Skessuhorn


Skessuhorn - 20.11.2013, Síða 21

Skessuhorn - 20.11.2013, Síða 21
21MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2013 Vélstjóri - Þörungaverksmiðjan Nánari upplýsingar um starfið veitir Ari Eyberg (ari@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember n.k. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá. Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum framleiðir þang- og þaramjöl í háum gæðaflokki. Ársverk hjá fyrirtækinu s.l. ár voru 14 auk starfa verktaka við þangslátt. Afurðirnar eru að langmestu leyti fluttar út og m.a. nýttar til framleiðslu alginats, fóðurbætis, áburðar og snyrtivara. Á Reykhólum er mikil náttúrufegurð. Þar er m.a. grunnskóli, leikskóli, heilsugæsla, dvalarheimili, verslun, sundlaug og bókasafn auk annarrar þjónustu. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verksmiðjunnar www.thorverk.is Helstu verkefni • Öflun og flutningur hráefnis fyrir verksmiðju fyrirtækisins á Reykhólum • Vélgæsla og viðhald • Skipulagning viðhalds véla-, tækja- og búnaðar • Vinnur náið með viðhaldsstjóra Menntunar- og hæfniskröfur • Réttindi til að sinna vélgæslu (VS-3 réttindi) • Reynsla af sambærilegu starfi er mikilvæg, s.s. af viðhaldi véla og tækja og rafmagnsbúnaðar • Reynsla af vinnu við vökva- og viðhaldskerfi • Áhugi á gæða-, umhverfis- og öryggisstjórnun á vinnustað er æskileg Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum óskar eftir að ráða til starfa vélstjóra á Gretti BA. Í boði er áhugavert og krefjandi starf í fallegu umhverfi Reykhóla. Starfið og staðsetningin gæti hentað mjög vel fjölskyldufólki með yngri börn. ráðgjöf ráðningar rannsóknir Intellecta, Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225 Aðstoð til fjárvana heimila! Mæðrastyrksnefnd Vesturlands mun í desember n.k. úthluta fjárstyrkjum í formi Bónus-korta til einstaklinga og fjölskyldna á Vesturlandi sem þarfnast stuðnings. Peningastyrkir óskast frá fyrirtækjum og einstaklingum sem vilja leggja málinu lið. Margt smátt gerir eitt stórt. Kærleikskveðja, Stjórn Mæðrastyrksnefndar Vesturlands Reikningsnúmer: 0186-05-65465 kt. 411276-0829 www.skessuhorn.is Aðventublað Skessuhorns kemur út 27. nóvember Þeim sem vilja nýta sér blaðið til auglýsinga er bent á að hafa samband við markaðsdeild í síma 433-5500 eða senda tölvupóst á: palina@skessuhorn.is eða valdimar@skessuhorn.is. Sökum þess hvað blaðið verður stórt að þessu sinni er síðasti skilafrestur auglýsinga fimmtudaginn 21. nóvember. Laugavegur 18, 101 Reykjavík í húsi Máls og menningar Sími: 511 3399 Ármúla 18, 108 Reykjavík Sími 511 3388 Opið mán-fös 9-18 og lau 11-15 Prjónabækur í úrvali S K E S S U H O R N 2 01 3 Rauði krossinn á Akranesi fékk skemmtilega heimsókn nýverið þegar félagarnir Björn H. Björns- son og Sveinn Sturlaugsson litu við með forláta slides-sýningarvél og myndaseríu sem inniheldur skyndi- hjálparnámskeið eins og þau voru kennd af Birni árin 1968 - 1979 á Akranesi og nágrenni. Björn, sem er Strandamaður að uppruna, var í lögreglunni og árið 1967 bauðst honum að fara til Danmerkur á leiðbeinendanámskeið í skyndi- hjálp ásamt þremur öðrum. Hann kenndi svo skyndihjálp með öðrum störfum í tíu ár, en auk þess að vera í lögreglunni var hann lengi hafn- sögumaður á Akranesi. Björn gaf Rauða krossinum ýmislegt fleira, svo sem kennslugögn og bæklinga í skyndihjálp, frá þeim tíma sem hann kenndi námskeiðin. „Það fer vel á því að taka við þessari gjöf núna þegar Rauða kross hreyfingin er að undirbúa mikið átak í skyndi- hjálp í tengslum við afmælisárið 2014 þegar Rauða kross hreyfing- in á Íslandi fagnar 90 ára afmæli,“ segir Anna Lára Steindal hjá Akra- nesdeild RKÍ. mm Hagstofa Íslands gaf á föstudaginn út þjóðhagsspá á vetri í ritröð sinni Hagtíðindum. Spáin spannar árin 2013 til 2018. Í henni er m.a. gert ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um 2% á þessu ári og 2,5% á því næsta. Einkaneysla eykst minna í ár en í fyrra og fjárfesting dregst sam- an um 3,1%. Á næsta ári er gert ráð fyrir að einkaneysla taki betur við sér og verði 2,5% en fjárfesting aukist þá um 10,6% og vaxi út spá- tímann. Samneysla eykst um 0,8% á þessu ári, stendur í stað 2014 en eykst hægt eftir það. Vöxtur einka- neyslu og bati á vinnumarkaði var góður á fyrri helmingi 2012, en slakari á seinni hluta 2012. Mikil styrking vinnumarkaðar á þessu ári eykur ráðstöfunartekjur en það hef- ur ekki enn skilað sér í kraftmeiri einkaneyslu. Spáð er 3,8% verðbólgu á þessu ári og 3,6% á næsta ári. Lausir kjarasamningar valda meiri óvissu en ella um verðlags- horfur á næstu misserum. Hag- stofan gaf síðast út þjóðhagsspá 28. júní síðastliðinn og er ráð- gert að gefa út næstu spá í byrjun apríl 2014. Sjá nánar: www.hag- stofa.is mm Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabba- mein og aðstandendur, mun fyr- ir þessi jól gangast fyrir sölu á Nóa- konfekti til styrktar starfsem- inni. Konfektið, sem er sér- merkt Krafti, er aðallega ætl- að fyrirtækjum og stofnun- um sem hyggjast kaupa kon- fekt fyrir jólin sem gjöf til viðskiptavina eða starfsfólks. Með því að kaupa konfekt- ið af Krafti er hægt að slá tvær flugur í einu höggi, þ.e. gefa jólalega gjöf og um leið styrkja Kraft. Næstu vikur munu aðilar frá Krafti hafa samband við fyrirtæki og stofnanir og bjóða konfekt- kassana til sölu. Tvenns kon- ar kassar verða í boði, hefðbundinn konfektkassi og 1 kg. kassi með lausu konfekti. Stuðningsfélagið Kraftur var stofnað 1. október 1999 og hefur það að leiðarljósi að beita sameinuð- um kröftum sínum til að aðstoða þá sem þurfa á stuðningi að halda. Leit- ast er við að aðstoða ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og miðla upplýsing- um sem auðvelda þeim að takast á við sjúkdóminn. Félagið nýtur engra opinberra styrkja en hefur þess í stað notið velvilja og stuðnings al- mennings í landinu. „Það er von Krafts að sem flestir kaupi Nóa-konfekt af Krafti fyrir þessi jól þannig að félagið geti haldið áfram að vinna að hagsmunamál- um þeirra sem veikjast af krabbameini og aðstandend- ur þeirra. Hægt er að panta konfektið með því að senda póst á netfang Krafts, kraft- ur@kraftur.org eða hringja í síma 540-1911 eða 866- 9600. Þá er einnig hægt að nálgast konfektið á skrifstofu Krafts í húsi Krabbameinsfélags Ís- lands, Skógarhlíð 8, Reykjavík.“ -fréttatilkynning Konfektssala til styrktar Krafti Hagvöxtur er lítill en spáð örlitlum vexti á næsta ári Færðu Akranesdeild RKÍ gömul kennslugögn

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.