Skessuhorn - 15.10.2014, Síða 21
21MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2014
Vegna aukinna verkefna leitar 3X Technology/Skaginn hf. að
söluráðgjafa á innlendan sem erlendan markað fyrir vinnslu-
lausnir félaganna. Starfið krefst m.a. þekkingar á vinnslutækni og
kælimöguleikum í matvælavinnslu.
Viðkomandi þarf að veita faglega söluráðgjöf til viðskiptavina, afgreiða
tilboð og vera lausnarsinnaður með hagsmuni viðskiptavina í huga.
Viðkomandi mun koma að mótun sölu – og markaðsstarfs innan
félaganna. Ferðadagar eru að jafnaði 50-80 dagar á ári.
Við leitum að einstaklingi sem er skipulagður, sjálfstæður, og sterkur í
mannlegum samskiptum. Umsækjandi þarf að hafa mikið frumkvæði,
vera lausnaþenkjandi, tala og skrifa ensku mjög vel.
Kostur er ef viðkomandi hefur einnig gott vald á öðrum tungumálum.
Góð færni í Microsoft office, AutoCad og Inventor er skilyrði.
Söluráðgjafinn mun starfa á söluskrifstofu félaganna á
höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi.
Nánari upplýsingar veitir:
Daniel Niddam, daniel@3xtechnology.com
Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Umsóknir og CV sendist til daniel@3xtechnology.com
fyrir 27. október nk.
Area sales manager
Söluráðgjafi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Prjónar, garn
og bækur
Opið:
Mánudaga – föstudaga kl. 9 – 18
Laugardaga kl. 11 - 15
Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - Sími 511 3388
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Fyrirtækið Skagaverk á Akranesi
mun bjóða upp á ferðir um Vestur-
land á næsta ári. Farið verður með
ferðamenn frá Reykjavík um stór-
an hluta Vesturlands í dagsferð-
um, líkt og mörg fyrirtæki bjóða nú
uppá þegar farið er hinn svokallaða
Gullna hring á Suðurlandi. Skaga-
verk er um það bil þrjátíu ára gam-
alt og rótgróið fyrirtæki. Það var
upprunalega stofnað af nokkrum
vörubílstjórum á Akranesi en er nú
í eigu Gunnars Þórs Garðarssonar
og fjölskyldu hans. Skagaverk er til
húsa við Smiðjuvelli á Akranesi og
er í ýmsum rekstri í dag, aðallega
rekstri hópferðabíla og ferðaþjón-
ustu, ásamt fleiru. „Við erum með
rúmlega 20 bíla af ýmsum stærðum
og gerðum, sjáum til dæmis um all-
an rútuakstur sem tengist Norður-
áli, tökum að okkur ýmsa keyrslu
fyrir allskyns ferðaþjónustufyrir-
tæki og erum einnig með sendibíla
til útleigu og nýlega keyptum við
limmósínu. Auk þess erum við með
Eldvörnina og Skagaverksmarkað-
inn við Kirkjubraut þar sem selt er
allt á milli himins og jarðar, allt frá
hestavörum og upp í Hello Kitty,“
segir Anna Sigurðardóttir verk-
efnastjóri Skagaverks.
Vesturland hefur upp á
margt að bjóða
Fyrirtækið hefur verið í ýmsum
ferðaþjónustutengdum verkefn-
um undanfarin ár. Nýlega festi
Skagaverk kaup á farþegaferjunni
Gullfossi, ásamt Sævari Matthías-
syni. Gullfoss er í fullum rekstri
í Reykjavík undir í hvalaskoðun-
ar- og norðurljósaferðir auk sjóst-
angveiði fyrir ferðamenn. Nú hef-
ur Skagaverk hug á að auka um-
svif sín í ferðaþjónustu enn frek-
ar. Nýlega opnaði fyrirtækið nýja
vefsíðu, www.aticeland.is og nú er
stefnan að bjóða upp á ferðir um
Vesturland næsta sumar. „Við erum
að skoða það að bjóða upp á dags-
ferðir frá Reykjavík þar sem boð-
ið verður upp á Vesturlandshring.
Til að byrja með verðum við ein-
göngu með ferðir um Vesturland.
Þar verða skoðaðir helstu staðir,
svo sem Hvalfjörður, Borgarnes,
Hraunfossar, Deildartunguhver,
Reykholt og svo framvegis. Við ætl-
um einnig að impra svolítið á Akra-
nesi og koma því betur á kortið,“
segir Anna. Hún segir að einung-
is örfá fyrirtæki selji Vesturlands-
ferðir og að Skagaverk ætli að bæt-
ast í þann hóp. „Við erum svona að
fikra okkur áfram í þessu. Við ætl-
um rólega af stað og gera þetta fal-
lega og faglega. Næstu skref yrðu
svo að hefja samstarf við ferðaþjón-
ustuaðila á svæðinu og við hvetjum
þá sem eru með íslenska leiðsögu-
menn á svæðinu að hafa samband
við okkur. Vonandi getum við svo
þróað þetta þannig að hægt verði
að bjóða upp á ferðir á Snæfellsnes
síðar meir.“
Anna segir að Vesturland hafi upp
á margt að bjóða og sé því spenn-
andi vettvangur fyrir ferðaþjón-
ustu. „Við höfum allt hér á Vestur-
landi. Við erum með gríðarlega fal-
lega náttúru, fossa, hveri, fjöll og
svo margt annað sem ferðamenn
hafa áhuga á að skoða. Við erum
byrjuð að skipuleggja næsta sumar
og það lítur bara vel út, við stefnum
á að bjóða upp á þessar ferðir með
vorinu. Þetta eykur atvinnutækifæri
fyrir ferðaþjónustuaðila á svæðinu
og líka fyrir okkur. Einnig verður
gríðarleg aukning á svokölluðum
hringferðum um landið en þær taka
sex til ellefu daga hver. Svo fjölg-
ar skemmtiferðaskipum ár frá ári
þannig að framtíðin er björt,“ segir
Anna Sigurðardóttir.
grþ
Anna Sigurðardóttir verkefnastjóri
Skagaverks.
Skagaverk eykur umsvif sín
í ferðaþjónustu