamningar eru gerðir við lands-
hlutasamtök um stuðning við menn-
ingarstarf á landsbyggðinni. Menn-
ingarráð Vesturlands hefur haft þessi
sjónarmið að leiðarljósi í starfi sínu
frá upphafi styrkveitinga 2006. Hér
verður sagt frá nokkrum verkefnum
sem menningarráð styrkti og tengjast
menningartengdri ferðaþjónustu.
Gott samstarf er með Markaðs-
stofu Vesturlands og menningarráði.
Meðal annars voru veittir styrkir til
þess að efla kynningarefni menn-
ingartengdrar ferðaþjónustu í sam-
starfi við RARIK sem styrkir Menn-
ingarráð Vesturlands um samtals tvær
miljónir á árumum 2012 og 2013. Sá
styrkur fer alfarið til markaðsstof-
unnar til eflingar á markaðssetningu
menningarviðburða.
Sögutengd verkefni eru fjölmörg,
t.d. er sögusvið Laxdælu og Eiríks-
sögu í Dölum. Ef ferðin hefst í Gils-
firði þá hafa styrkir menningar-
ráðs um nám og störf í fyrsta land-
búnaðarskóla landsins í Ólafsdal gert
uppbyggingunni þar verulega mik-
ið gagn. Þar hefur sýningarefni ver-
ið unnið á þann hátt að auðvelt er að
flytja það milli svæða og hefur fyrri
sýningin ferðast í Þjóðmenningarhús-
ið í Reykjavík og í Landbúnaðarhá-
skóla Íslands að Hvanneyri. Ólafsdal-
ur er opinn á sumrin og þar er haldin
Ólafsdalshátíð ár hvert, sögusýning-
ar og listsýningar eru þar á sumrin.
Í ár var sýningin um Guðlaugu Zak-
ariusardóttur og konurnar í Ólafsdal.
Um 1.000 manns komu á sýninguna
í Ólafsdal og á Ólafsdalshátíðina.
Eiríksstaðir í Haukadal hafa einn-
ig fengið styrki og styrkur var veitt-
ur til þess að útbúa og flytja efni um
Eirík rauða fyrir skólanemendur. Það
efni hefur einnig verið flutt í skólum í
Reykjavík og fyrir erlenda gesti stað-
arins.
Brjáluð ást, heimboð til Guðrún-
ar Ósvífursdóttur og Bolla Þorleifs-
sonar að Laugum í Sælingsdal um
síðustu helgi, til þess að fagna sam-
starfsverkefni þriggja norrænna leik-
húsa og heimamanna í Dölum. Far-
ið var á Laxdæluslóðir, Laxdæla með
augum tveggja kynslóða. Þá var sýn-
ing um Gelísk áhrif fengin að láni frá
Görðum á Akranesi og sett upp að
Laugum.
Handritin alla leið heim. 350 ára
afmælis Árna Magnússonar hand-
ritasafnara sem fæddist í Dölum var
minnst í samvinnu við Árnastofnun
og söfnin í Dalasýslu. Gerð var eft-
irmynd af handriti Staðarhólsbók-
ar rímna og hún færð Dalamönn-
um. Fóstri handritsins var Kjart-
an Sveinsson tónlistarmaður úr Sig-
ur Rós. Hann og Steindór Ander-
sen fóru með rímur úr Skarðsbók
rímna við afhendingu í Tjarnarlundi.
Þá var ráðstefna um handritasöfnun
að Laugum og til stendur að Árna-
stofnun gefi út og komi með fróðleik
í skólana. Kynningarrit voru gefin út
á mörgum tungumálum. Handrita-
söfnun Árna Magnússonar er á varð-
veisluskrá Menningarstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna.
Eldfjallasafnið í Stykkishólmi, al-
þjóðasafn af listaverkum, fornum og
nýjum, sem sýna eldgos, og einnig
munir, forngripir, minjar og stein-
tegundir úr einstöku safni Haraldar
Sigurðssonar prófessors. Hann hef-
ur stundað eldfjallarannsóknir í yfir
fjörutíu ár um allan heim. Norska
húsið hefur einnig fengið styrki til
þess að efla sýningarhald í húsinu og
þar hafa margar frábærar sýningar
hlotið styrk frá Menningarráði Vest-
urlands. Í sumar Sjónarspil, Steinþórs
Sigurðssonar leikmyndahönnuðar og
listmálara. Sjálfbærni og menningar-
arfur mætast, flökkusýning frá Lista-
safni Reykjavíkur. Sýning og fróðleg-
ur fundur um menningararf og sjálf-
bærni.
Í Grundarfjarðarbæ hefur menn-
ingarráð styrkt Sögumiðstöðina og
verkefni tengd Eyrbyggju, sagna-
hefð, sögu franskra sjómanna í
Grundarfirði og menningarsamstarfi
við Paimpol, en haldin verður frönsk
listahátíð í Grundarfirði um næstu
helgi. Þar kemur meðal annars fram
frönsk-íslensk kammersveit. Kvik-
myndahátíðina Northern Wave sem
sýnir stuttmyndir m.a. fræðslumynd-
ir og nútímakvikmyndalist, og tón-
listarmyndbönd og er frábært inn-
legg í menninguna í Grundarfirði og
Vesturlandi öllu.
Í Snæfellsbæ hefur Átthagastofan
haldið utanum margskonar áhuga-
verð verkefni. Eitt þeirra var mjög
vönduð hátíð til heiðurs söngkonunni
Maríu Markan. Sýning um ljóðskáld-
ið Jóhann Jóhannsson, Fiskasafnið í
Ólafsvík hefur sett upp sýningu með
aðstoð Menningarráðs. Í þjóðgarðin-
um og í Átthagastofunni hefur m.a.
verið unnin kynning um landnáms-
konuna Guðríði Þorbjarnardóttur.
Frystiklefinn leikhús á Rifi hefur flutt
Hetju um Bárðarsögu Snæfellsáss og
Góða hálsa um Axlarbjörn auk fleiri
verkefna og fengið lof fyrir hjá leik-
hússgagnrýnendum.
Frá upphafi hefur Menningarráð
styrkt Reykholt sem er okkar helsta
menningarstofnun á Vesturlandi.
Síðast sýningu um Snorra Sturlu-
son í Reykholti sem var opnuð í vor.
Í Reykholt er einstaklega gaman að
koma, staðurinn er prýði í sveitinni
og falleg umgjörð um merka menn-
ingu staðarins. Reykholt sækja marg-
ir ferðamenn vegna sögu staðarins en
einnig er kirkjan vinsælt tónlistarhús,
nægir þar að nefna Reykholtshátíð-
ina.
Þá hefur Landnámssetur Íslands í
Borgarnesi hlotið styrki til fjölbreytts
sýningarhalds og tónleika. Land-
námsseturs hefur fengið margskon-
ar viðurkenningar í gegnum árin og
skapað fjölda starfa á svæðinu, aukið
fjölbreytni í listviðburðum og menn-
ingartengdri ferðaþjónustu.
Fuglar í náttúru Íslands og Börn í
100 ár í Safnahúsi Borgarfjarðar eru
einstaklega fallegar sýningar, hann-
aðar af Snorra Frey Hilmarssyni með
styrkjum m.a. frá menningarráði.
Þá hefur Landbúnaðarsafn Íslands á
Hvanneyri notið styrkja menning-
arráðs og Hið blómlega bú, kvik-
myndaþættir um mat og matargerð í
Borgarfirði, sem svo sannarlega slógu
í gegn á síðasta ári.
Listsýningar og ráðstefnur um
Hallgrím Pétursson í Hvalfjarðarsveit
í samstarfi við Snorrastofu hafa hlotið
styrki menningarráðs. Hernámssetur
og Litla hvalasetrið á Ferstiklu. Unn-
ið er að sögutengdum óperuflutningi
í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Þá hefur
menningartengd ferðaþjónusta ver-
ið styrkt m.a þar sem farið er á slóðir
Helgu Jarlsdóttur úr Harðarsögu og
Hólmverja. Kvikmyndin Hvalfjörð-
ur, sem valin var til þátttöku í Can-
nes og fékk aukaverðlaun dómnefnd-
ar, var styrkt af Menningarráði Vest-
urlands.
Á Akranesi hafa söguleg verk-
efni gjarnan tengst Byggðasafninu í
Görðum. Þar hefur menningarráð
styrkt sýningar t.d. nú síðast um gel-
ísk áhrif á Vesturlandi sem Friðþjóf-
ur Helgason og Þorvaldur Friðriks-
son settu saman. Eldsmiðja sem hef-
ur eflt áhuga manna á þessu forna
handverki þannig að nú í sumar var
þar Norðurlandamót eldsmiða, sem
tókst mjög vel. Umgjörð safnsins er
frábær, starfsemin fjölbreytt og nýt-
ist fræðslustarfi mjög vel. Leikriti um
sagnakonuna Guðnýju Böðvarsdótt-
ur frá Görðum, leikrit sem Skaga-
flokkurinn flytur en samið af Óskari
Guðmundssyni verður flutt í haust á
Akranesi af Skagaleikflokknum.
Þessi verkefni sem ég hef talið hér
upp eru öll sögutengd, sérstök fyrir
Vesturland og skapa atvinnu og efla
ferðaþjónustu, bæði erlendra og ís-
lenskra ferðamanna. Einnig styðja
þau við menntunarframboð og
menningu á svæðinu með fjölbreytt-
um sýningum og fræðslu sem stendur
öllum skólum til boða.
Í lokaskýrslum frá styrkhöfum
til menningarráðs er mjög oft tek-
ið fram að styrkur menningarráðs
hafi gert þeim kleift að framkvæma
og koma af stað verkefnum. Nokk-
ur þessara verkefna hafa síðan hald-
ið áfram að þróast og sum þeirra orð-
ið að árlegum viðburðum. Þá hafa
menningarstyrkirnir opnað leið að
öðrum styrkjum til þess að efla starf-
semina enn frekar.
Ég mun síðar fjalla um fleiri verk-
efni sem styrkt hafa verið af Menn-
ingarráði Vesturlands. Menningarráð
auglýsir styrki í nóvember fyrir árið
2014.
Elísabet Haraldsdóttir, menningar-
fulltrúi Vesturlands.
Efling menningartengdra verkefna á Vesturlandi