Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 18.12.2014, Blaðsíða 10

Fjarðarpósturinn - 18.12.2014, Blaðsíða 10
10 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2014 Arion banki óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Ó, Jesúbarn, þú kemur nú í nótt, og nálægð þína ég í hjarta finn. Þú kemur enn, þú kemur undrahljótt, í kotin jafnt og hallir fer þú inn. (Sb. 75 – Jakob Jóhannesson Smári) Senn verður heilagt, jólahátíðin gengur í garð. Við væntum þess þá að fá að eignast hlut í hinu heilaga, skynja og finna frið og fögnuð í sálu og sinni, sem er hluti af því sem er mest og æðst alls sem er, hluti af eilífð Guðs. Jólin eru kærleikshátíð, og grund­ völlur þess kærleika er elska Guðs til okkar manna og allrar sköpunar sem birtist í Jesú Kristi, lífi hans og boðskap. Allir menn hafa ríka þörf fyrir að elska og vera elskaðir, gefa og þiggja og á aðventu og um jól tökum við frá meiri tíma en venjulega til að gleðja ástvini og samferðarfólk. Við heimsækjum einmana og sjúka og styðjum bágstadda framar venju. Þannig kveikir jólahátíðin einstaka kærleiksglóð í hjörtum okkar enda skynjum við og vitum að í þeim kærleika sem hátíðin er grundvölluð á er að finna rót þeirrar gleði og friðar sem við sækjumst eftir að eignast. Flestir hrífast með boðskap hátíðar­ innar og vilja hefja á loft þann kyndil ljóss og friðar sem Guð hefur tendrað á meðal okkar. Það ljós er svo sterkt að það getur útrýmt myrkri harð­ neskjulegs tals úr lífi manna, rekið á braut hranalegt viðmót, ósætti og illvilja, en skapað samhug, góðvild og hlýhug manna á milli. Þakkarvert er hve margir leggja boðskap aðventu og jóla lið með margvíslegum hætti. Það á ekki síður við um börnin en hina fullorðnu, en börnin láta ekki sitt eftir liggja fái þau tækifæri og hjálp til að gleðja aðra eins og greint hefur verið frá hér í þessu blaði. Hjálparstofnanir liðsinna þurfandi nú fyrir hátíðina eins og undanfarin ár og kalla eftir stuðningi okkar við sitt mikilvæga starf. Því kalli skulum við einnig hlýða. Dýrustu og mikilvægustu jólagjafir okkar eru þó ekki fólgnar í því sem við látum af hendi af verald­ legum gæðum okkar. Þær eru fólgnar í því sem við gefum af ríkdómi hjartans og birtast í því að við gefum af dýrmætum tíma okkar, sýnum hvert öðru tillitssemi og hjálpsemi, brosum og tölum hlýlega hvert til annars. Slíkar gjafir geta allir gefið óháð efnahag, aldri eða ytri aðstæðum. Á aðventu og um jól og áramót eru margar hátíðarstundir í kirkjum bæjarins. Svo er einnig í Hafnar­ fjarðarkirkju þar sem því er fagnað nú í desember að ein öld er liðin frá vígslu hennar. Sá skari er stór sem hefur komið í það fagra musteri í eitt hundrað ár, sótt sér uppbyggingu og endurnæringu í boðskap Jesú Krists og fengið blessun og styrk í gleði sem sorg. Þessi fagnaðarboðskapur hljómar til okkar allra á komandi jólahátíð eins og hann hefur hljómað til mannkyns í aldir, gleðitíðindin um Drottinn Guð sem þekkir okkur hvert og eitt, líf og líðan, og vitjar okkar í Jesú Kristi. Aðstæður okkar manna eru ólíkar nú á jólahátíð sem endranær, en hlið við hlið stöndum við sem hirðarnir á Betlehemsvöllum forðum og hlýðum á boðskapinn. Í undrun fóru þeir og sáu það sem gjörst hafði og Drottinn hafði kunngjört þeim. Við jötu hins nýfædda barns í Betlehem eignuðust þeir hlut í hinu heilaga. Drottinn gaf þeim þann frið og fögnuð í hjarta sem heimurinn gat hvorki gefið né frá þeim tekið. Guð gefi að við fáum séð og skynjað það sem mannkyni er boðað á fæðingarhátíð frelsarans, eignast hlut­ deild í hinu heilaga. Guð gefi okkur gleði og frið á helgri jólahátíð. Já, þakka, sál mín, þú, þakka og lofsyng nú fæddum friðargjafa, því frelsari er hann þinn, seg þú: ‚Hann skal hafa æ hjá mér bústað sinn, vinur velkominn. (Sb. 88 – Björn Halldórsson) Sr. Jón Helgi Þórarinsson Sr. Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkikju: Að eignast hlut í hinu heilaga

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.