Skessuhorn - 20.11.2013, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 20 . NÓVEMBER 2013
Dóra og Rúnar
óstöðvandi
BORGARFJ: Briddsspilarar úr
Borgarfirði og nærsveitum hitt-
ust þriðja sinni í Logalandi að
kveldi 18. nóvember sl. Tilefn-
ið var jú keppnin um besta tví-
menningsparið 2013. Dóra og
Rúnar eru óstöðvandi þessa
dagana og skoruðu 231 stig eða
60%. Spurning hvort menn
ættu ekki að fá spilagjaldið end-
urgreitt ef þeim tekst að taka
stig af hjónunum? Flemming
og Sveinn fundu sig vel þetta
kvöld og urðu í 2. sæti með 218
stig, þriðju urðu svo Skaga-
mennirnir Karvel og Magnús
Heiðarr með 216 stig. Í heild-
arkeppninni eru Rúnar og Dóra
komin með þægilegt forskot,
701,7 stig, Sveinbjörn og Lárus
eru með 664 stig og bræðurnir
Guðmundur og Unnsteinn hafa
halað inn 637 stigum.
–ij
Opið hús
á föstudaginn
AKRANES: Starfsbraut Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi verður með opið hús föstu-
daginn 22. nóvember frá klukkan
9:30 til 13:30. Til sölu verða ýms-
ir munir sem nemendur starfs-
brautar hafa búið til. Kaffi og
vöfflur í boði gegn vægu gjaldi.
Allir eru velkomnir segir í frétta-
tilkynningu frá nemendum og
starfsfólk starfsbrautar FVA.
–mm
Staðfestu
samruna og kaup
RVK: Hluthafafundur í HB
Granda hf., sem haldinn var 12.
nóvember sl., staðfesti samruna
Laugafisks ehf. við félagið sam-
kvæmt samrunaáætlun félaganna
frá því í ágúst á þessu ári. Sam-
runinn miðast við 1. júlí 2013
og tekur HB Grandi hf. við öll-
um rekstri, eignum og skuldum,
réttindum og skyldum félagsins í
samræmi við samrunaáætlun. Til
að mæta samruna félaganna verð-
ur hlutafé HB Granda aukið um
15,6 milljónir króna og er skipti-
hlutfall hlutabréfanna 16 þann-
ig að hver hluthafi í Laugafiski
ehf. fær einn hlut í HB Granda
hf. fyrir 16 hluti í Laugafiski ehf.
Þá var á sama fundi samþykkt að
hækka hlutafé félagsins um 100
milljónir króna á síðasta sölu-
gengi First North, sem var 16,2.
Verður hinu nýja hlutafé öllu var-
ið til að kaupa alla hluti í Vigni G.
Jónssyni hf. á Akranesi. Hluthafar
Vignis G. Jónssonar hf. geta einir
skrifað sig fyrir hinum nýju hlut-
um. Þannig fylgir forgangsrétt-
ur hluthafa HB Granda hf. ekki
þeirri hækkun hlutafjár. –mm
Fluttu fjölda
erinda
STYKKISH: Dagana 8. og 9.
nóvember sl. hélt Líffræðifélag
Íslands yfirlitsráðstefnu um ís-
lenskar líffræðirannsóknir en síð-
ast var slík ráðstefna haldin 2011.
Náttúrustofa Vesturlands var nú
með fleiri framlög á slíkri ráð-
stefnu en nokkru sinni fyrr, eða
tíu talsins, ýmist á eigin vegum
eða í samvinnu við aðrar stofn-
anir. Starfsmenn Náttúrustof-
unnar fluttu fjögur erindi og voru
meðhöfundar að þremur til við-
bótar og voru auk þess á með-
al höfunda þriggja veggspjalda
sem kynnt voru á ráðstefnunni.
Sjá nánar á vef Náttúrustofunn-
ar; www.nsv.is –mm
Atvinnuleysi eykst
milli mánaða
LANDIÐ: Skráð atvinnuleysi í land-
inu í októbermánuði var 3,9% og
jókst um 0,1 prósentustig frá septem-
ber. Atvinnuleysi jókst meira á lands-
byggðinni en á höfuðborgarsvæðinu
í október. Atvinnulausum fækkaði
að meðaltali um 17 á höfuðborgar-
svæðinu en fjölgaði um 125 að með-
altali á landsbyggðinni. Atvinnuleysi
á landsbyggðinni var að meðaltali
3% og á höfuðborgarsvæðinu 4,4%.
Minnst var atvinnuleysið á Vestfjörð-
um 2;1% og mest á Suðurnesjum
5,7%. Atvinnuleysi á Vesturlandi í
október var 2,4% og hafði aukist um
0,3 prósentustig frá mánuðinum á
undan. Samkvæmt mánaðalegu yfir-
liti Vinnumálastofnunar um atvinnu-
ástandið voru að meðaltali skráð-
ir 6.233 atvinnulausir í október og
fjölgaði um 108 að meðaltali frá sept-
ember. Í október fjölgaði körlum um
112 að meðaltali á atvinnuleysisskrá
en konum fækkaði um fjórar. Var at-
vinnuleysið 3,3% meðal karla og
4,6% meðal kvenna. Skráð atvinnu-
leysi að meðaltali frá janúar til októ-
ber 2013 var 4,5%. –þá
Breytingar á fjölda
og varpárangri ritu
STYKKISH: Náttúrustofa Vestur-
lands og Rannsóknasetur Háskóla Ís-
lands á Snæfellsnesi vöktuðu fjölda
hreiðra og varpárangur hjá ritu í
Hvítabjarnarey við Stykkishólm frá
2008-2013 og í björgunum á utan-
verðu Snæfellsnesi frá 2011-2013.
Fjöldi hreiðra ritunnar á þessum
rannsóknartímabilum náði hámarki í
Hvítabjarnarey og á utanverðu Snæ-
fellsnesi árið 2012. Hann var lægst-
ur árið 2011. Varpárangur var mun
betri í Hvítabjarnarey en á utanverðu
Snæfellsnesi. Niðurstöður þessarar
rannsóknar voru kynntar á Líffræði-
ráðstefnunni sem haldin var í Reykja-
vík dagana 8. og 9. nóvember. –mþh
Aflatölur fyrir
Vesturland
9. - 15. nóvember.
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes 6 bátar.
Heildarlöndun: 23.400 kg.
Mestur afli: Signý HU: 11.937 kg í
tveimur löndunum.
Arnarstapi 6 bátar.
Heildarlöndun: 44.034 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs SH:
11.554 kg í þremur löndunum.
Grundarfjörður 9 bátar.
Heildarlöndun: 508.233 kg.
Mestur afli: Vilhelm Þorsteinsson
EA 260.209 kg í einni löndun.
Ólafsvík 13 bátar.
Heildarlöndun: 208.436 kg.
Mestur afli: Guðmundur Jensson
SH: 39.801 kg í fjórum löndunum.
Rif 8 bátar.
Heildarlöndun: 105.518 kg.
Mestur afli: Esjar SH: 19.656 kg í
fjórum löndunum.
Stykkishólmur 8 bátar.
Heildarlöndun: 16.490 kg.
Mestur afli: Fjóla SH 4.448: 4.448
kg í fjórum löndunum.
Topp fimm landanir á tímabilinu:
1. Vilhelm Þorsteinsson EA – GRU:
260.209 kg 14. nóv.
2. Hringur SH – GRU:
55.786 kg. 14. nóv.
3. Grundfirðingur SH – GRU:
46.024 kg. 11. nóv.
4. Helgi SH – GRU:
43.358 kg. 11. nóv.
5. Farsæll SH – GRU:
42.987 kg. 11. nóv. -mþh
Vegna mikillar eftirspurnar eft-
ir Jóla-Steðja, þá hefur Brugg-
hús Steðja í Borgarfirði fjárfest í
flutningstæki og ráðið starfskraft
til að annast dreifingu á jólabjórn-
um. „Viðkomandi dreifingaraðili er
mjög glaðlyndur og hvers manns
hugljúfi sem tekur öllum fagnandi,“
segir í tilkynningu frá fyrirtæk-
inu. Hér sést hann fara með fyrstu
sendinguna frá Brugghúsinu. Með
þessu hefur Brugghús Steðja tek-
ið fyrsta skref til umhverfisvænnar
dreifingar.
mm
Síðastliðinn laugardag var olíu
dælt af tönkum flutningaskipsins
Fernöndu þar sem það var bund-
ið við bryggju á Grundartanga.
Á sunnudaginn voru landfest-
ar skipsins svo leystar og þar með
hófst hinsta ferð þess. Dráttarbát-
urinn Magni dró skipið til Helgu-
víkur þar sem Hringrás mun ann-
ast niðurrif þess. Á vef Faxaflóa-
hafna segir að ýmislegt hafi komið
upp á í ferlinu frá bruna til förgun-
ar skipsins og eitt og annað þurfi
að skoða í ljósi reynslunnar. „Aðal-
atriði málsins er þó að Landhelgis-
gæslan stóð sem fyrr frábærlega að
björgun áhafnar skipsins og gerði
hvað hægt var til að draga úr lík-
um á að bruninn skapaði hættu á
mengun.“
mm/ Ljósm. Faxafloahafnir.is
„Vegna vegaframkvæmda og ógæti-
legs aksturs ökumanna um merkt
vinnusvæði á Kjalarnesi við Móa
í síðustu viku, voru
fastar hraðamynda-
vélar á svæðinu virkj-
aðar og mynda nú
þá ökumenn sem aka
hraðar en leyfileg-
ur hámarkshraði seg-
ir til um meðan fram-
kvæmdir standa yfir.
Leyfilegur hámarks-
hraði er 50 km/klst,“
segir í tilkynningu frá
lögreglu. Skessuhorni
hefur borist staðfest-
ing á að fjölmargir
ökumenn hafi feng-
ið myndavélarblossa
á sig þegar þeir hafa
ekið um Kjalarnes að undanförnu
þegar þeir hafa ekið um vinnusvæð-
ið við Móa á hraða sem er jafnvel
töluvert yfir ríkjandi hámarkshraða.
Slík hraðasekt getur verið verulega
íþyngjandi sé ekið langt yfir leyfileg
mörk, eins og þau eru kynnt á skilt-
um við veginn núna.
„Vélarnar voru virkjaðar á mánu-
dag í liðinni viku og sýna því mið-
ur að ökumenn virða ekki nægjan-
lega hraðamerkingar á vinnusvæð-
um né heldur rétt
starfsmanna á svæð-
inu til öryggis. Töl-
ur sýna að á hverri
mínútu að meðal-
tali er ekið of hratt í
gegnum vinnusvæð-
ið. Lögreglan vill því
nota tækifærið til að
hvetja ökumenn til
að gæta eigin örygg-
is og annarra með því
að fylgja þeim merk-
ingum sem við vinnu-
svæði eru og ekki síð-
ur ítreka að þeir öku-
menn sem ekki virða
gildandi hámarks-
hraða á Vesturlandsvegi á Kjalar-
nesi mega eiga von á sektum,“ segir
í tilkynningu frá lögreglu. mm
Á fundi miðstjórnar Alþýðusam-
bands Íslands í síðustu viku voru
tillögur hagræðingarhóps ríkis-
stjórnarinnar ræddar og var þungt
hljóð í mönnum. Miðstjórninni
þykir það skjóta skökku við að á
meðan ríkisstjórnin ræðir við for-
ystu verkalýðshreyfingarinnar um
sátt og samstarf á vinnumarkaði sé
nefnd á vegum þeirrar sömu rík-
isstjórnar að vinna að breyting-
um á kjarnaþáttum á vinnumark-
aði. Sumar tilagnanna eru m.a.s.
komnar í farveg innan ráðuneyt-
anna.
„Þó ASÍ telji tækifæri til að
breyta ýmsu í stofnanaumgjörð
vinnumarkaðarins þá er hér of
langt gengið. Tillögur hópsins um
breytingar á skipulagi lykilstofnana
vinnumarkaðarins á borð við Fæð-
ingarorlofssjóð, Vinnumálastofn-
un og Vinnueftirlit, hugmynd-
ir um breytingar á framlögum til
jöfnunar lífeyrisréttinda, réttinda
þeirra sem missa vinnuna til at-
vinnuleysisbóta eða á fyrirkomu-
lagi starfsendurhæfingar gengur
þvert á vilja verkalýðshreyfingar-
innar og er ekki gæfulegt innlegg í
þær kjaraviðræður sem fara í hönd.
Miðstjórn ASÍ krefst þess að ekki
verði hróflað við þessum kjarna-
þáttum vinnumarkaðarins án sam-
ráðs,“ segir í tilkynningu frá sam-
tökunum. mm
Brugghús Steðja hefur ráðið
nýjan dreifingaraðila
Fernanda verður rifin í Helguvík
Tillögur hagræðingahópsins féllu í
grýttan jarðveg í miðstjórn ASÍ
Margir hafa fengið óumbeðna
mynd í fjölskyldualbúmið