Fjarðarpósturinn - 18.12.2014, Blaðsíða 15
www.fjardarposturinn.is 15FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2014
– fyrst og fre
mst
ódýr!
Krónan Hvaleyrarbraut og Krónan Reykjavíkurvegur
19. des. - 22. des.
Þorláks-
messa
Aðfanga-
dagur
10-21 10-23 9-13
27. des
laugardagur
28. des
sunnudag
29. des
mánudagur
30. des þrið-
judagur
Gamlárs-
dagur
10-21 10-21 10-21 10-21 9-15
Opið lengur
í Hafnarfirði yfir jól og áramót!
Óskum Hafnfirðingum
og farsældar á komandi ári
gleðilegra jóla
Gísli Halldórsson (87) hafði
samband við Fjarðarpóstinn og
vildi vekja athygli á því góðverki
sem nemendur í 5. bekk
Víðistaðaskóla hafa unnið með
því að lesa fyrir heimilisfólk á
Hrafnistu. Segir hann þennan
lestur mjög mikilvægan fyrir
marga og hvetur hann fólk til að
vera duglegri að heimsækja
heimilisfólk.
Að sögn Guðrúnar Jóhönnu
Hallgrímsdóttur, deildar stjóra
iðjuþjálfunar og félag sstarfs
Hrafnistu Hafnarfirði, var hafið
formlegt samstarf við Víði
staðaskóla í október síðastliðinn
og er það hluti af lestrarátaki
skólans hjá nemendum í 5. bekk.
Börnin mæta ásamt umsjónar
kennara sínum og skipta sér í
23 manna hópa. Hver hópur
hittir sinn lestrarvin þar sem þau Hildigunnur var þakklát þessum ungu nemendum.
Sigurborg fékk þessar ungu stúlkur í eldhúskrókinn hjá sér.
Börnin lesa fyrir þá elstu
Nemendur í 5. bekk Víðistaðaskóla heimsækja Hrafnistu
Nemendurnir skiptust á að lesa, Birni til mikillar ánægju.
skiptast á að lesa upphátt
bókakafla, ljóð eða námsverkefni
að eigin vali. Bekkirnir eru þrír
talsins og skiptast því á að koma
vikulega í heimsókn, sem merkir
að hver bekkur kemur á þriggja
vikna fresti.
Segir Guðrún Jóhanna að
mikil ánægja ríki hjá nemendum
og heimilisfólki með þetta
skemmtilega samstarfsverkefni
og að það muni halda áfram á
nýju ári.
Það fór vel á með nemendunum og Guðmundu eftir lesturinn.