Skessuhorn - 08.01.2014, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 2. tbl. 17. árg. 8. janúar 2014 - kr. 600 í lausasölu
Fæst hjá útgefanda á
www.skessuhorn.is og í
Eymundsson um allt land
Brugghús Steðja í Borgarfirði hef
ur nú án vafa kynnt mestu nýjung
ina á bjórmarkaðinum um langa
hríð. „Þetta er einstakur bjór á
heimsvísu, unninn í samstarfi við
Hval hf.,“ segir Dabjartur Ingvar
Arilíusson eigandi brugghússins í
Steðja. „Við setjum nú á markað
bragðmikinn Þorrabjór; Hvalbjór
sem er m.a. bruggaður með hval
mjöli. Hvalmjölið er mjög prótein
ríkt og nánast engin fita í því. Það,
ásamt því að enginn viðbættur syk
ur er notaður, gerir þetta að mjög
heilnæmum drykk og verða menn
því sannir víkingar af því að drekka
hann,“ segir Dagbjartur.
Hann segir að hvalbragðið komi
fram í undirtóni bjórsins og einnig
finnist það í eftirbragðinu. „Bjór
inn er 5,2% í alkohólmagni og við
síum hann og gerilsneyðum. Mið
inn á flöskunum er hannaður af ís
lenskum verðlaunahönnuði búsett
um á Ítalíu, með innihaldið í huga
ásamt því að skapa réttu þorra
stemninguna að sjálfsögðu. Í bak
grunni miðans er texti úr Hávamál
um en þar kemur fram texti sem
var sá fyrsti sem Óðinn las úr rún
um. „Þetta er hinn eini og sanni ís
lenski þorrabjór,“ segir Dagbjart
ur og bætir því við að Hvalbjórinn
sé væntanlegur í Vínbúðirnar 24.
janúar nk. en komi eitthvað fyrr á
veitingahús. mm
Fremur fá fyrirtæki ná þeim aldri að fagna 110 ára afmæli og er skemmst að minnast þess að óskabarn þjóðarinnar, Eimskip,
náði aldarafmæli nýverið og þykir með þeim eldri. Kaupfélag Borgfirðinga varð 110 ára sl. laugardag og var boðið til veislu.
Hér eru f.v. Margrét K. Guðnadóttir verslunarstjóri og Guðsteinn Einarsson kaupfélagsstjóri að deila út sneiðum af tertunni
góðu. Katrín H. Júlíusdóttir og Kristján Axelsson í Bakkakoti, einn af fyrrum stjórnarformönnum KB, gæða sér á veitingunum.
Sjá nánar bls. 15. Ljósm. hlh.
Fyrsta barn ársins á Vesturlandi
kom í heiminn klukkan 07:08 laug
ardaginn 4. janúar á fæðingadeild
sjúkrahússins á Akranesi. Var það
3.275 gramma þung og 49 cm löng
stúlka. Foreldrar hennar eru hjónin
Álfheiður Ágústsdóttir og Jóhann
Steinar Guðmundsson á Akranesi,
sem bæði vinna hjá Elkem Ísland á
Grundartanga. Jóhann Steinar er
fæddur og uppalinn Skagamaður en
Álfheiður ólst upp í Grundarfirði.
Stúlkan er þriðja barn þeirra hjóna
en eldri eru systkinin Guðmundur
Már og Elísabet María.
Þegar blaðamann bar að garði
skömmu eftir hádegi á laugardag
inn var fjölskyldan öll saman kom
in í góðu yfirlæti á fæðingadeildinni
ásamt Jóhönnu Karlsdóttur föður
ömmu stúlkunnar. Stúlkan og móð
ur hennar heilsaðist prýðilega. Álf
heiður sagði fæðinguna hafa gengið
vel, en auðvitað eru þetta átök eins
og gengur. Eldri systkinin voru að
vonum afar ánægð með litlu systur.
Það var Jóhanna Ólafsdóttir ljós
móðir á HVE á Akranesi sem tók á
móti stúlkunni.
mm
Heilsuræktarstöðvarnar á Vestur
landi keppast nú við að bjóða upp
á alls kyns námskeið eða átaksverk
efni í upphafi árs. Hreyfingu og æf
ingar undir handleiðslu þjálfara eða
leiðbeinenda, annað hvort í hóp
þjálfun eða einkatímum. Skessu
horn hafði samband við forstöðu
fólk íþróttamiðstöðva og æfinga
stöðva um allann landshlutann til
að forvitnast um hvernig árið fer af
stað í líkamsræktinni hjá Vestlend
ingum.
Sjá bls. 16-17.
Líkamsrækt
í ársbyrjun
Brugghús Steðja setur
Hvalabjór á markað
Miðinn sem prýðir flöskur Hvalbjórsins, þorrabjórsins frá Steðja brugghúsi.
Jóhann Steinar og Álfheiður með litlu stúlkuna.
Fyrsti Vestlendingur
ársins er Skagastúlka
Einstaklega mjúkar,
teygjanlegar og halda sér vel.
Buxur sem gefa öllum konum
flottar línur.
Komnar
aftur
Bylting í buxnasniði
fyrir dömur