Fréttatíminn - 24.10.2014, Blaðsíða 31
Stekkjarbakka 6 • 540 3300 • gardheimar.is
Njótum hausts ins
Tilboð
3 erikur 990kr
opiÐ til 21:00
Öll kvÖld
Spennandi helgartilboð hverja helgi!
Skapaðu hlýleika heima
með fallegum haustplöntum
luktum og ljósaseríum
· HOLLT OG GOTT Í HÁDEGINU
fæddra eru nokkrir Reykvíkingar
sem flutt hafa í nágrenni jökulsins
til þess að taka þátt í ævintýrinu.
Þau eru Björg Árnadóttir fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins og
synir hennar tveir Arnar Gauti og
Guðmundur Markússynir en Arnar
Gauti er einn eigendanna.
Það munar um þegar níu manns
ásamt fjölskyldum sínum ákveða að
byggja upp lífsafkomu sína á svæð-
inu. Þau hafa áhrif á samfélagið þar
sem þau kaupa eða leigja húsnæði,
greiða útsvar og kaupa þjónustu.
Fyrir þau er mikilvægt að taka þátt
í að byggja upp samfélagið. Eitt af
vandamálum við framtíðar stækk-
un fyrirtækisins er þó skortur á
leiguhúsnæði á svæðinu.
Vinsælar jeppa- og gönguferðir
„Stór hluti af veltunni kemur
frá jeppa- eða gönguferðum um
hálendið og Suðurströndina, inn í
Þórsmörk, Landmannalaugar og
á Eyjafjallajökul. Við bjóðum líka
svokallaðar GRÍN ferðir eða Global
Renewable Energy Educational
Network (GREEN) ferðir. Þær
eru í samstarfi við Melissu, unga
konu í Bandaríkjunum. Ég hitti
hana fyrst á ráðstefnu sem ég stóð
fyrir á Íslandi og kallaði „Under
30 CEO’s“. Við náðum líka sam-
starfi við Orkuskóla Háskólans í
Reykjavík en nemendurnir, sem
eru aðallega verkfræðinemar frá
Bandaríkjunum, fá einingar fyrir
ferðirnar til Íslands. Ferðirnar eru
stílaðar inn á vetrar- og sumarfrí í
háskólunum úti og við fáum um það
bil 40 manns í hverja ferð í 10 ferðir
á ári. Fyrirtækið er líka með hús
inni á miðjum Sprengisandi sem
við köllum Midgard. Þangað förum
við í vetrarferðir með litla og stóra
hópa. Þær ferðir geta einnig verið
spennandi kostur fyrir íslensk
fyrirtæki sem eru með hvataferðir
fyrir starfsmenn í liðsheildar-
vinnu,“ segir Siggi Bjarni.
Upplifðu ævintýrið
Markmiðið er að ferðamenn sem
heimsækja Ísland öðlist ánægju-
lega og jákvæða upplifun en hlut-
verk South Iceland Adventure er
líka að skapa eigendum og starfs-
mönnum skemmtilegt og gefandi
vinnuumhverfi. „Við erum að vinna
við það sem okkur þykir skemmti-
legast og leggjum okkur 130%
fram,“ segir Siggi Bjarni. „Svo er
okkur líka mikilvægt að ná aftur á
Hvolsvöll brottfluttum Hvolsvell-
ingum og jafnvel öðrum, og skapa
þeim atvinnu á svæðinu.“
„Við höfum lifað mestalla ævi
okkar í kringum Eyjafjallajökul og
þekkjum umhverfið eins og lófana
á okkur. Við búum yfir gríðarlega
mikilli fjallareynslu og sameinum
þannig þekkingu okkar, hæfni og
ástríðu fyrir íslenska hálendinu.
Við leggjum áherslu á, að líkt og
forfeður okkar víkingarnir, að
skilja náttúruna og finna þá sér-
stöðu sem gerir fríið sérstakt. Það
að nota víkingana í markaðsefni
okkar er leið til þess að túlka kar-
akterinn í fyrirtækinu,“ segir Siggi
Bjarni.
„Hugmyndafræði okkar snýst
um það að við stýrum okkar eigin
viðhorfum í vinnunni og viljum
gera daginn eftirminnilegan. Við
báðum starfsmenn um að búa til
gildi út frá því hvernig þeir upp-
lifðu fyrirtækið og þeir komu upp
með orð eins og væntumþykja,
gleði og sveigjanleika. Einn starfs-
maður lýsti fyrirtækinu líka sem
risasmáu. Mér finnst það lýsa
andrúmsloftinu vel. Það sem drífur
okkur áfram er að við viljum gera
betur en okkar besta fyrir við-
skiptavininn,“ segir Siggi Bjarni.
Sé ekki eftir neinu
Björg Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri SIADV, er hjúkrunarfræð-
ingur með MBA gráðu en hún var í
góðu starfi hjá Vistor sem sölu- og
markaðsstjóri þegar hún ákvað að
flytja á Hvolsvöll til að taka þátt í
ævintýri strákanna.
„Ég stundaði fjallgöngur og úti-
vist og ákvað í framhaldinu að fara
í leiðsögumannaskólann og björg-
unarsveitina. Maðurinn minn dreif
sig með mér en við höfum verið
saman frá því við vorum 15 ára
gömul. Það var eiginlega Mummi,
yngri strákurinn okkar, sem var
fyrirmyndin og við drifum okkur í
nýliðaþjálfun í sömu björgunarveit
og hann. Það gaf mér líka tækifæri
til að njósna um hann,“ segir Björg
og hlær. „Í kjölfarið ágerðist löngun
mín til að skipta um starfsvettvang
en það er ekki alltaf auðvelt. Sér-
staklega ekki þegar maður dettur
807 þúsund ferðamenn
Heildarfjöldi erlendra ferðamanna var
um 807 þúsund árið 2013 en það er um
20% aukning frá árinu 2012 en þá voru
erlendir ferðamenn um 673 þúsund
talsins. Um 781 þúsund ferðamenn
komu með flugi um Keflavíkurflugvöll
eða 96,7% af heildarfjölda ferða-
manna. Tæplega 17 þúsund komu með
Norrænu um Seyðisfjörð eða um 2,1%
af heildinni og tæp 10 þúsund með flugi
um Reykjavíkur- eða Akureyrarflugvöll
eða um 1,2% af heildinni.
Heimild: Ferðamálastofa Siggi Bjarni markaðssetti South Iceland Adventure með því að ferðast milli borga í
Evrópu og fara með bækling á ferðaskrifstofur.Framhald á næstu opnu
viðtal 31 Helgin 24.—26. október 2014