Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.10.2014, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 24.10.2014, Blaðsíða 38
Fyrir og eftir predikun M Menntaskólanemar bindast oft sterkum böndum. Svo er um þriðja útskriftarhóp Menntaskólans við Hamrahlíð, sem pistil- skrifarinn tilheyrir, MH 72. Saumaklúbb- ar lifa góðu lífi, hópurinn hittist á fimm ára fresti og í seinni tíð halda piltar hópsins árlegt haustblót, verða ungir á ný, borða, syngja og fá sér aðeins í tána, þó ekkert í líkingu við það sem gat gerst hjá óvönu ungviði á dansæfingum forðum daga. Ragnar Önundarson viðskiptafræðingur stýrir fundum af festu. Ekki þarf langt að sækja forsöngvara og undirleikara því bróðurpartur Stuðmanna er í hópnum. Einn félaganna er fenginn til að messa. Í haust kom það í hlut undirritaðs. Þótt slík samkoma litist vitaskuld af viðstöddum fundarmönnum leyfi ég mér að birta úr- drátt úr predikuninni hér, eins og pláss leyfir, á þeirri forsendu að innan hópsins eru þjóðkunnir menn og skemmtilegir. „Kæru skólabræður. Það er gaman að horfa yfir þennan hóp karlmanna. Líkamsbygging og limaburð- ur er eins og best verður á kosið. Hópurinn ber í senn með sér lífsreynslu og lífsgleði. Hárið er styttra en þann sæla júnídag er við lögðum út í lífið. Ég er ekki að segja að við höfum ekki verið fallegir vorið 1972, það vorum við. Það er helst að hártískan hafi ekki verið okkur í hag sem frekar á við um okkur bræður en fagrar skólasyst- ur. Kannski er það vegna hártískunnar sem maður sér stúdentshópmyndinni ekki hampað. Ég hef aðeins séð hana hanga uppi hjá einum í hópnum – hvorki í stofu né bókaherbergi – heldur á salerni! Það er ekki víst að lærifeður okkar hafi gert sér miklar vonir um þennan hár- prúða árgang. Samt rættist vel úr honum. Þaðan komu máttarstólpar þjóðfélagsins, karlar og konur. Frægastir, að minnsta kosti karlamegin, eru þeir sem skipa unglingahljómsveit allra tíma. Það þarf ekki að hafa mörg orð um þau ungmenni, Valgeir Guðjónsson, Jakob Frímann Magnússon og Sigurð Bjólu. Þá má nefna til sögunnar sjálfa rödd Íslands. Við búum í landi þar sem vænta má eldgosa, jarð- skjálfta, aftakaveðurs, snjó- og vatnsflóða svo ógurlegra að brýr tekur af og byggðir einangrast. Í mestu hamförunum setur ótta að fámennri þjóð – allt þar til djúp rödd heyrist á öldum ljósvakans. Útvarp Reykjavík, Útvarp Reykjavík, fréttir segir Broddi Broddason. Þá – og þá fyrst – færist ró yfir landsmenn. Frá þeirri stundu eru þeir í öruggum höndum. Ekkert getur grandað þeim. Útskriftarhópurinn skilaði af sér hvorki fleiri né færri en fimmtán læknum, heilaskurðlæknum og öðrum merkum sérfræðingum, auk annarra heilbrigðis- starfsmanna – en nánast fjórðungur hópsins hefur helgað líf sitt þeim geira. Þess vegna – og aðeins þess vegna – hefur heilsa þjóðarinnar verið góð undanfarna áratugi, þrátt fyrir sífelldan niðurskurð, úrelt lækningatæki og gamlar byggingar. Þá skortir hvorki lögfræðinga, arkitekta, presta né verkfræðinga og vitaskuld hafa verið í okkar hópi skólastjórar, bankastjór- ar og sveitarstjórnarmenn, svo eitthvað sé nefnt. Í sveitarstjórnum hefur einmitt verið helsta aðkoma hópsins að pólitík en þar gnæfir ein staða yfir öllum öðrum, staða borgarstjórans í Reykjavík. Að sjálfsögðu hefur MH 72 átt borgarstjóra. Því starfi gegndi félagi okkar, Ólafur F. Magnússon læknir. Svo merkilegt sem það er, hefur þessum föngulega hópi gengið verr þegar kemur að kjötkötlum landstjórnarinnar. Frækn- ustu kappar hópsins hafa reynt að komast á þing og skal þar helst telja til landbún- aðarforkólfa Framsóknar, Guðmund Stef- ánsson og Þórarin E. Sveinsson. Þeir náðu aðeins að verma varamannabekki – og sama átti við um jafnaðarmanninn Jakob Frímann Magnússon. Við höfum því lengst af orðið að monta okkur af viðhengjum árgangsins, Guðbjarti Hannessyni, þingmanni og ráðherra, eiginmanni Sigrúnar Ásmunds- dóttur, skólasystur okkar og Vilhjálmi Egilssyni, fyrrum þingmanni, eiginmanni Ragnhildar Pálu Ólafsdóttur, skólasystur okkar. Þegar þau tengsl dugðu ekki urðum við að leita á slóðir forfeðra sam- stúdentanna, minntumst Halldórs E. Sigurðssonar, þingmanns og ráðherra, föður Sigurðar Halldórssonar, Magnúsar Torfa Ólafssonar, þingmanns og ráðherra, föður Sveins E. Magnússonar og Jónasar Péturssonar þingmanns, föður Péturs Þórs Jónassonar. Eftir því sem á ævi okkar leið minnkaði vonin um kjörinn fulltrúa á Alþingi Ís- lendinga úr hópnum. Við urðum fertugir, fimmtugir og loks sextugir. Hvorki gekk né rak. Bjartsýnustu stúdentar fóru smám saman að sætta sig við það að á þessu eina sviði næði MH 72 ekki árangri. Slægi ekki í gegn, svo vitnað sé til unglingahljóm- sveitar árgangsins. En vorið 2013 gerðist undrið. Ástsæll skólabróðir, Vilhjálmur Bjarnason, hafði mætt í sjónvarp fyrir hönd sinnar heima- byggðar, Garðabæjar, og slegið í gegn í spurningaþættinum Útsvari. Viska hans, undirstöðumenntun frá MH-árunum, keppnisskap – en ekki síst framkoma öll og leikræn tjáning – færði honum slíkan kjörþokka að helst má líkja við stórstjörn- ur 20. aldar sem komust til æðstu metorða í kjölfar sjónvarpsþátta. Á vordögum síð- asta árs flaug Villi Bjarna sem sagt á þing og situr þar enn. Eftirtektarvert er fyrir þjóð sem gengið hefur í gegnum efnahags- og bankahrun að skoða nokkrar staðreyndir í því sam- bandi. Frá því að fulltrúi stúdenta MH 72 settist á þing á liðnu ári, hefur hagvöxtur aukist, verðbólga hjaðnað, erlendar skuldir lækkað og dregið verulega úr at- vinnuleysi. Metafli hefur fengist úr sjó og makríll gengur nú á Íslandsmið. Þá hefur togaraflotinn verið endurnýjaður. Jafnvel knattspyrnulandsliði Íslands gekk framar vonum á kosningaári Vil- hjálms, það komst á þröskuld heims- meistarakeppninnar í Brasilíu og stefnir nú óðfluga í úrslitakeppni næsta Evrópumeistaramóts. Villi Bjarna er á góðri leið með að gera okkur að Evrópumeisturum! Ónefnt er að Stjarnan, íþrótta- félagið í heimabæ Vilhjálms Bjarnasonar, varð Íslandsmeist- ari í karlafótboltanum í fyrsta sinn á dögunum – og gott ef ekki í kvennaboltanum líka. Hvort Villi fullkomnar þetta – og nær eina djobbinu sem eftir stendur ósnert af MH-stúdentum 1972 – kemur í ljós sumarið 2016 þegar Bessastaðabóndinn lýkur fimmta kjörtímabili sínu!“ Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i 38 viðhorf Helgin 24.—26. október 2014 SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON VIKAN 15.10.14 - 21.10.14 1 2 5 6 7 8 109 43 Í innsta hring Viveca Sten Kata Steinar Bragi Hans Jónatan Gísli Pálsson Náðarstund Hannah Kent Afdalabarn Guðrún frá Lundi Gula spjaldið í Gautaborg Gunnar Helgason Leitin að Blóðey Guðni Líndal Benediktsson Handan minninga Sally Magnusson Í krafti sannfæringar Jón Steinar Gunnlaugsson Arfleifð Veronica Roth
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.