Skessuhorn - 20.11.2013, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 47. tbl. 16. árg. 20. nóvember 2013 - kr. 600 í lausasölu
10 töflur
25%
afslát
tur
Hvíldarstólar
Tau- eða
leðurklæddir
Opið virka daga 13-18
Í þriðja skipti á jafn mörgum árum
glímir Mæðrastyrksnefnd Vest-
urlands við húsnæðisskort. Engu
að síðu mun nefndin aðstoða eft-
ir fremsta megni þá sem þess þurfa
fyrir jólin, en með öðrum hætti en
undanfarin ár. Nefndin hefur á liðn-
um árum, fyrir andvirði söfnunarfjár,
veitt um 140 fjöl-
skyldum aðstoð
sem fólgin hef-
ur verið í mat-
argjöfum. Nú
verður styrkur til
fjölskyldna hins
vegar í formi
úttektarkorta í
verslunum Bón-
us. Mæðra-
s t y r k s n e f n d
Vesturlands hefur aðsetur á Akra-
nesi en styður við fólk á öllu Vestur-
landi sem sækir um fjárhagsaðstoð til
nefndarinnar. Þess má geta að Bónus
rekur verslanir á Akranesi, í Borgar-
nesi og Stykkishólmi þannig að að-
gengi fólks er gott til að nýta stuðn-
ing nefndarinnar með þessum hætti.
„Vegna húsnæðisleysis höfum við
ekki möguleika á að taka við matar-
gjöfum að þessu sinni,“ segir Aníta
Björk Gunnarsdóttir sem sæti á í
stjórn Mæðrastyrksnefndar Vestur-
lands. „Hins vegar nýtist stuðning-
ur í formi úttektarkorta í verslunum
ekki síður þeim sem þarfnast aðstoð-
ar. Úthlutun mun einfaldlega gerast
með þeim hætti að við deilum öllum
þeim peningagjöfum sem við öflum
jafnt niður á þá skjólstæðinga sem
sækja um aðstoð.“ Aníta Björk segist
búast við að svipað margir sæki um
aðstoð nefndarinnar og síðustu ár og
bindur vonir við að úthlutun til hvers
og eins skjólstæðings nefndarinnar
gæti numið allt að 15.000 krónum
á hvern skjólstæðing/fjölskyldu. Það
eigi hins vegar eftir að koma í ljós,
bæði hvernig aflast og hversu margir
sækja um til nefndarinnar.
Aníta Björk segir að fólk þurfi
að hringja til nefndarkvenna til
að sækja um að fá úttektarkortin.
„Tökum við þá niður nafn og síma-
númer og afhendum kortin svo í
kringum 10. desember næstkom-
andi. Símanúmerin sem hringja má
í eru: 868-3547 (Aníta) og 898-1231
(María Ólafsdóttir). Stjórn Mæðra-
styrksnefndar er skipuð fimm kon-
um og mun hún í heild annast út-
hlutun kortanna,“ segir Aníta.
Mæðrastyrksnefnd Vesturlands
biðlar nú til einstaklinga, stofn-
ana og fyrirtækja sem eru aflögufær
um stuðning. „Margt smátt ger-
ir eitt stórt,“ segir hún. Hægt er að
leggja framlög inn á söfnunarreikn-
ing nefndarinnar á bankareikn-
ing: 0186-05-65465 og kennitala:
411276-0829. Aníta Björk segir
að gott væri ef fjárstuðningur ber-
ist í síðasta lagi um næstu mánaða-
mót til að nefndin sjái hvað verð-
ur til úthlutunar og geti í framhald-
inu pantað úttektarkortin. Úthlut-
un þeirra mun fara fram í húsnæði
RKÍ við Skólabraut 25A á Akranesi
eða verða send til skjólstæðinga
nefndarinnar búi þeir utan Akra-
ness.
mm
Arinbjörn Hauksson frá Borgarnesi er rafvirki hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Þessi skemmtilega mynd var tekin föstudaginn 1. nóvember sl. en þá var starfsfólk OR að prófa
svokallaða Tetra gátt til að sjá hvort tetrasamband næðist niður í brunn á hitaveitulögn við Litlu Fellsöxl í Hvalfjarðarsveit. Augnablikið þar sem Arinbjörn og hesturinn
hittast er vissulega hlýlegt. Ljósm. Hildur Ingvarsdóttir.
Mæðrastyrksnefnd Vesturlands
mun úthluta Bónuskortum
Aníta Björk Gunn-
arsdóttir.
Mæðrastyrksnefnd Vesturlands mun í
ár deila peningum út til skjólstæðinga
sinna í formi úttektarkorta í Bónus.
Húshitun
snarhækkar
Íbúar á svokölluðum „köldum“
svæðum horfa fram til þess að rík-
isvaldið lækki verulega niður-
greiðslu á raforku til húshitunar.
Þá er að leita leiða til að hita hús-
in með öðrum hætti en með raf-
magni, eða draga í það minnsta úr
raforkukaupum. Í Skessuhorni í
dag er opnuumfjöllun þar sem m.a.
er rætt við Kristinn Jónasson bæjar-
stjóra Snæfellsbæjar. Hann er jafn-
framt formaður Samtaka sveitarfé-
laga á köldum svæðum. Íbúar Snæ-
fellsbæjar hafa öðlast áhugaverða
reynslu af notkun varmadælna til að
vinna húshita úr bergi, sjó, lofti og
vatni og þannig sparað stórar fjár-
hæðir í kaupum á rafmagni. Einn-
ig er talað við Árna Kópsson bor-
mann sem hefur áralanga reynslu af
leit að heitu vatni. mm