Skessuhorn


Skessuhorn - 20.11.2013, Qupperneq 6

Skessuhorn - 20.11.2013, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 20 . NÓVEMBER 2013 Umferðaróhöpp rakin til hálku AKRANES: Þrjú umferðaró- höpp urðu í hálkunni sem myndað- ist um helgina á Akranesi og í ná- grenni bæjarins. Óhapp var tilkynnt til lögreglu á sunnudag þar sem bif- reið rann út af Akrafjallsvegi. Eng- in meiðsli urðu á fólki og bifreið- in óskemmd eftir atvikið. Þá missti ökumaður stjórn á bifreið sinni í hálku á Vesturlandsvegi við Kúlu- dalsá. Fór bifreiðin út af vegin- um og valt heilan hring. Ökumað- ur slapp með minniháttar meiðsli en var fluttur á sjúkrahús til skoð- unar. Bifreiðin var mikið skemmd og var flutt af vettvangi með drátt- arbifreið. Einn árekstur var innan- bæjar á Akranesi skömmu síðar, á gatnamótum Stillholts og Vestur- götu. Engin slys urðu á fólki en ein- hverjar skemmdir urðu á bifreið- unum. Einn ökumaður var hand- tekinn um helgina grunaður um ölvun við akstur á Skagabraut. Var ökumanni, sem var töluvert ölvað- ur, sleppt að lokinni blóðtöku og yfirheyrslu. Þá var annar ökumað- ur stöðvaður á óskráðri og númers- lausri bifreið í vikunni þar sem hann ók um götur Akraness. Við nánari skoðun reyndist ökumaðurinn vera sviptur ökuréttindum og bifreiðin að auki ótryggð. –þá Unnið að skipu- lagi grænna svæði AKRANES: Á fundi skipu- lags- og umhverfisnefndar Akra- ness sl. mánudag var meðal dags- árleiða heildarskipulag grænna svæða á Akranesi. Íris Reynisdótt- ir garðyrkjustjóri kynnti verkefnið. Nefndin fagnaði því að þessi vinna væri farin af stað, þar sem hún muni nýtast vel í skipulagsvinnu til fram- tíðar. Á sama fundi var rætt um nýtt deiliskipulag Akurshóls, Akursbraut 5. Fram kom að álit þeirra sem um feril skipulagsins hafi fjallað að málsmeðferð sé með fullnægjandi hætti með tilliti til laga og reglu- gerða þar að lútandi. Engar athuga- semdir bárust vegna tillögunnar. Í bókun frá umræddum fundi skipu- lags- og umhverfisnefndar segir að í ljósi umræðna á fundinum verði skoðað hvernig hægt væri að gera íbúa almennt virkari í skipulagsmál- um. –þá Lýsa áhyggjum vegna lögreglumála BORGARBYGGÐ: Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsti miklum áhyggj- um varðandi stöðu löggæslumála í Borgarfirði og Dölum á fundi sín- um sl. fimmtudag. Sveitarstjórnin lagði fram bókun á fundinum þar sem segir að lögregluembættið hafi búið við fjársvelti mörg undanfar- in ár og staðan sé algjörlega óásætt- anleg. Greinilegt væri þegar born- ar eru saman fjárveitingar til emb- ættisins við fjárveitingar til annarra svæða að ekki sé rétt gefið. „Þeg- ar horft er á Vesturland þá spann- ar umdæmi lögreglunnar í Borgar- firði og Dölum um 80% af lands- hlutanum. Þegar skoðaður er mála- fjöldi undanfarin ár er greinilegt að mannfæð og samdráttur er farinn að valda því að dregið hefur veru- lega úr eftirliti og fyrirbyggjandi að- gerðum. Þessi staða er algerlega óá- sættanleg, bæði fyrir þau samfélög sem um ræðir í Borgarfirði og Döl- um, sem og það góða fólk sem við löggæslu starfar á svæðinu. Sveitar- stjórn Borgarbyggðar skorar á fjár- veitingarvaldið að bæta úr þann- ig að þessi staða valdi ekki frekari skaða,“ segir í bókuninni sem öll sveitarstjórnin stendur að. –þá Klemmdist á höfði LBD: Lögreglunni í Borgarfirði og Dölum barst í vikunni tilkynning um vinnuslys í álverinu á Grundar- tanga. Þar klemmdist starfsmaður á höfði en slapp án teljandi meiðsla frá óhappinu. Ein aðstoðarbeiðni barst vegna ófærðar. Þar var um að ræða hollenska ferðamenn á Hummer jeppa sem sátu fastir á Arnarvatns- heiðarvegi. Tilkynnt var um sjö um- ferðaróhöpp í vikunni og urðu lítils- háttar meiðsli á fólki í einu óhapp- inu. Þá var einn ökumaður stöðvað- ur í vikunni vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. –þá Hagur Orkuveit- unnar vænkast OR: „Sparnaður í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur skilar fyrirtækinu stöð- ugt batnandi afkomu,“ segir í til- kynningu frá fyrirtækinu. „Raun- kostnaður við reksturinn hefur lækkað um 1,6 milljarð króna frá árinu 2009 og í krónum talið nán- ast staðið í stað. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) fyrstu níu mánuði ársins 2013 nam 12,8 millj- örðum króna en var 11,0 milljarð- ar á sama tímabili 2012. Tekist hefur að greiða niður vaxtaberandi skuld- ir um 24,1 milljarð á árinu og „Plan- ið“ frá 2011 skilar mun betri sjóðs- stöðu en áætlað var.“ Árshlutaupp- gjör samstæðu Orkuveitu Reykja- víkur var samþykkt af stjórn fyr- ir helgina. Hægt er að lesa um árs- hlutauppgjörið á vef OR. –mm Rannsaka hús- bruna ÓLAFSVÍK: Lögreglan á Snæ- fellsnesi er með mál til rannsókn- ar vegna bruna í heimahúsi. Brun- inn varð um klukkan 06:00 aðfarar- nótt sunnudagsins 10.11 sl. í húsi við Ólafsbraut 62 í Ólafsvík. Lögreglan óskar eftir að þeir sem hafi upplýs- ingar sem gæti komið að notum við rannsóknina hafi samband í síma 430-4146. –af Um hálft hundrað gesta mætti á fræðslufund Ferguson félagsins sem haldinn var í félagsheimilinu Miðgarði í Hvalfjarðarsveit sl. mið- vikudagskvöld. Þegar komið var að félagsheimilinu mætti gestum tvær dráttarvélar við innganginn; Fergu- son TEF (díselvél) og MF 240, báðar listavel uppgerðar. Gránann á Magnús Ingimarsson og var vélin sýnd á Ferguson-Hvanneyrarhátíð- inni um árið og þótti bera af öðrum vélum þar. Hin vélin er eign Ingi- mars Magnússonar, föður Magnús- ar. Þess má geta að Ferguson skúff- una aftan á TEF-vélinni smíðaði Ingimar sjálfur. Að lokinni kynningu á Ferguson- félaginu rakti Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri nokkra helstu þætti íslenskrar dráttarvélasögu með áherslu á Akranestraktorinn og Þúfnabanann sem hvor á sinn hátt tengdust þeim landshluta sem fund- urinn var haldinn í. Báðar vélarnar fá ítarlega umfjöllun í nýjustu bók Bjarna „Frá hestum til hestafla.“ Þá fjallar bókin hans Bjarna um land- búnaðarjeppana en í máli höfundar kom fram að notkun jeppa í land- búnaði hafi sennilega verið hvað mest hér á landi. Bjarni áritaði loks og seldi bækur sínar þeim er vildu og áritaði auk þess Ferguson og Farmal bækurnar sem menn áttu fyrir og komu með. Sjö bættust við félagatal Fergusonfélagsins og fóru félagar því yfir 200. Sjá nánar myndir á heimsasíðu félagsins: www.ferguson-felagid. com mm Á fundi sveitarstjórnar Borgar- byggðar sl. fimmtudag var kos- ið í nýja Umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefnd. Samkvæmt nýrri samþykkt um stjórn Borgar- byggðar verður breyting á nefnd- um. Tómstundanefnd, umhverfis- og skipulagsnefnd, landbúnaðar- nefnd og Borgarfjarðarstofa hætta störfum og verkefni þeirra flytjast yfir til annarra nefnda. Í nýrri umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefnd sitja sem að- almenn: Ingibjörg Daníelsdóttir formaður, Sigurður Guðmunds- son varaformaður, Jónína Erna Arnardóttir, Kolbeinn Magnús- son og Þór Þorsteinsson. Ekki verða breytingar á skipan annarra nefnda. Þá var einnig samþykkt breyting á skipan byggðarráðs frá og með 1. janúar 2014 en þá tekur Jóhannes F. Stefánsson sæti Geir- laugar Jóhannsdóttur í byggðar- ráði en Geirlaug verður varamað- ur í ráðinu. mm Áhugasamir Ferguson unnendur komu saman Stokkað upp í nefndaskipan í Borgarbyggð Á móti gestum í Miðgarði tóku tvær listavel upp gerðar vélar í eigu feðganna Magnúsar Ingimarssonar og Ingimars Magnússonar. Bjarni Guðmundsson fer yfir söguna.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.