Skessuhorn


Skessuhorn - 11.09.2013, Qupperneq 23

Skessuhorn - 11.09.2013, Qupperneq 23
23MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013 Síðustu misserin hefur alíslenskt æfingakerfi öðlast miklar vinsæld- ir. Þetta kerfi heitir Metabolic og í haust verða hópar sem æfa eftir þessu kerfi á 13 stöðum á landinu. Rúna Björg Sigurðardóttir byrj- aði fyrir ári að bjóða upp á æfinga- tíma í Metabolic í íþróttasalnum og í þrekmiðstöðinni á Jaðarsbökk- um á Akranesi. Í fyrra var allt upp í 90 manns að sækja tíma þegar mest var. Í haust kom til samstarfs við Rúnu Björgu, Kristinn Guðbrands- son íþróttafræðingur, og verða þau saman með tímana í vetur. Rúna Björg segir að þegar núna á haust- dögum sé á sjötta tuginn búinn að skrá sig í Metabolic og ágætlega líti út með veturinn. Rúna Björg útskrifaðist sem ÍAK einkaþjálfari frá Keili. Helgi Jón- as Guðfinnsson, styrktarþjálfari, körfuboltaþjálfari og þjálfunar- kennari við Íþróttaakademíu Keilis er höfundur Metabolic æfingakerf- isins. Hann kenndi Rúnu þjálfun í Keili og hreifst hún mjög af þjálf- unaraðferðum hans sem endur- speglast í kerfinu, en markviss ár- angur er slagorð Metabolic æfinga- kerfisins. Hvað er Metabolic? Í spjalli við Rúnu Björgu kom fram að Metabolic er í grunninn stöðva- þjálfunarkerfi, hannað fyrir alla þá sem vilja komast í gott alhliða form og hafa gaman af því án þess að ganga of nærri sér. „Mikilvæg- ir þættir í æfingakerfinu eru for- varnir gegn meiðslum og álags- dreifing. Tekið er tillit til líkam- legs ástand hvers og eins og þótt um hópþjálfun sé að ræða er leit- ast við að gefa hverjum og einum gaum líkt og um einkaþjálfun sé að ræða,“ segir Rúna Björg. Hún segir engar tilviljanir í Metabolic æfinga- kerfinu. „Allir tímar eru fyrirfram hannaðir í ákveðinni röð þar sem vel er gætt að jafnt sé unnið með styrk, þol og kraft. Metabolic þýð- ir í raun efnaskipti en rauði þráð- urinn í gegnum þjálfunina er að auka efnaskiptahraðann eða grunn- brennsluna eins og það er gjarnan kallað. Við vinnum mikið í styrkt- aræfingum fyrir stóru vöðvana og með marga vöðvahópa saman til að fá sem mest út úr þjálfuninni á sem skemmstum tíma. Hver Metabolic- tími er ekki nema 45 mínútur með upphitun og niðurlagi og við erum aðeins um 25 mínútur undir miklu álagi. Það er alveg nóg og þeir sem vilja taka vel á því klára sig alveg á þeim tíma. Tímarnir eru mjög fjöl- breyttir og ýmist er áherslan á fitu- brennslu, vöðvastækkun, úthald- saukningu eða kraft. Árangurinn skilar sér í æfingunum þannig að það gerist ekki í Metabolic að fólk lendi í stöðnun.“ Veita aðhald og stuðning Rúna Björg segir að fólk sé að ná gríðarlega miklum árangri í Me- tabolic. „Þar spilar líka inn í hlut- verk okkar þjálfaranna, en við erum ekki bara að kenna í tímunum held- ur líka að veita fólkinu okkar að- hald og stuðning, líkt og það væri í einkaþjálfun. Við bjóðum upp á mælingar reglulega og fræðslu um mataræði auk þess sem við förum yfir matardagbækur ef þess er ósk- að. Við leggjum ríka áherslu á að fólk fái góða upplifun af þjálfun- inni og hlakki til að koma aftur.“ Rúna Björg segir að þau í Metabo- lic leggi mikið upp úr forvörn gegn meiðslum og fólk fari ekki fram- úr sér í æfingum. Þar komi sér vel að hún er lærð master rehab þjálf- ari, en rehab segir hún að sé á viss- an hátt brú á milli hins almenna einkaþjálfara og sjúkraþjálfara. Það sé kunnáttan að meta hvort þjálfar- inn geti unnið með þau óþægindi sem skjólstæðingur hans finnur fyr- ir og hvort iðkandinn geti stundað hreyfingu áfram án þess að eiga á hættu frekari meiðsli. Við allra hæfi Rúna Björg segir að fagleg þjálfun sé nauðsynleg ekki síst í því ljósi að stór hópur nútímafólks er farinn að glíma við stoðkerfisvandamál eftir langvarandi kyrrsetu, svo sem verki í baki, hnjám og öxlum. Mikilvægt sé að fara hægt af stað og ofgera sér ekki. „Öryggi skiptir okkur miklu máli í Metabolic. Við notum mik- ið leiðréttingaræfingar í þjálfuninni til að vinna á stoðkerfisvandamál- um og bæta líðan iðkenda,“ segir Rúna Björg. Aðspurð fyrir hverja Metabolic sé, segir hún að stærsti hópurinn sé 25-55 ára og þjálfunin henti bæði körlum og konum. „Eitt af því allra besta við kerfið er að fólk á öllum getustigum getur tekið þátt og fengið mikið út úr þjálfun- inni. Þannig getur þrítugur íþrótta- maður og 50 ára gömul kyrrsetu- manneskja gert sömu æfinguna. Álagstíminn er yfirleitt það stuttur í senn að það er enginn að pæla í næsta manni, heldur hefur nóg með sig að gera. Við þjálfararnir sjáum til þess að hver og einni finni álag við hæfi. Síðan gætum við þess að ýta við fólki ef það er farið að hafa það of gott,“ sagði Rúna Björg að endingu. þá Öll höfum við hæfileika og við erum einstök en við erum ekki fullkom- in. Við tökum óendanlega marg- ar ákvarðanir á lífsleiðinni sem líka hefur áhrif á aðra ekki bara á okk- ur sjálf. Takmarkið hlýtur á endan- um að snúast um að taka „farsæla“ ákvörðun sem veitir lífshamingju. En þegar maður veitir fréttaflutn- ingi af umheiminum athygli þá sér maður hvað maðurinn er ófullkom- inn og sársaukinn mikill af manna völdum. Kjarnaviðhorf og lífsreglur Strax í æsku er sagt að við mótum okkar kjarnaviðhorf til lífsins og við búum til eigin lífsreglur sam- hliða uppvextinum. Því miður, þá er alltaf stutt í neikvæðar hugsan- ir um eigið ágæti þannig að maður verður sjálfum sér verstur. Við eig- um það til að framkalla svokallað- ar hugsanaskekkjur og maður verð- ur óvirkari en ella í lífinu. Sem aft- ur leiðir til þess að þjóðin, fjölskyld- an, fyrirtækið, nágranninn fá ekki að njóta krafta og einlægni viðkom- andi sem skyldi vegna neikvæðs við- horfs á eigin getu. Hvernig byggir maður upp sam- félag sem kemur í veg fyrir óvirkni einstaklingsins, orkutæmingar, til- litsleysi, fordóma, einelti, vanlíð- an, o.s.fv? Hvernig eflir maður sjálfstraust einstaklingsins? Hvernig virkjum við kraftinn okkar til bætts mann- lífs? Ef við veitum fyrrnefndum spurn- ingum athygli og reynum að svara þeim hvert og eitt þá munum við þróast í átt að enn betra samfélagi. Forðumst að verða þrælar eigin hugsunar. Ákvarðanatakan í lífinu er í takt við þína innri yfirvegun Það er ekki sjálfgefið að fæðast í toppþjálfun í því að bregðast rétt við áföllum eða óhöppum. Það krefst æfingar/þjálfunar að taka „rétta“ ákvörðun og vinna sig út úr erfiðum aðstæðum. Það er oft við slíkar aðstæður sem við skilgrein- um verðmæti lífsins upp á nýtt. Það gerðum við eftir hrunið svokallaða. Oft erum við búinn að setja okk- ur mörg markmið í lífinu sem aftur veldur því að nálgunin verður óljós og flókin og árangurinn verður eft- ir því. Einföldum markmiðin, höf- um þau færri. Öll sækjumst við eftir innri ró/ vellíðan og leiðin að því er ekki endilega auðveld. Óttinn um ranga ákvörðun í fortíðinni og áhyggjur af framtíðinni er ekki beint til að skapa innri ró. Sömuleiðis stöðug- ar illdeilur þar sem ekkert er gefið eftir o.s.fv. Ef maður er virkur og farsæll innan um vini, fjölskyldu og vinnufélaga þá eru líkur á því að þú hafir öðlast innri ró. Ákvarðanatakan er í takt við þína innri yfirvegun. Veitum hvert öðru athygli. Hugleiddu í hvaða tíð viltu nýta þinn takmarkaða tíma; í fortíð, nútíð eða framtíð? Hvenær ert þú til staðar fyrir þig og þína? Að læra að fyrirgefa Til að skapa sér vellíðan má hugsa sér að rækta væntumþykjuna, heils- una, einlægni, heiðarleika og læra að fyrirgefa. Hættum að dæma aðra, enginn er fullkominn. Losum okkur við fordóma, hlustum á samviskuna/ magatilfinninguna, temjum okkur jákvæða hugsun, leitum lausna og ekki að eyða orkunni í eitthvað sem var og hugsanlega verður. Samstarf ÍA og Key habits Íþróttabandalag Akraness vill stuðla að heilbrigðri sál í hraustum líkama. Þess vegna gerði Íþrótta- bandalagið samning nýverið við fyrirtækið Key Habits (keyhabits. is/akranes). Með samningnum fær afreksíþróttafólkið okkar og marg- ir þjálfarar aðgang að vef Key ha- bits. Þar er að finna persónulegan stuðning í gegnum netið, fræðslu, þjálfunarleiðir og praktískar að- ferðir til að efla sig í lífinu m.a. með markmiðssetningu. Þjálfunin getur þess vegna orðið einstaklingsmið- aðri en ella. Mesti ávinningurinn af Key ha- bits er samt sem áður fyrir almenn- ing. Vefurinn er í mínum huga eins- konar einstaklingsmiðaður sam- félags- / upplýsingavefur fyrir allt sem viðkemur hollustu, hvort sem það er andleg eða líkamleg næring. Með kaupum á aðgengi þá fær maður persónulegan stuðning við heilsulæsi í 8 vikur og svo 16 vikna þjálfun í markmiðssetningu, skrán- ingaraðgang í heilt ár, samhliða gígantískum upplýsingum um lífið og tilveruna eins og almenna holl- ustu, fjármálalæsi, hugræna atferl- ismeðferð o.fl. Samhliða eru óteljandi mögu- leikar í líkamsrækt hér á Skaga eins og árskort í þrek og sund, einka- þjálfun, golf, sjósund, dans, yoga o.s.frv., allt hægt að sjá á www.ia.is. Eða sinna fjölbreyttu félagslífi bæj- arins sér til skemmtunar og yndis- auka. Auka vellíðan síns starfsfólks Við viljum hvetja fyrirtækin til að nýta sér þennan möguleika sem lið í því að auka vellíðan síns starfs- fólks í von um farsælar ákvarðanir þess. Þunglyndir/mjög óánægðir starfsmenn eru ekki líklegir til að taka „réttar“ ákvarðanir til hags- bóta fyrir fyrirtækið við slíkar að- stæður nema að fá tækifæri til að eflast. Key habits veitir frían prufu- aðgang að kerfinu með því að senda póst á keyhabits@keyha- bits.is Í gegnum Íþróttabandalag Akraness getur almenningur síð- an fengið 50% afslátt af kaupun- um á Key habits, sem sagt á 35 þ.kr. í stað 70 þ.kr. Að auki, sá sem kaupir veitir þar með okk- ar íþróttafólki á Akranesi stuðn- ing. Allar upplýsingar er hægt að fá hjá ia@ia.is og Jóni Þóri Þórð- arsyni í síma 895-1278. Próf- aðu frían aðgang að Key habits í gegnum Íþróttabandalag Akra- ness með því að senda á : (keyha- bits@keyhabits.is) Gangi ykkur vel með Key ha- bits, þið getið ekki tapað á því. Sturlaugur Sturlaugsson, for- maður Íþróttabandalags Akraness. Pennagrein Að vera sjálfum sér verstur... Metabolic eitt vinsælasta líkamsræktarkerfið í dag Rúna Björg Sigurðardóttir er með Metabolic æfingar á Akranesi.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.