Skessuhorn - 11.09.2013, Blaðsíða 27
27MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013
Eldri nemendur í Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði stóðu
fyrir busavígslu í skólanum sl.
fimmtudag. Veður var gott og var
talsverður atgangur þegar nýnem-
ar voru teknir í heldri manna tölu.
Um kvöldið var síðan haldinn dans-
leikur í Samkomuhúsinu þar sem
Ingó og Veðurguðirnir léku fyrir
dansi. Myndirnar tala sínu máli um
stemninguna.
tfk
Skessuhornsmótið í knattspyrnu
fór fram á laugardaginn á Skalla-
grímsvelli í Borgarnesi. Þetta er
annað skiptið í röð sem mótið fer
fram, eftir að hafa verið endurvakið
eftir níu ára hlé síðasta sumar. Létt
stemning einkenndi mótshaldið
sem knattspyrnudeild Skallagríms
skipulagði og ekki spillti fyrir að
gott veður var í Borgarnesi á laug-
ardaginn. Leikfyrirkomulag var
sjö manna bolti og leiktími 2x10
mínútur. Fjögur lið mættu til leiks
að þessu sinni; Bifröst F.C., Vin-
ir Kobba Skúla, Stjórnin F.C. og
Sveittir bakarar. Eftir harða keppni
stóð liðið Vinir Kobba Skúla uppi
sem sigurvegari en liðið sigraði alla
þrjá leiki sína. Þetta er annað árið
í röð sem liðið sigrar og mun það
því vafalaust gera allt sem í þess
valdi stendur til að verja titilinn aft-
ur að ári. Í öðru sæti varð lið Bif-
röst F.C. með sex stig, í því þriðja
Stjórnin F.C. með þrjú stig og loks
varð lið Sveittra bakara í fjórða sæti
án stiga. hlh
Haustdagahátíð Menntaskóla Borg-
arfjarðar í Borgarnesi fór fram síð-
astliðinn fimmtudag og föstudag,
en efnt var til hennar í stað busa-
vígslu sem víða er landlæg í öðr-
um menntaskólum landsins. Ný-
nemar jafnt sem eldri nemar tóku
þátt í hátíðinni sem var að sögn tíð-
indamanns Skessuhorns í MB afar
vel heppnuð. Á fimmtudeginum fór
fram keppni í sápubolta í Skalla-
grímsgarði sem lauk með grillveislu
í garðinum og munaði um að veð-
ur var með betra móti. Daginn eftir
skipulögðu eldri nemendur léttan
innanhússleik fyrir nýnema þar sem
markmiðið var að kynna Hjálm-
aklett, húsnæði menntaskólans. Að
kynningu lokinni hélt hópurinn í
rútu áleiðis til Reykjavíkur þar sem
m.a. var farið í litabolta og stigaleik
í miðborginni. Deginum lauk með
grillveislu á góðum stað.
hlh
Búið sig undir keppni í litabolta.
Vel heppnuð
haustdagahátíð í MB
Efnt var til sápubolta í Skallagrímsgarði.
Busað í
Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Vinir Kobba Skúla sigruðu á Skessuhornsmótinu
LIðið Vinir Kobba Skúla með sigurlaun sín ásamt meistara sínum, Jakobi Skúlasyni fyrrum formanni knattspyrnudeildar
Skallagríms.
Lið Bifrastar F.C. lenti í öðru sæti.
Stjórnin F.C. hafnaði í þriðja sæti.
Lið Sveittra bakara sem varð í fjórða
sæti. Barist um boltann.