Skessuhorn


Skessuhorn - 11.09.2013, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 11.09.2013, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013 Hvernig er hægt að tileinka sér góðar venjur og venja sig um leið af þeim slæmu? Þessar spurning- ar eru lykilinntak Key Habits, ný- legs þjálfunarnámskeiðs sem hleypt hefur verið af stokkunum. Key Ha- bits er hugarfóstur frumkvöðuls- ins Brynjars Karls Sigurðssonar og samstafsmanna hans, en segja má að þjálfunaráætlunin sé afleggjari af Sideline Sports, þjálfunarkerfi sem Brynjar og félagar hafa þróað og haldið utan um á liðnum árum. Sideline Sports hefur notið gríðar- legra vinsælda hjá mörgum þjálf- urum liða í helstu keppnisdeildum heimsins, á borð við NBA, NFL og ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, svo einhver dæmi séu nefnd. Brynj- ar Karl er mörgum Skagamönn- um að góðu kunnur en hann lék og þjálfaði körfubolta hjá ÍA á ár- unum 1994-2000. Þá stofnaði hann körfuboltaakademíu FSu á Selfossi árið 2006 og þjálfaði lið akademí- unnar með góðum árangri í nokk- ur ár. Brynjar var á ferðinni á Akra- nesi á fimmtudaginn í síðustu viku þar sem hann hélt fyrirlestur af miklum eldmóði um Key Habits og hugmyndafræðina sem býr að baki framtakinu frammi fyrir 40 fulltrú- um fyrirtækja, stofnana, bæjaryfir- valda og félagasamtaka í bænum. Fyrirlesturinn var í boði ÍA sem vildi með honum hvetja þátttak- endur til að leggja áherslu velferð og heilsu starfsmanna sinna. Blaða- maður Skessuhorns fræddist meira um málið og ræddi við Brynjar um þessa athyglisverðu nýjung. Markmiðið að verða óþarfir „Sú þekking sem myndaðist við þró- un Sideline Sports er í raun grunn- urinn að Key Habits,“ segir Brynjar Karl við upphaf spjalls um Key Ha- bits. „Í grunninn er sama hugsun- in á bakvið bæði, það að þjálfa fólk í að komast frá stað A til staðar B, einfaldlega að ná settum markmið- um, hver sem þau eru. Þannig erum við að þjálfa fólk í að hámarka af- köst sín í vinnu og í lífinu almennt. Munurinn er kannski sá að Sideline Sports er hugsað til að hámarka ár- angur keppnisliðs í íþróttum, hvort sem það er körfuboltalið, fótbolta- lið eða ruðningslið, meðan Key Habits miðar að því hámarka ár- angur einstaklingsins í mataræði, hreyfingu og almennri markmiðs- setningu í lífinu. Aðferð okkar heit- ir öðru nafni fjarþjálfun en með til- komu Sideline Sports á sínum tíma gerðumst við brautryðjendur á því sviði.“ Brynjar segist líta á Key Habits sem einn stóran miðlara, sem hafi það furðulega hlutverk að gera sig óþarfan síðar meir. „Þetta hljómar kannski furðulega en raunin er sú að æðsta markmið sérhvers þjálf- ara er að búa þannig um hnút- ana að hann verði með tíma óþarf- ur, það er að liðið eða einstakling- urinn nái því marki að sinna eig- in þjálfun og verkefnum án þess að þurfa að láta segja sér til. Markmið- ið er að einstaklingar öðlist þá hvöt sem er nauðsynleg til að vera trú- lega sínir eigin herrar. Að þessu hef ég komist í samskiptum mínum við fjölmarga þjálfara í gegnum tíðina og hef lagt áherslu á þetta í þróun kerfanna okkar. Við viljum sem sagt þjálfa upp virka og agaða einstak- linga í Key Habits.“ Lykilvenjurnar mikilvægar Key Habits er samnefnari yfir tvö fjarþjálfunarnámskeið, að sögn Brynjars. Annars vegar er um að ræða námskeið sem miðar að því að bæta mataræði þátttakenda, og hins vegar þjálfun í markmiðssetningu. Hver þátttakandi fær sinn þjálfara sem miðlar efni til hans og sinnir allri nauðsynlegri eftirfylgni á nám- skeiðstímanum, sem er mislangur eftir atvikum. „Markmið okkar er síðan að gera okkur óþarfa eins og ég sagði áður, það er að eftir nám- skeiðið verði allar þær góðu venj- ur sem við leggjum áherslu á orðn- ar lærðar og þannig komnar inn í daglega rútínu hvers og eins. Nafn- ið „Key Habits“ er einmitt dreg- ið af þessu inntaki þjálfunarinnar, sem grófþýða má sem „lykilvenj- ur“, en enskt heiti hennar er einn- ig tilkomið þar sem við erum einn- ig að bjóða upp á námskeiðið er- lendis. Sú spurning sem ræður för í okkar starfi og við reynum að láta endurspegla á öllum stigum þjálf- unarinnar er: „Hvers vegna erum við að gera það sem við erum að gera?“ Við viljum fá þátttakendur til að vera sífellt að hugsa um verk- efni sín og ætlun í lífinu. Litlir sem smáir hlutir eru hér undir, svo sem af hverju burstum við alltaf tenn- urnar áður en við förum að sofa? Erum við að baktala fólk? End- anlegt markmið er því að rútínu- væða góðu venjurnar og sníða af þær slæmu.“ Þjálfa í gegnum hugbúnað Nýbreytni Key Habits felst ekki síst í notendavænum og aðgengilegum tölvuhugbúnaði að mati Brynjars, þar sem megnið af þjálfuninni á sér stað. Búnaðurinn hefur það hlut- verk að miðla upplýsingum milli þátttakenda og þjálfara en hann er byggður á sama grunni og Sideline Sports. Forritið er megin farveg- ur þjálfunarinnar. ,,Þegar fólk skrá- ir sig hjá okkur á keyhabits.is get- ur það sótt forritið í tölvuna sína, snjallsímann eða spjaldtölvuna. Þar byrja hlutirnir að gerast því þar fer fram skráning á mataræði, hreyf- ingu og öðrum þáttum sem snerta þjálfunina. Í gagnagrunni okkar er á skrá gríðarlegur fjöldi matvöru- tegunda svo dæmi sé tekið, sem notendur hafa skráð sjálfir inn svo það er hægur leikur að framkvæma skráningu. Á grunni skráningarinn- ar hefst þjálfunin og er eftirfylgni þjálfara okkar mikil en þeir eru í stöðugu sambandi við þátttakend- ur meðan á þjálfunartíma stend- ur. Það skiptir máli því maður er manns spegill. Þá hafa þjálfararnir aðgang að fjölmörgum sérfræðing- um á okkar vegum, svo sem lækn- um og næringarfræðingum ásamt öðru fagfólki, sem miðlar af þekk- ingu sinni til okkar. Forritið auð- veldar líka þátttakendum og þjálf- urum, að öðlast yfirsýn yfir fram- vinduna í námskeiðinu. Til dæm- is birtist frammistaðan í grafísku formi hvar hlutföll næringarefna í fæðu sérhvers dags og magn ka- loría sem innbyrtar eru sjást skýrt og greinilega. Þetta hjálpar veru- lega til við að tryggja yfirsýn yfir árangur að okkar mati, sem er með því mikilvæga í þjálfun. Sjálfur kalla ég þetta að klifra upp í tré – að fá yfirsýn yfir skóginn sem við erum alltaf stödd í í okkar daglega lífi.“ Fyrirtæki eru eins og íþróttalið Brynjar kveðst hafa orðið var við töluverða eftirspurn eftir þjálfun- arnámskeiðum eins og Key Habits og hafi hún raunar komið sér veru- lega á óvart. Starfsemi fyrirtækisins hefur af þessum orsökum verið að aukast að umfangi á liðnum miss- erum og er það nú með starfsstöðv- ar í Bandaríkjunum og á Norður- löndum, en einnig er í burðarliðn- um opnun starfsstöðvar í Bret- landi. „Stór vaxtarbroddur hjá okk- ur er samstarf við fyrirtæki sem eru að kaupa aðgang að námsskeiðum okkar fyrir starfsmenn sína. Mark- mið okkar er nefnilega öðrum þræði að vera viðurkenndir sem umsjón- araðilar frammistöðu stjórnunn- ar (e. performance managment) á þessum vettvangi. Stöðugt er ver- ið að vinna að ákveðnum mark- miðum innan fyrirtækja, í gæðum og framleiðslu svo dæmi sé tekið, og þá skiptir miklu máli að starfs- menn, líkt og leikmenn í íþróttalið- um, séu með sitt líka á hreinu - hafi skýra sýn á markmiðin sín og gildi og lifi heilsusamlegu lífi. Sýnt er að virkni þeirra verður meiri fyrir vik- ið. Að okkar mati er rosalega erf- itt verkefni í hvaða liðsheild sem er að vinna að sameiginlegu markmiði ef einstaklingar innan hópsins vita ekki sín eigin markmið. Það segir sig sjálft að eitthvert körfuboltalið myndi ná takmörkuðum árangri ná ef menn eru ekki í nægjanlega góðu formi, bæði andlega og líkamlega. Sama gildir um önnur verkefni og markmið. Þetta viljum við bæta í okkar starfi hjá Key Habits,“ segir Brynjar að lokum. hlh Nemendur á leikskólanum Sólvöll- um og Grunnskóla Grundarfjarð- ar fengu lögregluna í heimsókn mánudaginn 9. september síðast- liðinn. Þann dag var einmitt for- varnardagurinn og kom lögreglan og ræddi við börnin um það sem er mikilvægt að læra varðandi um- ferðarlögin, svo sem hjálmanotkun, öryggisbelti og fleiri brýn málefni. Allir fengu svo endurskinsmerki að loknum umræðum. tfk Nú styttist í að almenningsbóka- söfn landsins veita tvenn verðlaun fyrir bestu barnabækurnar, eina frumsamda og aðra þýdda. Bæk- urnar eru valdar af 6-12 ára börn- um, en valið fer fram á heimasíðu Borgarbókasafnsins og í grunnskól- um og bókasöfnum landsins. Skila- frestur tilnefninga er til 20. sept- ember. Þær bækur sem hljóta verð- launin verða kynntar við hátíðlega athöfn í aðalsafni Borgarbókasafns- ins síðar í haust. Margt fleira er þó í gangi á vettvangi íslenskra bóka- safna. Bókasafnsdagurinn var hald- inn sl. mánudag. Þann dag var vef- urinn bokasafn.is jafnframt opnað- ur. Málþing um tengsl almennings- bókasafna og sveitarstjórnarstigs- ins verður haldið í Mosfellsbæ 27. september nk. Alþjóðlegi Bangsa- dagurinn verður svo 27. október en bókasöfn landsins hafa haldið hann hátíðlegan síðan 1998. Mánudag- inn 11. nóvember hefst svo Nor- ræna bókasafnsvikan og er þem- að að þessu sinni „Vetur á Norð- urlöndum“ og textar eftir norska höfundinn Tarjei Vesaas og barna- bókahöfundana Ingu Borg frá Sví- þjóð og Lönu Hansen frá Græn- landi hafa verið valdir til upplestr- ar. sko Lögreglan heimsótti skólana á forvarnadaginn Margt framundan hjá bókasöfnunum Hinn árlegi bókasafnsdagur var á mánudaginn en framundan eru ýmsir viðburðir í söfnum landsins. Góðar venjur rútínuvæddar til að ná betri markmiðum Rætt við frumkvöðulinn Brynjar Karl Sigurðsson um Key Habits þjálfunarnámskeiðið Góð mæting var á fyrirlestur Brynjars sem hann flutti af miklum eldmóði. Brynjar Karl Sigurðsson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.