Þjóðlíf - 01.11.1986, Síða 49
Út frá þessu má síðan bollaleggja
ýmsilegt um eðli og upplag skák-
manna — en út í þá sálma förum við
ekki hér. Fine leggur þó áherslu á, að
engin hrein „tegund" af skákmanni
sé til — vegna þess hversu margþættu
hlutverki skákin getur gegnt í lífi þess
sem hana tefiir.
Innhverfir — út-
hverfir
Fyrir nokkrum árum gerðu banda-
rískir sálfræðingar athugun á 140
fremstu skákmönnum og -konum
bandaríska skáksambandsins (að vísu
voru aðeins sex konur í þessum hópi,
en sú tala speglar víst vel hlutfall
kvenna í skákheiminum — hvað sem
veldur). Sálfræðipróf var lagt fyrir
þetta fólk og þóttust sálfræðingarnir
komast að því, að það sem einkenndi
skákfólkið einna mest var það, að
það var einangraðra en fólk er flest.
Sálfræðingarnir notuðu hugtök,
sem fengin eru frá Carl Jung, en þau
hugtök hafa verið þýdd á íslensku
úthverfni og innhverfni. Með því að
segja að einhver sé úthverfur pers-
ónuleiki er átt við, að viðkomandi
hafi gaman af öðru fólki og sækist
eftir félagsskap annarra. Hinir inn-
hverfu búa hins vegar meira að sínu
og leita lausna í sínum eigin hugar-
heimi.
Sérfræðingarnir komust að því
með sálfræðiprófinu, að það er ein-
mitt innhverfnin sem er sterkasti
persónuleikaþátturinn í sterkum
skákmönnum. Meðal bandarískra
skákmanna reyndust slíkir persónu-
leikar vera þrír á móti hverjum ein-
um úthverfum. Til samanburðar má
geta þess, að innhverfir persónu-
leikar meðal almennings í Bandaríkj-
unum eru taldir vera um helmingur.
Sérfræðingarnir segja, að innhverfir
persónuleikar hafi meiri einbeitingar-
hæfileika en hinir úthverfu. í skák-
inni komi þetta að góðum notum, því
innhverfir persónuleikar hafi meiri
yfirsýn en hinir og eru ekki eins lík-
legir að leika af sér. Þessir sérfræð-
ingar taka Bent Larsen sem dæmi um
úthverfan skákmann og vilja útskýra
hin annars óskiljaniegu mistök, sem
hann hefur gert sig sekan um á skák-
borðinu, með tilvísun til þessa þáttar
persónuleika hans. Þótt sérfræðing-
arnir fyndu þannig greinilegan mun á
einbeitingarhæfileikum skákmanna
eftir því hvort þeir töldust innhverfir
eða úthverfir, fundu þeir hins vegar
engan marktækan mun á leikstíl
þeirra.
Innsæi — skynjun
í sálfræðiprófinu voru einnig pers-
Ofanfrá og niður:
Paul Morphy. Sigraði fremstu
skákmenn heims, en dró sig síðan
alfarið í hlé. Hann þjáðist af geð-
rænum kvilla og lést 47 ára
gamall.
Alexander Alekhine. Drykkju-
skapur olli honum erfiðleikum eftir
að hann varð heimsmeistari.
Bobby Fischer. Hegðan hans vakti
ekki minni eftirtekt en frammistað-
an á taflborðinu.
Max Euwe. Einn örfárra skáksnill-
inga sem lifað hefur eðlilegu fjöl-
skyldulífi.
ónuleikaþættirnir innsœi-skynjun
prófaðir. Þessir þættir eiga að lýsa því
hvernig við upplifum staðreyndir.
Skynjunin er það sem skynfæri okkar
nema, en innsæið lýtur að því hvernig
við vinnum úr því, sem skynfærin
rétta okkur. Ef við sjáum ljós skína
úr glugga húss og heyrum frá því
dunandi dansmúsík, getum við hæg-
lega dregið þá ályktun, að húsráð-
endur séu heima við góða skemmtan.
Svo þarf þó ekki að vera. Flúsráðend-
ur geta hafa brugðið sér af bæ, en
gleymt að slökkva ljósin og skilið út-
varpið eftir í gangi. Innsæið lýtur
þannig ekki að því sem er heldur því
sem við höldum að sé.
Samkvæmt sálfræðiprófinu
reyndust helmingi fleiri bestu skák-
menn Bandaríkjanna falla undir
flokkinn innsæi en skynjun. Almennt
er þessu víst þveröfugt farið og gott
betur, því talið er að skynjarar séu
þrefalt fleiri en innsœismenn í hópi
mannkyns. Insætt fólk er yfirleitt tal-
ið meira skapandi en „skynjarar" og
þeir eru einnig líklegri til að finna
afbragðs lausnir. 48 prósent bestu
skákmanna Bandaríkjanna töldust
bæði innhverfir og innsæir, en talið er
að þessa samsetningu sé að finna hjá
aðeins fjórum prósentum mannkyns.
Hugsun — tilfinning
í sálfræðiprófinu var einnig prófað-
ur þáttur, sem kalla má hugsun —
tilfinning. Með hugsuninni vegum við
og metum allar staðreyndir mála og
tökum ákvarðanir út frá því, en „til-
finningaverur“ setja álit og tilfinning-
ar annarra, einnig okkar sjálfra, ofar
staðreyndum.
Almenningur skiptist nokkuð jafnt
niður á þessa hópa. í hópi skák-
manna eru „hugsuðir“ mun fleiri en
„tilfinningaverurnar“, eða þrír á móti
einum.
Rökfesta — næmi
Maður sem myndi falla í flokkinn
ÞJÓÐLÍF 49