Fréttatíminn - 24.10.2014, Blaðsíða 75
heilsaHelgin 24.—26. október 2014 7
Hollar, bragðgóðar og
skemmtilegar skvísur
E lla’s Kitchen barnamatur á rætur sínar að rekja til pabba sem vildi að dóttir sín, Ella, fengi eins næringar-
ríkan mat og hægt væri og vildi ala hana
upp við að hollur matur getur líka verið
skemmtilegur og bragðgóður. Í dag er Ella
orðin táningur og Ella’s Kitchen barnamatur
orðinn þekktur um allan heim fyrir bragð og
gæði. Maturinn er eingöngu unninn úr líf-
rænum innihaldsefnum og inniheldur engin
aukefni. Þessar skemmtilegu skvísur höfða
til allra skilningarvita barnsins með litrík-
um umbúðum sem gaman er að koma við,
viðeigandi áferð matarins miðað við hvert
aldursskeið og frábærum bragðtegundum.
Úrvalið er breitt og fer sístækkandi - það nýj-
asta eru kvöldverðarskvísur sem innihalda
ýmist grænmetis- eða kjötrétti. Ekki er
þörf á að hita skvísurnar upp en vilji maður
gera það er auðvelt að láta þær standa í smá
stund í heitu vatni. Ella’s Kitchen er 100% líf-
rænn barnamatur í hæsta gæðaflokki fyrir
litla sæta matgæðinga. Fæst í matvöru- og
heilsuverslunum
Kynning
Nathan & Olsen
Ella‘s Kitchen býður upp á
margar tegundir af ávaxta-
og grænmetismauki fyrir 4
mánaða og eldri. Gott er að
gefa barninu þær eintómar eða
blanda við þær graut eða jafn-
vel kjöti þegar kynna á barnið
fyrir fastri fæðu.
Sveskjumaukið frá
Ella‘s Kitchen er
einstakt þar sem
það inniheldur
100% sveskjur og
engu vatni bætt
við. Það er nauð-
synlegt að eiga
svona til að losa
eða koma í veg
fyrir stíflur í litlum
mallakútum.
Kvöldverðar-
skvísurnar fást í 4
tegundum. Þessar
skvísur eru matar-
miklar, einstaklega
bragðgóðar og
henta börnum frá
7 mánaða aldri.
Það hefur aldrei
verið svona auðvelt
að framreiða
100% lífrænan
og næringarríkan
kvöldverð!
Rís-skvísurnar innihalda blöndu af
ávöxtum og hýðishrísgrjónum. Morg-
unskvísurnar eru ljúffeng blanda af
ávöxtum, jógúrt og hýðishrísgrjónum.
Þessar skvísur eru fullkomnar sem
saðsamur morgunmatur, snarl eða
jafnvel eftirréttur fyrir litlu krúttin.
Þessar skvísur
jafngilda einum
ávexti hver og
eru upplagðar
sem millimál
eða hluti af
nestispakka
fyrir fjöruga
krakka!
Ella‘s Kitchen býður líka
upp á bragðgóða þurr-
grauta með þurrkuðum
ávöxtum sem blanda á
saman við mjólk barnsins.
100% lífrænn barnamatur í hæsta gæðaflokki fyrir litla sæta matgæðinga