Læknablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BÓKADÓMUR
Umsögn um Handbók í lyflæknisfræði, 3. útg.
Ritstjórar: Ari J. Jóhanncsson
og Runólfur Pálsson
Háskólaútgáfan, Landspítali 2006.
Flestir læknar kannast við þá gamalkunnu og
stundum ljúfsáru tilfinningu að standa frammi fyrir
klínísku vandamáli og þurfa haldbærar upplýsing-
ar strax. Hvernig meðhöndla ég hyperkalemíu,
hvernig leiðrétti ég hyponatremíu og hve fljótt, af
hverju er þessum sjúklingi sífellt óglatt, hvernig
sinni ég sjúklingi sem kemur inn meðvitundarlaus
klukkan þrjú að morgni, hvað veldur bráðri lið-
bólgu, hvernig meðhöndla ég hættulegan háþrýst-
ing, hvernig meðhöndla ég fárveikan sjúkling með
lungnabólgu, hvaða gigtarpróf eiga við hér?
Allar þessar spurningar og miklu, miklu fleiri
hafa farið í gegnum heilahvelin á okkur flestum
frá því að við hófum klínískt nám í læknisfræði. Til
að mæta þessu vorum við mörg með handskrifaðar
nótur í lítilli möppu í sloppvasanum sem þyngdist
og þyngdist. Mörg okkar kynntust svo Washing-
ton-handbókinni sem var enn þyngri og setti mikla
slagsíðu á sloppvasann, ekki síst eftir að við fórum
að bera hlustunarpípuna um hálsinn, ekki í hinum
sloppvasanum.
Handbók í lyflæknisfræði er íslenskt af-
brigði Washington-handbókarinnar. Það telst til
tíðinda þegar slík bók er gefin út, og í þessu
tilviki eru tíðindin góð. Um nokkurra ára skeið
hafa klínískar leiðbeiningar, þróun þeirra og
notkun verið að þróast hérlendis. Fram að þeirri
vinnu höfðu vissulega verið gefnar út leiðbein-
ingar um klínískt starf af ýmsum tegundum og má
segja að fyrsta útgáfa þessarar bókar fylli þann
flokk. Bókin sem nú kemur út í 3. útgáfu er mun
betur skapaðri en forverar hennar, er afsprengi
þeirrar vinnu og hugarfarsbreytingar sem vinna
við klínískar leiðbeining- ar hefur haft í för með
sér, enda tekur hún mikið mið af slíku vinnulagi.
Bókin er líka nauðsynlegt, sjálfsagt og eðlilegt
afsprengi háskólaspítala og sýnir þann metnað
sem ríkir meðal íslenskra lyflækna. Ritstjórar
bókarinnar hafa unnið mikið starf og öflugt og
fara þar fremstir í flokki jafningja hinna 50 höf-
unda sem eiga hlutdeild í bókinni. Hún tekur á
mjög mörgum algengum og bráðum vandamálum
innan lyflæknisfræði. Yfirleitt tekst að koma
upplýsingum á framfæri á skýran hátt í grein-
argóðum og knöppum texta. Bókin mun því nýtast
í önn dagsins, ekki enda uppi sem þægileg upp-
flettibók á skrifborðshorni eða náttborði. Hún á
hvergi betur heima en í vinstri sloppvasanum og er
reyndar ekki þyngri en svo að hún á ekki að setja
mikla slagsíðu á sloppinn. Bókin er líka nokkurs
konar hómilíubók almennrar lyflæknisfræði, en sú
fræðigrein virðist á stundum vera ýmsum gleymd.
Ahersla okkar hefur verið mikil og góð á allar
undirgreinar lyflækninga og þær verið stundaðar
vel, en mörgum sýnist að uppruninn og hryg-
glengjan, almenn lyflæknisfræði, hafi borið lítillega
skarðan hlut frá borði undanfarin ár og áratugi.
Þessi bók á sinn þátt í að rétta kúrsinn lítillega af
í því efni.
Auðvitað má alltaf vinna verk af þessu tagi
betur og fullkomnun verður aldrei náð, ef til vill
sem betur fer. í þessari bók er gott efnisyfirlit en
hins vegar vantar efnisatriðaskrá sem hefði verið
til mikilla bóta. Umbúnaður og umbrot bókarinnar
er létt og lipurt, en akkur hefði verið í litmyndum.
Vafalítið hafa kostnaðarsjónarmið haft áhrif á það
mál. Ritstjórn kafla er almennt til fyrirmyndar
og samræmi gott. Þó má nefna að nokkurrar mis-
vísunar gætir í þremur köflum um hita og hvít-
kornafæð og hefði ef til vill farið betur á að
hafa einungis einn kafla með tilvísunum í aðra
staði bókarinnar. Jafnframt hefði verið gagn að
saman- tekt um uppvinnslu og meðferð HlV-sýk-
ingar og alnæmis. Styrkur er að köflum á borð við
leiðbeiningar um meðferð við lok lífs og sálfræði-
og sálgæsluþjónustu á sjúkrahúsi og lokakaflinn
um fagmennsku og góða starfshætti lækna er
bráðnauðsynlegur og til fyrirmyndar. Gagn hefði
verið að kafla (með litmyndum) um húðeinkenni
ýmissa kerfisbundinna sjúkdóma, en kaflar á borð
við næringarmeðferð og sérstakar áherslur öldru-
narlækninga eru þarfir.
Eins og áður sagði er tilurð og útkoma þessarar
bókar fagnaðarefni. Hún ætti að geta nýst flestum
læknum, ekki síst lyflæknum og heimilislæknum,
auk lækna í starfsnámi og læknanemum í daglegu
starfi. Hún ætti reyndar að verða skyldueign
lyflækna. Ljóst er með þeim krafti og dugnaði
sem kemur fram við útgáfu þessarar bókar, að líf
hennar mun halda áfram og vonandi mun hún
koma út á þriggja til fjögurra ára fresti í framtíðinni.
Á öflugum háskólaspítala eins og Landspítalinn
ætlar sér að vera er slík fagmennska sjálfsögð. Orð
Einar Ólafs Sveinssonar heitins prófessors lýsa
þessu ef til vill best: „Afrek gera yfirlæti óþarft.”
Sigurður Guðmundsson
landlœknir
Ari J. Jóhannesion
Runótfur Pálston
HANDBÓKí
LYFLÆKNISFRÆÐI
nZS /
\ 1 © V ) &
Læknablaðið 2006/92 819