Skessuhorn - 11.09.2013, Blaðsíða 9
9MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013
D a g u r í s l e n s k r a r n á t t ú r u 2 0 1 3
Í tilefni af Degi íslenskrar náttúru 16. september bjóða Landmælingar Íslands
til örnefnagöngu undir leiðsögn Ásmundar Ólafssonar.
Mæting er kl. 16:30 í Akranesvita. Þaðan verður gengið að Aggapalli.
Boðið verður upp á tónlistaratriði í Akranesvita og kaffi og kleinur á Aggapalli.
Ef veður verður óhagstætt til gönguferðar verður göngunni frestað. Vinsamlegast fylgist með á heimasíðu Landmælinga Íslands
www.lmi.is eða á Facebook-síðu Landmælinga Íslands www.facebook.com/landmaelingar.islands.
Björgunarfélag Akraness
Inntaka nýrra meðlima
í Björgunarfélag Akraness
Á hverju hausti geta áhugasamir einstaklingar hafið þjálfun til inngöngu í Björgunarfélag
Akraness. Annars vegar er hægt að sækja um inngöngu í Unglingadeild félagsins og hins
vegar í nýliðaþjálfun.
NÝLIÐAÞJÁLFUN: Allir sem taka þátt í leitar- og björgunarstörfum á vegum Slysavarnafélagsins
Landsbjargar þurfa að ganga í gegnum nýliðaþjálfun. Kynningarfundur um nýliðastarfið verður haldinn
þriðjudaginn 17. september kl. 20 í húsi Björgunarfélagsins að Kalmannsvöllum 2. Allir sem fæddir
eru árið 1997 og fyrr eru velkomnir. Tökum sérstaklega vel á móti eldri einstaklingum.
UNGLINGADEILDIN ARNES: Í unglingadeildinni Arnes er leitast við að kynna unglingum starf
Björgunarfélagsins á lifandi og skemmtilegan hátt.
Allir unglingar á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit sem eru að hefja nám í 9. eða 10. bekk (fæddir ´98 og ´99)
geta tekið þátt í starfi unglingadeildarinnar. Kynningarfundur verður haldinn sunnudaginn
15. september kl. 20 í húsi Björgunarfélagsins að Kalmannsvöllum 2.
HVETJUM ALLA TIL AÐ KOMA Í HEIMSÓKN OG KYNNA SÉR STARFIÐ
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
ODORITE
ÖRVERUHREINSIR
MILDEX-Q
MYGLUEYÐIR
WIPE OUT
OFNA OG GRILLHREINSIR
NOVADAN
KLÓRTÖFLUR
- Í POTTINN
SEPT-O-AID
ÖRVERUR FYRIR ROTÞRÆR
HÁÞRÝSTIDÆLUR
ERTU Á LEIÐ Í BÚSTAÐINN
ÚRVALS VÖRUR FYRIR VIÐHALDIÐ OG VERKIN Í BÚSTAÐNUM.
KÍKTU Í KEMI BÚÐINA OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
Á vettvangi Borgarbyggðar er nú
unnið að undirbúningi göngu-
stígalagningar fyrir Suðurnes-
kletta í Borgarnesi. Suðurnes-
klettar eru sunnan við Landnáms-
setrið og Kaupvang, elstu hús bæj-
arins skammt ofan við Brákarpoll.
Á klettunum var áður olíutank-
ur Skeljungs, samkvæmt heimild-
um Skessuhorns, en einnig hús sem
hýsti landtökubúnað símstrengs
Landsímans. Við hönnun stígs-
ins er gert ráð fyrir að hann muni
liggja frá Bjarnarbraut, framhjá
Suðurnesskeri, að malarvegi sem
liggur frá Brákarbraut inn á klett-
inn. Lengd stígarins er ráðgerð
140 metrar sem skiptist í grófum
dráttum í 30 metra langa brú, sem
verður við klettabeltið sem snýr að
Bjarnarbraut, og 110 metra langan
malargöngustíg.
Umhverfis- og skipulagssvið
Borgarbyggðar vinnur að undir-
búningi framkvæmdarinnar og er
hönnunarvinna á lokastigum. Þeg-
ar þeirri vinnu lýkur verður leitað
verðtilboða hjá verktökum en von-
ast er til að framkvæmdir geti hafist
síðar á þessu ári. hlh
Unglingadeildin Arnes er starf-
andi hópur innan Björgunarfélags
Akraness fyrir krakka í 9. og 10.
bekk. „Við erum að hefja starfsemi
á ný eftir sumarið og verður margt
spennandi á dagskránni í vetur.
Fundir eru á sömu tímum og venj-
an hefur verið, eða á sunnudags-
kvöldum klukkan 20. Fyrsti fund-
ur vetrarins var sl. sunnudag í húsi
Björgunarfélags Akraness, K2, við
Kalmansvelli 2. Mæting var með
ágætum og komu um 30 unglingar
á fundinn. Athygli vakti að nánast
enginn af Neðri Skaganum kom á
fundinn og gæti það bent til þess að
auglýsing hafi ekki skilað sér,“segir í
tilkynningu frá BA. Þar segir einnig
að ekki þurfi þó að örvænta því enn
sé tekið við nýju fólki og eru allir
velkomnir á næsta fund sem verður
næsta sunnudag.
Nýir umsjónarmenn eru tekn-
ir við unglingadeildinni, en farið
var í gamla útkallslista og dregn-
ir út reynsluboltar miklir. Þeir eru
Sigurður Sigurjónsson og Hjört-
ur Hróðmarsson, gamlir félagar
úr Hjálparsveitinni sem hoknir eru
af reynslu bæði í útivist og uppeldi
unglinga. Krakkar fæddir 1998 og
1999 eru velkomin til þátttöku í Ar-
nes til að kynnast af eigin raun heil-
brigðu og skemmtilegu starfi með
björgunarsveit. Eins og áður seg-
ir er dagskrá vetrarins spennandi.
Þá hóf Björgunarfélag Akraness
nýliðastarfið að nýju í gær, þriðju-
daginn 10. september. Fyrir fund-
inum lágu drög að dagskrá vetrar-
ins, en nýliðastarf er fyrir fólk fætt
1997 og fyrr. Umsjónarmenn ný-
liða verða Daníel Magnússon og
Sæþór Sindri Kristinsson.
Margt verður að gerast hjá BA
fólki um næstu helgi. Tekið verð-
ur á móti unglingum úr norskri
björgunarsveit sem er á ferðalagi
hér á landi. Þeir gista á Akranesi og
á laugardag verður farið með þeim
og gert eitthvað skemmtilegt. Á
laugardaginn fer Akur-1 í „mont-
ferð“ til Reykjavíkur og verður bíll-
inn til sýnis á 30 ára afmæli 4x4 á Ís-
landi, segir einnig í tilkynningunni
frá BA. Þann dag fer Akur-4 í ekki
síðra verkefni, en kannski ekki með
eins mikinn „glamúr“ og hjá Akri-
1. Það felst í því að koma smölum í
Skarðsheiðinni á rétta staði. Nán-
ari upplýsingar um starf Björgunar-
félags Akraness má sjá á heimasíð-
unni bjorgunarfelag.is
mm
Svipmynd úr fjölbreyttu starfi Arnes, unglingadeildar Björgunarfélags Akraness.
Ungmenni hvött til þátttöku
í Björgunarfélagi Akraness
Hér má sjá hvar göngustígurinn mun liggja.
Göngustígur fyrir Suður-
neskletta í burðarliðnum