Skessuhorn - 20.11.2013, Side 23
23MIÐVIKUDAGUR 20. NÓVEMBER 2013
Sagnakonan
eftir Óskar Guðmundsson
Leikgerð: Jakob S. Jónsson og leikhópurinn
Frumsýnt verður 22. nóvember kl. 20:00 í Safnaskálanum
að Görðum á Akranesi.
Næstu sýningar:
2. sýning laugardagur 23. nóv. kl. 20.00
3. sýning þriðjudagur 26. nóv. kl. 20.00
4. sýning fimmtudagur 28. nóv. kl. 20.00
5. sýning laugardagur 30. nóv. kl. 20.00
6. sýning mánudagur 2. des. kl. 20.00
Miðaverð er 1000 kr. (ath. ekki posi). Takmarkaður sætafjöldi.
Einnig er boðið upp á súpu og brauð á undan sýningu, þarf það þá að koma fram í miðapöntun.
Leiksýning, súpa og brauð 2800 kr.
Miðapantanir eru í síma 897- 4125.
Einnig er hægt að panta í gegnum e-mail á leikf.skagaleikfl@gmail.com.
Sagnakonan er styrkt af Menningarráði Vesturlands.
Leikfélagið Skagaleikflokkurinn
sýnir í Safnaskálanum að
Görðum á Akranesi
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri
og Snorri Hjálmarsson á Syðstu
- Fossum í Andakíl komu fram á
Sagnakvöldi Safnahúss Borgar-
fjarðar sl. miðvikudagskvöld ásamt
Braga Þórðarsyni höfundi bók-
ar sem nýverið kom út um Snorra.
Að loknum upplestri úr bók Snorra
og bókinni Frá hestum til hest-
afla eftir Bjarna, tóku Snorri og
Bjarni nokkur lög saman við und-
irleik þess síðarnefnda á gítar. Þeir
félagar hafa brallað ýmislegt sam-
an og eiga um þessar mundir 50
ára samsöngsafmæli. Af þessu til-
efni fóru þeir stuttlega yfir ferilinn
í samsöng og glettnislegri frásögn
við frábærar undirtektir áheyrenda.
gj/ Ljósm: Jóhanna Skúladóttir.
Á félagsfundi Samtaka um
söguferðaþjónustu (SSF) ný-
verið, sem haldinn var að Vogi
á Fellsströnd í Dölum, voru
samþykktar þrjár ályktanir sem
varða mikilvægi þess að standa
vörð um íslenskan menning-
ararf og minjar og mikilvægi
þeirra fyrir land, þjóð og okkar
vaxandi ferðaþjónustu. Þessar
ályktanir hafa nú verið send-
ar forsætisráðherra, mennta-
og menningarmálaráðherra
og iðnaðarráðherra, sem ráð-
herra ferðamála, og tvær einn-
ig til Stofnunar Árna Magn-
ússonar í íslenskum fræðum.
Á 350 ára afmæli Vestlendingsins
og Dalamannsins Árna Magnússon-
ar handritasafnara, verða ályktanir
SSV birtar hér, að beiðni Rögnvaldar
Guðmundssonar formanns SSF:
Handritin fái
veglegan stað
„Félagsfundur Samtaka um sögu-
ferðaþjónustu hvetur stjórnvöld til
að tryggja fjármagn til viðeigandi
gæslu og umbúnaðar vegna handrita-
sýningar í Þjóðmenningarhúsi svo að
ferðamenn sem og Íslendingar geti
áfram séð þar hluta þeirra þjóðar-
gersema sem Stofnun Árna Magnús-
sonar í íslenskum fræðum varðveitir
og eru á heimsminjaskrá UNESCO.
Jafnframt verði settur kraftur í að
búa handritunum veglegan sýningar-
og varðveislustað til framtíðar með
byggingu á húsi íslenskra fræða enda
eru íslenskar miðaldabókmenntir
merkasta framlag Íslands til heims-
menningarinnar og þýðingarmiklar
fyrir íslenska ferðaþjónustu.
Rannsóknir á sögustöð-
um og minjum
Félagsfundur Samtaka um sögu-
ferðaþjónustu harmar niðurskurð á
fjármagni til fornleifarannsókna og
hvetur stjórnvöld til að tryggja fé
til aukinna rannsókna á sögustöð-
um og minjum um allt land. Slík-
ar rannsóknir eru ein forsenda þess
að ferðamenn, íslenskir sem erlendir,
geti fræðst um og notið menningar-
arfleifðar Íslendinga.
Sturla var lærisveinn
Snorra
Félagsfundur Samtaka um söguferða-
þjónustu vekur athygli stjórnvalda
og viðeigandi menningarstofnana á
að árið 2014 verða liðin 800 ár frá
fæðingu eins merkasta skálds þjóð-
arinnar, Sturlu Þórðarsonar. Sturla
Ákveðið hefur verið að lengja
opnunartíma íþróttaaðstöðunn-
ar í Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit.
Stefnt er að því að opið verði fram-
vegis sex daga vikunnar eða alla
daga nema sunnudaga. Íþróttahús-
ið og sundlaugin í Hvalfjarðarsveit
hafa undanfarið verið opin mánu-
daga til miðviku-
daga kl. 16-21 og
á fimmtudögum
frá 17-22. Leng-
ing opnunartím-
ans nú er gerð til
að koma til móts
við óskir íbú-
anna. Fleiri opn-
unardagar gera
íbúum sveitar-
félagsins kleift
að nýta sér þessa
aðstöðu betur
utan skólatíma
og skipuleggja
heimsóknir sér
til heilsubótar. Laugardagsopn-
un gefur fjölskyldum einnig meiri
möguleika á að nýta sér laugina
saman.
Í Heiðarborg er lítil, en ágætlega
búin innisundlaug þar sem meðal
annars er starfræktur vatnleikfimi-
hópur. Margir íbúar nýta sér að-
stöðuna til að synda á vetrum eða
skreppa í heita pottinn í hlýjunni
innandyra og íþróttasalurinn hef-
ur utan skólatíma verið nýttur m.a.
fyrir leikfimitíma kvenna. Tækja-
salurinn er ekki mikill í fermetrum
talið, en með góðum búnaði fyr-
ir þá sem vilja nota sér tækjabúnað
til að styrkja líkama og sál. Nú er
unnið að því að ganga frá ráðningu
starfsmanns vegna lengingar opn-
unartímans. jh
Íþróttaaðstaðan í Heiðarborg
framvegis opin sex daga vikunnar
Hvetja til að staðinn verði vörður um
íslenskan menningararf
var lærisveinn Snorra Sturlusonar og
skrifaði Íslendinga sögu Sturlungu
auk fjölda annarra sagna og kvæða
sem eru á meðal þess merkasta í ís-
lenskum miðaldabókmenntum. Sam-
tökin hvetja til þess að tímamótanna
verði minnst með veglegum hætti og
arfleifð Sturlu gerð sýnileg í Dölun-
um þar sem hann lifði og bjó sem
lögsögumaður, lögmaður og sagna-
ritari til 1284.“
mm
Söguslóðir hafa verið kortlagðar víða um land.
Sú vinna er mikilvæg til að halda á lofti sögunni
til að geta miðlað henni til gesta ekki síður en
landsmanna.
Bókalestur og fimmtíu ára
samsöngsafmæli
Safnast í vatnsleikfimi í Heiðarborg.
Lítill en vel búinn tækjasalur
MIKIÐ ÚRVAL AF SMUREFNUM OG OLÍUM FYRIR
ALLAN IÐNAÐ. KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
SMUROLÍUR
OG SMUREFNI
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.