Skessuhorn


Skessuhorn - 11.09.2013, Page 21

Skessuhorn - 11.09.2013, Page 21
21MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013 Framkvæmdum utanhúss er nú lokið við endurbætur á gamla vit- anum á Suðurflös á Akranesi. Ný- lega voru fjarlægðir verkpallar sem stóðu við vitann í sumar meðan framkvæmdir stóðu yfir og nú blas- ir vitinn við og er mikið augnayndi. Það er Trésmiðjan Akur sem hef- ur haft umsjón með endurbótun- um. Lagfæringar innanhúss í vit- anum eru eftir og verða þær gerðar fyrir veturinn. Viðgerðir við vitann hófust í lok síðasta árs, en þá var steyptur nýr kragi meðfram und- irstöðum. Snemma í vor var hald- ið áfram endurbótum utanhúss. Þá voru framkvæmdar múrviðgerð- ir á veggjum og viðgerð á ljósa- húsi og handriði. Ástand vitans, einkum múrklæðingar utanhúss, var verra en áætlað var þegar ráðist var í verkið. Því gerðu áætlanir nú í sumar þegar verkið var komið vel af stað ráð fyrir viðbótarkostnaði að upphæð krónur 2.350.000, en upp- hafleg áætlun um endurbætur á vit- anum voru um tíu milljónir króna. Gamli vitinn er einn af elstu stein- steyptu vitum landsins, byggður 1918. Fyrir um aldarfjórðungi voru síðast gerðar endurbætur á honum og beittu kiwanismenn á Akranesi sér fyrir þeim framkvæmdum og vörðu til þess fjármunum, nú eru þær fjármagnaðar úr bæjarsjóði að mestu. þá Rútuferðir ehf, fyrirtæk- ið sem ekur ferðir á Snæ- fellsnesi fyrir Strætó bs., tók sig til á dögunum og gaf öllum fyrstu bekking- um í grunnskólum á Snæ- fellsnesi endurskinsvesti. Einnig komu forsvars- menn fyrirtækisins við í öllum leikskólum á Snæ- fellsnesi og færðu nem- endum þar endurskins- merki. Gjöfin mun án efa koma sér vel fyrir þessa byrjendur í umferðinni nú þegar skammdegið gengur í garð. Rútu- ferðir ehf. fagnaði á dögunum eins árs afmæli, eins og fram kom ný- verið í viðtali hér í Skessuhorni við hjónin Hjalta Allan Sverrisson og Lísu Ásgeirsdóttur. Þau vildu af því tilefni gefa eitthvað til samfélagsins og þótti þessi gjöf tilvalin. tfk Framundan er vetrardagskrá í Landnámssetrinu í Borgarnesi og verður ekki annað sagt en fjöl- breytni verði í fyrirrúmi í dagskrá vetrarins. Frumsýning á „Ómari æskunnar“ verður 28. september kl. 20. Þar mun Ómar Ragnarsson tala í alvöru og spaugi um æsku sína og tengir atburði og fólk frá æskuár- um við atburði og fólk síðari tíma. Ómar lýsir því hvernig örlagasaga foreldra hans og litskrúðugs frænd- garðs og samferðafólks hafði mót- andi áhrif á hann allt til þessa dags. Í tilkynningu frá Landnámssetrinu segir að hér sé á ferðinni öðruvísi Ómar með sögur af fólki og fyrir- bærum. Hann mun enda frásögnina á því þegar hann stóð í fyrsta skipti á sviði tólf ára gamall í Vesaling- unum í Iðnó. Upplifun sem hafði einna mest áhrif á hann í allri hans mótunarsögu. Þarna hafi orðið til sviðsmaðurinn, uppistandarinn og sendiboðinn Ómar. „Ómar hef- ur skemmt okkur, frætt og vakið til umhugsunar um árabil en hér sýnir hann á sér algjörlega nýja hlið. Þó verður hér ekki bara alvaran á ferð, því eins og við vitum á maðurinn erfitt með að sitja á strák sínum,“ segir í tilkynningunni. Í október stigur síðan á stokk Einar Kárason rithöfundur og flyt- ur dagskrána Íslenskar hetjur, frá Gretti til Péturs Hoffmanns. Einar er sögumaður af guðs náð og hef- ur áður sýnt það og sannað í frá- bærlega skemmtilegum frásögn- um á Söguloftinu bæði af samtíma- mönnum og fornum köppum. Þann 16. nóvember koma svo félagarnir Maggi Eiríks og KK og fara í gegn- um sitt fimmtán ára brall. Í des- ember verður þau systkin KK og Ellen með hugljúfa jólatónleika, segir einnig í tilkynningunni. Baróninn á Hvítárvöllum kem- ur svo á fjalirnar á nýju ári, þann 10. janúar. Það er höfundurinn snjalli Þórarinn Eldjárn sem rek- ur dularfulla æfi þessarar sérkenni- legu söguhetju sem skildi eftir sig óafmáanleg spor í Borgarfirðinum. Þann 6. febrúar mun síðan spuna- hópurinn Voces Spontane og klar- inettutvennan Stump - Linshalm bjóða uppá sameiginlega spunatón- leika. Þá eru fleiri viðburðir í skoð- un, segir í tilkynningu frá Land- námssetrinu. þá Komin er út hjá Uppheimum, í samstarfi við Landbúnaðarhá- skóla Íslands, bókin Sauðfjár- rækt á Íslandi. Rit þetta mark- ar tímamót, því þrátt fyrir að fjárbúskapur eigi sér langa sögu sem mikilvæg atvinnugrein, er það ekki fyrr en með þess- ari bók að gefið er út alhliða fræðslurit um sauðfjárrækt á Íslandi. Bókin er 300 blaðsíð- ur. Sauðfjárrækt byggir á alda- gömlum merg og hefur verið samofin lífi Íslendinga frá önd- verðu. Með því að nýta nánast allt sem sauðkindin gefur af sér hefur þjóðin lifað af margháttaða erfið- leika. Öflug sauðfjárrækt er stund- uð á Íslandi og margvísleg nýsköp- un henni tengd. Bókin nýtist bæði starfandi bændum og öðru áhugafólki um sauðfé, sem og nemendum í bú- fræði, búvísindum og á námskeið- um um sauðfjárrækt. Bók- in er fróðleiksbrunnur öll- um þeim sem áhuga hafa á atvinnusögu Íslands og tengslum sauðfjár við ís- lenska menningu. Ritið er aðgengilegt og prýtt fjölda ljós- og skýringarmynda. Höfundar bókarinnar eru: Árni Brynjar Bragason, Bjarni Diðrik Sigurðsson, Emma Eyþórsdóttir, Eyj- ólfur Kristinn Örnólfsson, Guðmundur Hallgríms- son, Jóhannes Sveinbjörnsson, Jón Viðar Jónmundsson, Ólafur R. Dýrmundsson, Sigurður Þór Guð- mundsson og Svanur Guðmunds- son. Ragnhildur Sigurðardóttir rit- stýrði. -fréttatilkynning Fyrr í sumar fékk útibú tryggingafélagsins Sjóvá í Borgarnesi beiðni um styrk fyrir kaupum á reiðhjóla- hjálmum frá einum leikskól- anum í Borgarbyggð. Í kjöl- farið ákvað Sjóvá að setja sig í samband við fræðslustjóra sveitarfélagsins og athuga með þörf á hjálmum fyr- ir leikskólana. Ákveðið var að kaupa tvo hjálma á hvern leikskóla í Borgarbyggð og voru þeir afhentir um miðjan síðasta mánuð. Meðfylgjandi er mynd frá því hjálmarnir voru afhentir á Leik- skólanum Klettaborg í Borgarnesi. Á myndinni eru Kristín Jónsdótt- ir útibússtjóri Sjóvá í Borgarnesi, Steinunn Baldursdóttir leikskóla- stjóri ásamt hluta af elstu börnum leikskólans. mm Skessuhorn mun undir lok þessa mánaðar gefa út bókina Stolin krækiber – Skopmyndaskreytt úr- val vísnaþátta úr Skessuhorni. Eins og nafnið gefur til kynna er hér um að ræða efni sem á rætur í blaðinu, en bókin er gefin út í tilefni 15 ára afmælis Skessuhorns. Dagbjartur Dag- bjartsson safnaði, skráði og tengdi sam- an í lifandi frásögn 1.760 tækifæris- og lausavísur höfunda víðsvegar af Íslandi. Bjarni Þór Bjarna- son listamaður, sem einnig annast fasta þætti í Skessuhorni, myndskreytir bók- ina en í henni eru 126 skopteikningar Bjarna sem teikn- aðar eru við vísur úr bókinni. Nafn bókarinn- ar; Stolin kræki- ber, á sér litla sögu. Tímaritið Iðunn birti eitt sinn vísu eftir skáldkonuna Þuru í Garði að henni forspurðri. Bókar- nafnið er skírskotun í síðustu hend- ingu úr vísu Þuru þegar hún sendi Iðunnarmönnum tóninn: Nú er smátt um andans auð en allir verða að bjarga sér. „Iðunn“ gerist eplasnauð; etur hún stolin krækiber. Dagbjartur Dagbjartsson bóndi í Hrísum í Borgarfirði hefur alla tíð haft lifandi áhuga fyrir kveð- skap og safnað vísum og frásögn- um þeim tengdum. Hann hefur rit- að vísnaþætti í blöð um tveggja ára- tuga skeið, lengst af í Skessuhorn, en þættir hans í blaðinu eru nú að nálgast 400. Stolin krækiber hefur að geyma úrval þessara vísnaþátta og birtar vísur eftir hundruð skálda og hagyrðinga, af öllu landinu. Kveðskapur þessi er ýmist feng- inn af prenti eða munnlegri geymd. Marg- ar af vísun- um eru því að birtast í fyrsta skipti á prenti. Semsagt kræki- ber - og sum stolin. Vísurn- ar í bókinni eru eftir þekkta höf- unda og minna þekkta, ým- ist tækifæris- eða lausavísur. Þær eru tengdar saman með frá- sögn af einhverju sem tengist til- efni kveðskapar- ins; höfundun- um eða samskiptum þeirra við sam- ferðamenn sína. Útgáfuþjónusta Skessuhorns mun annast dreifingu og sölu bók- arinnar en byrjað verður að taka við pöntunum á næstu dögum í gegn- um heimasíðu Skessuhorns. Það verður kynnt nánar síðar sem og af- sláttur sem skuldlausum áskrifend- um býðst. Hér skal notað tækifærið og bent á að bókin Stolin krækiber er upplögð skemmtilesning fyrir fólk á öllum aldri en auk þess til- valin í jólapakkann eða til annarra tækifærisgjafa. Bókin er gefin út í kiljubroti, 250 síður og prentuð í Odda. Verð hennar er 4.990 krón- ur. mm Hér eru bækurnar Sauðfjárrækt á Íslandi og Frá hestum til hestafla, nýjasta bók Bjarna Guðmundssonar á Hvanneyri. Uppheimar gefa þær báðar út. Sauðfjárrækt á Íslandi - Nýtt grundvallarrit Gamli vitinn á Suðurflös eins og hann lítur núna út eftir endurbætur að utan. Ljósm. Áskell Þórisson. Gamli vitinn á Suðurflös orðinn augnayndi Ómar ríður á vaðið í fjölbreyttri vetrardagskrá í Landnámssetrinu Stolin krækiber – Skopmynda- skreytt úrval vísnaþátta Sjóvá gaf reiðhjólahjálma á leikskólana Myndin er tekin í Grunnskólanum í Grundarfirði með fyrsta bekk þar. Umsjónarkennarinn er María Ósk Ólafsdóttir sem er hægra megin við þau Hjalta og Lísu. Gefa nýliðum í umferðinni endurskinsmerki og vesti

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.