Skessuhorn


Skessuhorn - 20.11.2013, Síða 4

Skessuhorn - 20.11.2013, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20 . NÓVEMBER 2013 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.480 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.150. Verð í lausasölu er 600 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir, blaðamaður gudny@skessuhorn.is Heiðar Lind Hansson, blaðamaður hlh@skessuhorn.is Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Umbrot: Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. „Við komum því til skila – eitthvað áleiðis“ Leiðari Póstþjónusta í dreifbýli er viðkvæmt mál enda hefur verið sótt að þess- um sjálfsögðu mannréttindum að fá sendan póst, óháð búsetu. Nú virð- ist sem yfirlýst markmið stjórnvalda sé að skerða þessa þjónustu enn frek- ar í skjóli hagræðingar og arðsemiskröfu til Íslandspósts, svo vitlaus sem sú krafa nú er. Dreifbýlingar, þessi sífellt smækkandi hópur Íslendinga sem hlutfall af heilli þjóð, virðast í sífellt fleira tilliti eiga í vök að verj- ast og nægir að nefna sem dæmi minni niðurgreiðslu húshitunarkostnað- ar á köldum svæðum, eins og við fjöllum um í Skessuhorni þessa vikuna. Sökum þess að almennum bréfasendingum hefur fækkað á liðnum árum í takt við aukin tölvusamskipti, telur ríkisfyrirtækið Íslandspóstur of dýrt að þjóna með sama hætti íbúa í dreifðum byggðum þessa lands og íbúa í þéttbýli. Allt skal því gert, hvort sem tautar eða raular, til að draga úr þjónustu í skjóli hagræðingar. Rótfastir póstkassar heim við bæi og ná- grenni þeirra eru nú rifnir upp með rótum og með fulltingi starfsmanna ríkisfyrirtækisins Vegagerðarinnar er þeim nú þessa dagana plantað sem allra lengst frá íbúðarhúsum í sveitum, helst úr sjónmáli, jafnvel mörg- um kílómetrum frá mannabyggð. Með tilstuðlan enn einnar ríkisstofnun- arinnar, sem heitir Póst- og fjarskiptastofnun, eru löglærðir menn í inn- anríkisráðuneytinu látnir semja reglugerð sem nú liggur að því er virðist fullmótuð merkt „Drög“ á vef ráðuneytisins. Reglugerð þessi heitir „Um breytingu á reglugerð um alþjónustu og framkvæmd póstþjónustu númer 364/2003.“ Einungis virðist vanta staðfestingu ráðherra. En víkjum að hinni væntanlegu reglugerð. Þar kennir ýmissa grasa, svo sem: „Á dreifbýlissvæðum, þar sem kostnaður við dreifingu er þrefaldur eða meiri miðað við samskonar kostnað í þéttbýli, er rekstrarleyfishafa heimilt að fækka dreifingardögum í annan hvern virkan dag.“ Þetta kýs ég að túlka með þeim hætti að daginn eftir að reglugerðin verður undir- rituð af ráðherra, muni póstdreifingardögum í dreifbýli fækka um helm- ing frá því sem nú er. Þá segir í 16. grein þessarar væntanlegu reglugerð- ar að í þéttbýli skuli bréfakassi (póstlúga) vera við eða í húsi. Þéttbýli er skilgreint þar sem 200 eða fleiri búa og að hámarki 200 metrar eru á milli húsa. Þegar kemur að reglum um dreifbýli hveður hins vegar við allt ann- an tón um staðsetningu póstkassa. Þar þarf engar bréfalúgur, þar skulu íbúar ræsa bíl og aka jafnvel marga kílómetra eftir póstinum sínum. Póst- kassar skulu nú vera á vegamótum afleggjara ef þeir eru allt að 500 metra langir. Ef afleggjari er lengri og tvö hús eða færri eru á tveggja kílómetra afleggjerum tengi- eða stofnvegar, þá mega póstkassarnir bara vera þar sem póstinum sýnist, þ.e. enn lengra og jafnvel í næstu sveit ef því er að skipta. Er nema eðlilegt að íbúar í sveitum landsins séu forviða? Hvar er samræmið í þjónustu við íbúa þéttbýlis og dreifbýlis? Til hvers erum við með alla þessa alþingismenn sem fulltrúa landsbyggðarinnar, ef þeir stöðva ekki svona endemis vitleysu? Það er alveg ljóst að næstu daga stendur til að innanríkisráðherra skrifi undir reglugerðina sem ég hef hér nefnt. Það mun beinlínis skerða sjálf- sögð réttindi fólks í sveitum. Íslandspóstur er hins vegar fyrir löngu far- inn að vinna eftir þessum breytingum og færsla póskassa með valdi, gegn vilja íbúa, er fyrir löngu hafin án þess að nokkrar heimildir hafi verið til þess. Það gefur hins vegar auga leið að ekkert öryggi er lengur falið í því að senda póst og verðmætar sendingar út á land með pósti. Í ljósi þess að hið ágæta fyrirtæki Íslandspóstur hefur slegið um sig með slagorðum á borð við: „Við komum því til skila,“ þá er vinsamleg ábending til slag- orðahöfunda þess ágæta fyrirtækið að því verði hér eftir breytt í: „Við komum því til skila - eitthvað áleiðis.“ Magnús Magnússon. Samkvæmt frumvarpi að fjárhags- áætlun fyrir Hvalfjarðarsveit, sem lagt var fram til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar sl. þriðjudag, er gert ráð fyrir 205 milljónum til fram- kvæmda á næsta ári. Langstærsta framkvæmdin er ljósleiðaravæðing í sveitarfélaginu, en framkvæmdir við það verkefni eru nýlega hafnar. Á þessu ári er gert ráð fyrir 130 millj- ónum til verkefnisins en á næsta ári 165 milljónum. Áætlunin gerir ráð fyrir að lagningu ljósleiðarans ljúki eigi síðar en 15. júní næsta sumar. Til framkvæmda í Melahverfi II er áætlað að verja 15 milljónum á næsta ári. Til hitaveituvæðingar í sveitarfélaginu er áætlað að verja einnig 15 milljónum króna og til hitaveitu Hlíðarbæjar 10 milljónum. Í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir 190 milljónum í eigin fjármögnun til verkefnanna. Einnig gerir frumvarpið ráð fyrir 180 millj- óna lántöku. Í áætluninni er gert ráð fyrir 3,5% kostnaðarhækkunum á næsta ári. Rekstrarafgangur A- og B-hluta fjárhagsáætlunar er áætlað- ur 27,5 milljónir. Við gerð fjárhags- áætlunarinnar var m.a. stuðst við þær upplýsingar sem fram komu á fjár- málaráðstefnu sveitarfélaganna síð- asta haust. þá/ Ljósm. áþ. Síðar í þessari viku kemur út rit- ið „Hér heilsast skipin“ eftir Guð- jón Friðriksson sagnfræðing. Bók- in kemur út hjá Uppheimum í samstarfi við Faxaflóahafnir. Hér er mikið rit að vöxtum að ræða, í tveimur bindum saman í öskju og ríkulega myndskreytt. Eftirfarandi er kynningartexti um verkið: „Hér birtist í tveimur bind- um saga Faxaflóahafna. Til þeirra teljast Reykjavíkurhöfn, Akranes- höfn, Borgarneshöfn og Grundar- tangahöfn. Ritunin nær ennfrem- ur til sögu helstu hafna á svæð- inu allt frá upphafi Íslandsbyggð- ar. Þar má nefna Hvítárvelli í Borg- arfirði, hafnir í Hvalfirði, Straum- fjörð á Mýrum og Þerneyjarsund. Saga hafnanna er verðugt viðfangs- efni sem varðar sjálfar undirstöður samfélagsgerðarinnar og hvernig hafnir og starfsemin við þær mót- uðu bæjarfélögin. Í þessu verki ger- ir höfundurinn þessari merku sögu skil með þeim hætti sem hann hefur getið sér frægðar fyrir í fyrri verk- um.“ Þá segir að tilefni söguritunar- innar sé að hundrað ár eru liðin frá því að hin mikla hafnargerð hófst í Reykjavík. Hún var á þeim tíma umsvifamesta og fjárfrekasta fram- kvæmd Íslandssögunnar. Frá því að hafnargerðinni lauk 1917 hef- ur hún verið lífæð höfuðborgarinn- ar og líklega átt stærstan þátt í því mikla forskoti sem Reykjavík náði umfram aðra kaupstaði á landinu á flestum sviðum. Hafnir og hafna- svæði hafa um langan tíma ver- ið burðarásinn í atvinnulífi flestra þéttbýlisstaða á Íslandi, grundvöll- ur fiskveiða, viðskipta, iðnaðar og samgangna. Saga hafna og starf- semi þeim tengdri er því órjúfandi þáttur í lífi og sögu eyþjóðar. mm Tillögu um sameiningu Garða- prestakalls á Akranesi og Saurbæj- arprestakalls í Hvalfjarðarsveit var vísað frá á Kirkjuþingi sl. mánudag. Þegar Agnes Sigurðardóttir biskup mælti fyrir tillögunni sagðist hún hafa skipt um skoðun og styddi því ekki eigin tillögu. Hún féllist á þau rök gegn sameiningunni sem fram komu frá báðum sóknum. Á fund- um í sóknunum var lýst andstöðu við sameininguna, í henni fælist enginn sparnaður eða hagræðing og ná mætti þeim markmiðum fram með öðrum hætti. Í bréfum úr hér- aði sem biskup vitnaði til kom fram að fólk í báðum sóknum gat ekki sætt sig við að sóknarprestur þeirri flytti sig um set. þá Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar var til fyrri umræðu í sveitarstjórn sl. fimmtudag. Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri segir að áætlunin ein- kennist af vilja sveitarstjórnar til að halda rekstrinum í jafnvægi og lækka skuldir. Áætlað er að veltufjármun- ir verði 215 milljónir, varið verði til afborgunar skulda 225 milljónum og nýjar lántökur verði 70 milljónir. Skuldaviðmið þegar búið verður að reikna inn fjárfestingar vegna dval- arheimilis verði komið niður fyr- ir 130% í árslok 2014. Gert er ráð fyrir fjögurra milljóna tekjuafgangi í fjárhagsáætluninni. Áætlað er að varið verði til fram- kvæmda 130 milljónum króna á næsta ári. Páll sveitarstjóri segir að fjárfestingaráætlun muni fá frek- ari umfjöllun milli umræðna. Í um- ræðunni um fjárhagsáætlun opnaði Björn Bjarki Þorsteinsson formað- ur byggðarráðs og fræðslunefnd- ar á þann möguleika að byggja við grunnskólann. Í framhaldinu lagði minnihluti bæjarstjórnar fram til- lögu um að hafinn yrði undirbún- ingur viðbyggingar sem myndi inni- halda fjölnota sal, vinnurými kenn- ara, tómstundaskóla og endur- bætta verkgreinaaðstöðu. Í greinar- gerð með tillögunni segir að núver- andi skólahúsnæði sé hvorki matsal- ur né fjölnota salur og hafi því þurft að leita út fyrir skólann með skóla- mötuneyti og til að halda ýmsa við- burði eins og skólasetningu, skóla- slit, árshátíð skólans o.fl. „Húsnæði tómstundaskólans er orðið of lítið til að sinna öllum þeim fjölda nemenda sem nýta sér þá þjónustu sem þar er í boði og er nauðsynlegt að bregðast við þeirri stöðu sem allra fyrst,“ seg- ir í bókun minnihlutans. þá Hér heilsast skipin heitir væntanleg bók um hafnir Svipmynd frá Borgarneshöfn. Hætt við sameiningu Garða- og Saurbæjarprestakalls Jafnvægi og skuldalækkun í fjárhagsáætlun Borgarbyggðar Áætlaðar framkvæmdir fyrir 205 milljónir í Hvalfjarðarsveit á næsta ári

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.