Skessuhorn - 11.09.2013, Side 11
11MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013
Tillaga Umhverfisstofnunar að starfsleyfi fyrir fiskimjölsverksmiðju
HB Granda á Akranesi. Opinn kynningarfundur verður haldinn í
Bæjarþingsal Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, Akranesi 16. sept.
kl. 17:30. Allir eru velkomnir.
Tillöguna, ásamt umsókn er hægt að fá á bæjarskrifstofu
Akranes kaupstaðar og sömuleiðis hjá Um hverfisstofnun
og á umhverfisstofnun.is.
FRESTUR TIL AÐ SKILA INN ATHUGASEMDUM ER TIL OG
MEÐ 23. SEPTEMBER 2013.
Tillaga að starfsleyfi
KYNNINGARFUNDUR Í BÆJARÞINGSAL 16. SEPT. KL. 17:30
Akureyri - Egilsstaðir - Hella - Ísaörður - Mývatn
Patreksörður - Reykjavík - Snæfellsnes - Vestmannaeyjar
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
Akranesvöllur – Pepsi-deild karla
ÍA – Víkingur Ólafsvík
Sunnudaginn 15. september kl. 17.00
Allir á völlinn
UPPLÝSINGATÆKNIFÉLAGIÐ
Valafell í Ólafsvík tók á dögun-
um í notkun nýja flatningsvél af
gerðinni Baader 541. Vélin tekur
fiska sem eru allt að metri að lengd
eða mun stærri fiska en sú gamla
gat tekið. Handflatning mun því
nánast heyra sögunni til hjá fyr-
irtækinu. Nýja vélin getur flak-
að allt að 36 fiska á mínútu og eft-
ir tveggja daga reynslu var Sindri
Magnússon farinn að setja í hana
23 fiska á mínútu. Mikið vinnu-
hagræði er af vélinni sem er tölvu-
stýrð og því auðvelt að stilla hana
eftir stærð fisksins en með þeirri
gömlu þurfti að stilla hnífana fyrir
mismunandi stærðarflokka. Þegar
fiskurinn kemur út úr vélinni snýr
hann rétt en á gömlu vélinni þurfti
að snúa hverjum einasta fiski við.
Eftir fyrstu reynslu af vélinni eru
menn ánægðir. Sindri segir að enn
sem komið er hafi enginn fiskur
komið gallaður úr vélinni, eða ver-
ið það stór að hann hafi ekki kom-
ist í hana.
þa
Akraneskaupstaður auglýsti í lið-
inni viku eftir hugmyndum að starf-
semi í Kirkjuhvol við Merkigerði
7. Einnig er auglýst eftir tilboð-
um í leigu á húsinu. Kirkjuhvoll var
byggður árið 1923 og var prestsset-
ur í Garðaprestakalli á Akranesi allt
til 1978. Eftir það var húsið nýtt
sem heimavist fyrir Fjölbrauta-
skóla Vesturlands. Árið 1985 var
svo komið að húsið var ekki leng-
ur íbúðarhæft og lá um tíma við að
það yrði rifið. Það varð þó Kirkju-
hvoli til bjargar að Sigurður Ragn-
arsson og Drífa Björnsdóttir keyptu
húsið af Akranesbæ og létu endur-
byggja það í því sem næst uppruna-
legri mynd. Séra Jón M. Guðjóns-
son lést árið 1994. Hinsta ósk hans
var sú að á Görðum myndi rísa
listasafn. Byrjunaráfangi að þeirri
draumsýn varð að veruleika þegar
minningarsjóði um séra Jón tókst,
með stuðningi Akraneskaupstaðar,
að fjármagna kaup á Kirkjuhvoli.
Þar hefur því verið rekið Listasetur
síðan í ársbyrjun 1995. Hafa síðan
verið settar upp fjölmargar mynd-
listarsýningar í húsinu. Enginn
starfsmaður hefur verið við Kirkju-
hvol frá því um mitt þetta ár.
Kirkjuhvoll er hið reisulegasta
hús, á þremur hæðum samtals um
390 fermetrar. „Möguleiki verður á
að leigja húsið í heild, hluta þess eða
að fleiri en einn aðili taki sig saman
um leigu á húsnæðinu. Gert er ráð
fyrir þriggja mánaða gagnkvæm-
um uppsagnarfresti. Stærsti hluti
hússins er laus nú þegar,“ segir í til-
kynningu frá Akraneskaupstað, eig-
anda hússins. Tilboðum samkvæmt
ofangreindum forsendum þarf að
skila til þjónustuvers Akraneskaup-
staðar fyrir 20. september nk.
mm
Á fundi bæjarstjórnar Akranes-
kaupstaðar 27. ágúst sl. var m.a.
tekið fyrir bréf skipulags- og um-
hverfisnefndar, vegna erindis
Magnúsar Freys Ólafssonar f.h.
Kala ehf., um að endurskoðuð
verði leyfileg hámarksstærð húsa
samkvæmt deiliskipulagi á Ak-
urshóli. Fór Magnús Freyr fram
á að hámarksstærð húsa á svæð-
inu verði 70m2 í stað 50m2 sam-
kvæmt fyrstu drögum að nýju
deiliskipulagi. Á fundinum var
samþykkt með sjö atkvæðum að
deiliskipulagstillagan verði aug-
lýst samkvæmt skipulagslögum
með framangreindum breyting-
um á húsastærð. Gunnar Sigurðs-
son, annar af tveimur fulltrúum
Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn,
sat hjá við afgreiðsluna. Í sam-
tali við Skessuhorn vildi Gunn-
ar útskýra þessa afstöðu sína bet-
ur en hægt er að lesa úr fundar-
gerð bæjarstjórnar. Hann segist
byggja þessa afstöðu sína á því að
hans skoðun sé að nú verði Akra-
neskaupstaður að verja þau fáu
grænu svæði sem eftir eru innan
byggðar á Akranesi.
„Nú er svo komið að eini græni
bletturinn neðan við Merkurtún
á Akranesi er svæðið norðan við
fiskimjölsverksmiðjuna, sem nú
er verið að deiliskipuleggja fyr-
ir væntanlega smáhýsabyggð fyr-
ir fjárfesta sem vilja byggja þarna
gistihús fyrir erlenda sjóstang-
veiðimenn. Mín skoðun er sú
að menn þurfi að einblína á að
vernda þau fáu grænu svæði sem
eftir eru því þau eru vissulega
dýrmæt. Bendi ég á að nú er stutt
í að skipuleggja verður Sements-
verksmiðjureitinn upp á nýtt og
þar mun vafalítið verða nægt
rými fyrir smáhýsabyggð eins
og menn vilja byggja á Akurs-
hólnum. Þá má í þessu samhengi
benda á að við hlið Akurshóls eru
ónotaðar íbúðir í eigu Íbúðalána-
sjóðs sem vafalítið mætti fá keypt-
ar fyrir þessa starfsemi. Andstaða
við hugmynd að skipulagsbreyt-
ingu á grænu svæði við Jaðar-
sbraut fyrr á þessu ári bendir auk
þess til að íbúar hér á Akranesi
vilji verja ósnert og græn svæði
sem henta til útivistar. Grænum
svæðum hefur fækkað of mik-
ið að mínu mati. Af þessum sök-
um sat ég hjá þegar bæjarstjórn
hafði til afgreiðslu hugmynd að
breytingu deiliskipulags við Ak-
urshól,“ segir Gunnar.
mm
Óska eftir hugmyndum um
nýja starfsemi í Kirkjuhvol
Telur að verja þurfi
grænu svæðin í bænum
Ný flatningsvél leikur sér
með stóra fiskinn