Skessuhorn


Skessuhorn - 20.11.2013, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 20.11.2013, Blaðsíða 13
13MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2013 Fyrr á þessu ári stóð SAFT fyrir gerð könnunar á netnotkun barna og unglinga hér á landi. Markmið könnunarinnar var að afla upplýs- inga um notkun barna og unglinga á netinu og nýta í kjölfarið þær upplýsingar til vitundarvakningar um möguleika netsins og örugga netnotkun barna og unglinga. „Fáðu já!“ er 20 mínútna stutt- mynd sem ætlað er að skýra mörk- in milli kynlífs og ofbeldis, vega upp á móti áhrifum klámvæðingar, brjóta ranghugmyndir á bak aftur og innræta sjálfsvirðingu í nánum samskiptum. Myndin var gerð með aldurshópinn 15 – 18 ára í huga og leikstýrt af Páli Óskari Hjálmtýs- syni. Hún var frumsýnd í janú- ar á þessu ári í velflestum grunn- og framhaldsskólum landsins. Í SAFT könnuninni voru 10. bekk- ingar beðnir um að meta mynd- ina Fáðu Já! auk þess sem reynt var að leggja mat á áhrifamátt hennar með nokkrum spurningum. Nú hefur SAFT kynnt helstu niðurstöður könnunar um áhrif myndarinnar. Þar kemur m.a. fram að fleiri strákar en stelpur héldu að það yrði auðveldara en áður að tala um kynlíf. Tæplega 95% barna í 10. bekk höfðu séð Fáðu já! myndina og fannst miklum meirihluta þeirra sem höfðu séð hana hún vera áhugaverð. Tæp- lega 66% þeirra barna sem séð höfðu myndina fannst þau skilja betur muninn á kynlífi í raun- veruleikanum og kynlífi sem sýnt er í kvikmyndum og klámi. Rúm- lega 26% fannst þau skilja þenn- an mun mikið betur og tæplega 40% nokkuð betur en áður en þau sáu myndina. Sléttum 34% fannst myndin ekki breyta neinu þar um. Rúmlega 70% þeirra barna sem séð höfðu myndina, fannst þau skilja betur hvað það þýðir að fá samþykki fyrir kynlífi eftir að hafa séð myndina. Um 24% finnst þau skilja það mikið betur og tæplega 47% nokkuð betur. Tæplega þrír af hverjum tíu fannst myndin ekki breyta neinu varðandi skilning þeirra á þessu. Börnin voru að lokum spurð hvort þau héldu að það yrði auð- veldara eða erfiðara en áður að tala um kynlíf við aðra eftir að þau sáu myndina. Rúm 44% héldu að það yrði auðveldara en áður að tala um kynlíf við þann sem þau langar að stunda kynlíf með, en 55% héldu að Fáðu já! breytti engu þar um. Fleiri strákar en stelpur héldu að það yrði auðveldara en áður að tala um kynlíf við þann sem þá langar að stunda kynlíf með eftir að þeir sáu myndina. Tæplega 24% héldu að það yrði auðveldara en áður að tala um kynlíf við kennara og naumlega 75% að myndin myndi ekki breyta neinu þar um. Slétt 19% héldu að það yrði auðveldara en áður að tala um kynlíf við for- eldra sína en ríflega 79% töldu að myndin myndi ekki breyta neinu hvað það snertir. mm Hrútaskráin fyrir árið 2013 til 2014 hef- ur nú verið birt á vef Ráðgjafarmiðstöðv- ar landbúnaðarins. Í þessu mest lesna riti á landsbyggðinni er að finna upplýs- ingar um 47 hrúta, þrjátíu hyrnda, þrettán kollótta, einn feldfjárhrút, einn ferhyrndan hrút og tvo for- ystuhrúta. Auk þessa er að finna í skránni yfirlit um afkvæmarann- sóknir á vegum sauðfjársæð- ingastöðvanna í haust og grein um stór- virka frjósem- iserfðavísa og nýtingu þeirra. Prentuð út- gáfa skrárinnar er svo væntan- leg síðar í þess- ari viku. Verð- ur henni dreift á hrútakynningar- fundum búnaðar- sambandanna um land allt en fund- irnir verða haldn- ir dagana 20.-27. nóvember. mm www.appaman.web.is Bæjarlind 6 • 201 Kópavogi Sími 519 7561 S K E S S U H O R N 2 01 3 Úlpudagar 14.-28. nóv. 20% afsláttur af öllum dúnúlpum Hrútaskráin komin út Áhrif sýningar stuttmyndar um kynlíf mæld hjá tíundu bekkingum Myndbrot úr Fáðu já! Blátt áfram • Fákafen 9, 108 Reykjavík • Sími 533 2929 • blattafram@blattafram.is • blattafram.is Fullorðnir bera ábyrgð á börnum sínum og hafa samtökin Blátt áfram lagt mest upp úr því að fræða þá. Fræðslan fer fram í leik- og grunnskólum landsins í formi fyrirlestra og námkskeiðs sem nefnist Verndarar barna. Samtökin hafa það að markmiði að fræða fullorðna um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum og hvernig megi fyrirbyggja það. 3920 Börn sem sáu brúðusýninguna Krakkarnir í hverfinu 6740 Hlutu fræðslu á vegum Blátt áfram árið 2012 1000 Unglingar fengu lífsleiknifræðslu 950 Fullorðnir gerðust Verndarar barna 870 Fullorðnir hlustuðu á fyrirlestra um forvarnir Verum upplýst -verndum börnin okkar!

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.