Skessuhorn


Skessuhorn - 11.09.2013, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 11.09.2013, Blaðsíða 7
7MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013 Stórtónleikar í Grundarrði Sunnudaginn 15. september kl 18.00 í Fjölbrautaskóla Snæfellinga býður Grundarfjarðarbær til sérstakra fortónleika fransk-íslensku sinfóníuhljómsveitarinnar eða FIFO. Frítt er inn á tónleikana. Fransk-íslenska sinfóníuhljómsveitin er skipuð hljóðfæraleikurum úr Kammersveit Reykjavíkur og úr Alþjóðlegri fílharmóníusveit UNESCO í París, undir leiðsögn hljómsveitarstjórans Amine Kouider sem er friðarlistamaður UNESCO. Á efnisskránni eru verk eftir tónskáldin Albert Roussel, Þorkel Sigurbjörnsson og Piotr Ilitch Tchaikovsky. Einleikari er Martial Nardeau, flautuleikari. Verndari viðburðarins er forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson. Tilgangur FIFO er að kynna franska og íslenska tónlist ásamt því beina athygli að fransk íslenskum tengslum sem lýsa sér meðal annars í vinasambandi Grundarfjarðar og Paimpol. Eftirfarandi fyrirtæki styrkja viðburðinn: Hjálmfríður Hjálmarsdóttir í Stykk- ishólmi verður 100 ára laugardag- inn 14. september næstkomandi. Í tilefni af þessum merku tímamót- um kíkti blaðamaður Skessuhorns í heimsókn til hennar á Dvalarheim- ilið í Stykkishólmi og ræddi stutt- lega við Hjálmfríði. Hún er fædd og uppalin í Grænhóli á Barðaströnd. Foreldrar hennar hétu Hjálmar Guðmundsson og Guðrún Sigríð- ur Jónsdóttir. „Ég er fædd á Græn- hól og uppalin, skírð og fermd í Hagakirkju. Mest alla ævina hef ég þó búið í Stykkishólmi.“ Aðspurð hvort jörðin hafi verið stór svarar Hjálmfríður að Grænhóll hafi verið kot eins og tíðkaðist að kalla smá- býli á þeim tíma. „Þetta voru mörg kotin þá og hver fjölskylda átti eina kú og einhverjar kindur. Hver fjöl- skylda þurfti að eiga kú sem hægt væri að mjólka fyrir börnin.“ Hjálmfríður segir föður sinn hafa verið mjög trúaðan og að hann hafi innleitt hjá henni að vera heiðarleg og vönduð í öllu sem hún tæki sér fyrir hendur. „Amma mín hugsaði líka mikið um mig og kenndi mér alla góða siði,“ segir Hjálmfríð- ur og bætir við: „Mín uppvaxtarár voru ákaflega ljúf og skemmtileg. Við börnin lékum okkur í fjörunni að skeljum og steinum og mér leið alltaf ljómandi vel.“ Sjálfstæð og dugleg Þrátt fyrir að Hjálmfríður hafi lengst af búið í Stykkishólmi vann hún einnig í öðrum bæjarfélögum á Snæfellsnesi. „Ég hef alltaf ver- ið sjálfstæð og hef viljað vinna fyrir mér. Ég hafði gaman af því að vinna og gat ekki hugsað mér að sitja auð- um höndum. Ég var að vinna við sitthvað um leið og ég varð gjald- geng til þess. Ég vann t.d. í Ólafsvík í þrjú ár. Þá var ég fengin á heimili þar sem konan var mikill sjúkling- ur og ég hugsaði um það heimili þar til húsmóðirin náði heilsu aftur. Þetta vann ég við eins og mitt eig- ið heimili og mér leið ákaflega vel þar.“ Hjálmfríður starfaði einnig á St. Fransiskusspítalanum á kvenna- geðdeildinni sem starfrækt var þar um tíma. „Ég lærði aldrei neitt og var bara svona vinnukona þarna. Ég var að sinna sjúklingunum á deild- inni sem voru yfirleitt um 18 hverju sinni. Þær voru kátar konurnar og maður hló oft með þeim. Ég kunni mjög vel við þá vinnu og ég kunni vel við að vinna hjá St. Fransis- kussystrum. Þær voru gæðakon- ur; prúðar og góðar,“ segir Hjálm- fríður. Hefur ekkert að kvarta yfir Hjálmfríður segir að mikið hafi breyst varðandi umönnun eldra fólks á Íslandi frá því þegar hún var að alast upp. „Þegar ég var þriggja eða fjögurra ára sá ég gam- almenni. Þá sagðist ég óska þess að verða ekki svona gömul, en konan sú var vanhirt og fötin hennar gat- slitin. Það hafa orðið alveg ótrúleg- ar breytingar varðandi virðingu al- mennt og aðbúnað eldra fólks. Mér er oft hugsað til þess hvað breyting- ar hafa verið miklar þegar ég hugsa um gamla tímann.“ Hjálmfríður giftist aldrei og eignaðist ekki börn „Ég mun þó alltaf líta á Guðmundu systurdóttur mína sem mína eigin dóttur,“ segir hún. Hjálmfríður segist að endingu Kynbundinn launamunur á land- inu öllu mældist 11,4% í nýrri kjarakönnun sem Capacent fram- kvæmdi fyrir BSRB. Þegar kyn- bundni launamunurinn er skoðað- ur eftir landssvæðum sést að hann er mjög breytilegur á milli staða. Ef höfuðborgarsvæðið er borið sam- an við landsbyggðakjördæmin sést að óútskýrður kynbundinn launa- munur á höfuðborgarsvæðinu er 10,4% á meðan landsbyggðakjör- dæmin mælast saman með 13,6% kynbundinn launamun. Kynbund- inn launamunur þeirra sem búsett- ir eru á höfuðborgarsvæðinu fer frá því að vera 12,1% á árinu 2012 nið- ur í 10,4% nú. Kynbundinn launa- munur á Vestfjörðum og Vestur- landi dregst lítillega saman á milli ára, var 17,3% en er nú 16,6%. Mestu breytingar á kynbundnum launamun eftir landssvæðum á milli ára verða hins vegar á Suðurnesj- um/Suðurlandi og Austur/Norð- urlandi. Launamunurinn eykst á Suðurlandi og Suðurnesjum, fer frá 18% og upp í 20% á meðan jákvæð þróun verður á Austur- og Norð- urlandi. Þar fer kynbundinn launa- munur úr 11,6% í fyrra og niður í 5,7% árið 2013. mm Mikill munur á launa- mun eftir landssvæðum Hefur alltaf liðið vel í Stykkishólmi Hjálmfríður Hjálmarsdóttir verður100 ára næsta laugardag kunna vel við sig á Dvalarheimlinu í Stykkishólmi. „Ég hef átt ósköp góða ævi og mér þykir skemmti- legt að hugsa til þess sem liðið er. Ég hef ekkert yfir ellinni að kvarta. Það er hugsað vel um mig og allt gert fyrir íbúa hérna,“ segir hún að endingu. sko Hjálmfríður Hjálmarsdóttir verður 100 ára gömul 14. september nk.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.