Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 71

Læknablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BÓKADÓMUR Umsögn um Handbók í lyflæknisfræði, 3. útg. Ritstjórar: Ari J. Jóhanncsson og Runólfur Pálsson Háskólaútgáfan, Landspítali 2006. Flestir læknar kannast við þá gamalkunnu og stundum ljúfsáru tilfinningu að standa frammi fyrir klínísku vandamáli og þurfa haldbærar upplýsing- ar strax. Hvernig meðhöndla ég hyperkalemíu, hvernig leiðrétti ég hyponatremíu og hve fljótt, af hverju er þessum sjúklingi sífellt óglatt, hvernig sinni ég sjúklingi sem kemur inn meðvitundarlaus klukkan þrjú að morgni, hvað veldur bráðri lið- bólgu, hvernig meðhöndla ég hættulegan háþrýst- ing, hvernig meðhöndla ég fárveikan sjúkling með lungnabólgu, hvaða gigtarpróf eiga við hér? Allar þessar spurningar og miklu, miklu fleiri hafa farið í gegnum heilahvelin á okkur flestum frá því að við hófum klínískt nám í læknisfræði. Til að mæta þessu vorum við mörg með handskrifaðar nótur í lítilli möppu í sloppvasanum sem þyngdist og þyngdist. Mörg okkar kynntust svo Washing- ton-handbókinni sem var enn þyngri og setti mikla slagsíðu á sloppvasann, ekki síst eftir að við fórum að bera hlustunarpípuna um hálsinn, ekki í hinum sloppvasanum. Handbók í lyflæknisfræði er íslenskt af- brigði Washington-handbókarinnar. Það telst til tíðinda þegar slík bók er gefin út, og í þessu tilviki eru tíðindin góð. Um nokkurra ára skeið hafa klínískar leiðbeiningar, þróun þeirra og notkun verið að þróast hérlendis. Fram að þeirri vinnu höfðu vissulega verið gefnar út leiðbein- ingar um klínískt starf af ýmsum tegundum og má segja að fyrsta útgáfa þessarar bókar fylli þann flokk. Bókin sem nú kemur út í 3. útgáfu er mun betur skapaðri en forverar hennar, er afsprengi þeirrar vinnu og hugarfarsbreytingar sem vinna við klínískar leiðbeining- ar hefur haft í för með sér, enda tekur hún mikið mið af slíku vinnulagi. Bókin er líka nauðsynlegt, sjálfsagt og eðlilegt afsprengi háskólaspítala og sýnir þann metnað sem ríkir meðal íslenskra lyflækna. Ritstjórar bókarinnar hafa unnið mikið starf og öflugt og fara þar fremstir í flokki jafningja hinna 50 höf- unda sem eiga hlutdeild í bókinni. Hún tekur á mjög mörgum algengum og bráðum vandamálum innan lyflæknisfræði. Yfirleitt tekst að koma upplýsingum á framfæri á skýran hátt í grein- argóðum og knöppum texta. Bókin mun því nýtast í önn dagsins, ekki enda uppi sem þægileg upp- flettibók á skrifborðshorni eða náttborði. Hún á hvergi betur heima en í vinstri sloppvasanum og er reyndar ekki þyngri en svo að hún á ekki að setja mikla slagsíðu á sloppinn. Bókin er líka nokkurs konar hómilíubók almennrar lyflæknisfræði, en sú fræðigrein virðist á stundum vera ýmsum gleymd. Ahersla okkar hefur verið mikil og góð á allar undirgreinar lyflækninga og þær verið stundaðar vel, en mörgum sýnist að uppruninn og hryg- glengjan, almenn lyflæknisfræði, hafi borið lítillega skarðan hlut frá borði undanfarin ár og áratugi. Þessi bók á sinn þátt í að rétta kúrsinn lítillega af í því efni. Auðvitað má alltaf vinna verk af þessu tagi betur og fullkomnun verður aldrei náð, ef til vill sem betur fer. í þessari bók er gott efnisyfirlit en hins vegar vantar efnisatriðaskrá sem hefði verið til mikilla bóta. Umbúnaður og umbrot bókarinnar er létt og lipurt, en akkur hefði verið í litmyndum. Vafalítið hafa kostnaðarsjónarmið haft áhrif á það mál. Ritstjórn kafla er almennt til fyrirmyndar og samræmi gott. Þó má nefna að nokkurrar mis- vísunar gætir í þremur köflum um hita og hvít- kornafæð og hefði ef til vill farið betur á að hafa einungis einn kafla með tilvísunum í aðra staði bókarinnar. Jafnframt hefði verið gagn að saman- tekt um uppvinnslu og meðferð HlV-sýk- ingar og alnæmis. Styrkur er að köflum á borð við leiðbeiningar um meðferð við lok lífs og sálfræði- og sálgæsluþjónustu á sjúkrahúsi og lokakaflinn um fagmennsku og góða starfshætti lækna er bráðnauðsynlegur og til fyrirmyndar. Gagn hefði verið að kafla (með litmyndum) um húðeinkenni ýmissa kerfisbundinna sjúkdóma, en kaflar á borð við næringarmeðferð og sérstakar áherslur öldru- narlækninga eru þarfir. Eins og áður sagði er tilurð og útkoma þessarar bókar fagnaðarefni. Hún ætti að geta nýst flestum læknum, ekki síst lyflæknum og heimilislæknum, auk lækna í starfsnámi og læknanemum í daglegu starfi. Hún ætti reyndar að verða skyldueign lyflækna. Ljóst er með þeim krafti og dugnaði sem kemur fram við útgáfu þessarar bókar, að líf hennar mun halda áfram og vonandi mun hún koma út á þriggja til fjögurra ára fresti í framtíðinni. Á öflugum háskólaspítala eins og Landspítalinn ætlar sér að vera er slík fagmennska sjálfsögð. Orð Einar Ólafs Sveinssonar heitins prófessors lýsa þessu ef til vill best: „Afrek gera yfirlæti óþarft.” Sigurður Guðmundsson landlœknir Ari J. Jóhannesion Runótfur Pálston HANDBÓKí LYFLÆKNISFRÆÐI nZS / \ 1 © V ) & Læknablaðið 2006/92 819
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.