Fréttatíminn - 28.11.2014, Side 4
www.siggaogtimo.is
Verð frá kr 80.000.-
Vikan sem Var
Metvelta í kvik-
myndagerð
Velta af kvikmyndaframleiðslu á
Íslandi fyrstu átta mánuði ársins
var meiri en nokkru sinni fyrr,
alls 10,5 milljarðar króna. Það er
næstum fimm milljörðum meira
en í fyrra. Stærsta verkefni
ársins var framleiðsla á sjón-
varpsþáttunum Fortitude.
Veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Milt og allhvass sa-vindur.
rigning v-til.
höfuðborgarsvæðið: HVaSSt
SÍðdegiS og rigning.
skil Með rigningu á leið austur
yfir landið.
höfuðborgarsvæðið: rigning
Framan aF degi, en roFar til.
slagveðursrigning upp úr MiðjuM
degi og hlýnandi í bili.
höfuðborgarsvæðið: HVaSSt og
rigning eFtir Hádegi.
Meira verður um sviptingar
lægðirnar sýna sig æ meir í grennd við
landið og spáð er vaxandi sviptingum
og stormasömu veðri næstu daga.
Kuldaskil fara austur yfir landið á
laugardag með mildu miðri og nokk-
urri rigningu. á eftir þeim kólnar
víðast niður fyrir frostmark
aðfararnótt sunnudags.
Einni þessara kröppu
lægða sem skera sig úr,
er spáð við landið á
sunnudag. Fylgjast þarf
vel með, sérstaklega
vestanstreng í kjölfar
miðjunnar.
7
7 6
3
7
6
4 3 5
7
4
2 -2
-3
4
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
e mbætti landlæknis og Lýðheilsustöð voru sam-einuð þann 1. maí 2011. Sameinuð starfsemin, undir heiti landlæknisembættisins, flutti í
gömlu Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg í Reykja-
vík þann 2. ágúst 2011. Fyrir sameininguna var land-
læknir til húsa við Austurströnd 5 á Seltjarnarnesi, í
húsnæði sem ríkið leigði samkvæmt leigusamningi
af Neshúsi ehf. Leigusamningurinn var gerður árið
2002 og gildir til ársins 2027. Töluverð umræða varð
um framtíð hússins þegar landlæknir flutti þaðan út
þar sem samningurinn er óuppsegjanlegur og leigu-
verð á mánuði er um 2 milljónir.
ný starfsemi í húsið á næstu dögum
Í september árið 2011, mánuði eftir að landlæknir
flutti út, framleigði ríkið húsnæðið til Alþingis og
höfðu rannsóknarnefndir Alþingis þar starfsemi sína
þar til í júlí á þessu ári. Húsið hefur því staðið tómt í
fimm mánuði en Þórarinn Gunnarsson, fjármálastjóri
landlæknisembættisins, segir nýja stofnun vera á
leið í húsið á næstu dögum, hann geti þó ekki upplýst
hvaða stofnun það sé.
„Þetta ferli er bara í vinnslu og er búið að vera
það í nokkurn tíma. Það tekur alltaf tíma fyrir ríkis-
stofnanir að flytja. Auk embættis landlæknis eru það
Framkvæmdasýsla ríkisins, fjármálaráðuneytið og
heilbrigðisráðuneytið sem vinna að þessum málum
með okkur.“
blóðugt að láta húsið standa tómt
Sameining embættanna og flutningarnir voru gerðir
með hagræðingu í huga en voru gagnrýndir á sínum
tíma. Ríkisendurskoðun gerði athugasemdir við
breytingarnar og þáverandi velferðarráherra, Guð-
bjartur Hannesson, gagnrýndi óuppsegjanlegan
leigusamninginn sem gerður var við Neshús ehf.
Þórarinn segir það ekki óalgegnt að ríkið geri óupp-
segjanlega leigusamninga. „Ríkið var, og er, alltaf að
flytja stofnanir til og frá, það er eðlilegt. En það sem
gerðist þarna er að það hægðist á öllum framkvæmd-
um vegna hrunsins.“
Nú hefur fyrrum húsnæði landlæknis staðið tómt í
fimm mánuði, sem þýðir að ríkið hefur glatað um tíu
milljónum. „Auðvitað er þetta blóðugt, en sem betur
fer hefur samt húsið nýst mest allan tímann,“ segir
Þórarinn og vísar þá til framleigunnar til Alþingis.
„Það hefur tekið lengri tíma en menn reiknuðu með
að finna framtíðarleigjendur. En þetta er vonandi að
detta inn á næstu dögum.“
halla harðardóttir
halla@frettatiminn.is
258
lög bárust í forkeppni Söngvakeppn-
innar á rÚV og hafa tólf verið valin til
þátttöku. Fyrsta forkeppnin verður 31.
janúar.
Aftur í Biggest Loser
eyþór árni Úlfars son vakti athygli
þegar hann tók þátt í fyrstu seríu af
Biggest loser á Skjá einum. Hann mun
einnig taka þátt í annarri þáttaröðinni
sem fer í loftið á næstunni. eyþór var
249 kíló þegar þættirnir hófust í fyrra
en er nú 211 kíló.
4,5
milljónir króna borgaði FH keppi-
nautum sínum í ÍBV fyrir knattspyrnu-
manninn Þórarin inga Valdimarsson,
samkvæmt
frétt
Vísis.
Hætta með andalifur
Hamborgarafabrikkan hefur ákveð-
ið að taka andalifur af matseðli,
eftir kvörtun á Facebook-síðu
veitingastaðarins.
500
félagslegar íbúðir verða
byggðar og keyptar í Reykjavík
næstu fimm árin. Félagsbú-
staðir ætla að verja 13 og
hálfum milljarði króna til
þess en þetta var sam-
þykkt á fundi borgarráðs
reykjavíkur.
leigusamningur Ónotað húsæði í umsjÓn ríkisins
Tíu milljónir í vaskinn
Fyrrum húsakynni landlæknis við Austurströnd 5, Seltjarnarnesi, hafa staðið tóm síðan í júlí á
þessu ári. ríkið leigir húsnæðið af neshúsi ehf. og leigan er um 2 milljónir á mánuði. Blóðugt en
eðlilegt, segir Þórarinn Gunnarsson, fjármálastjóri Embættis landlæknis. Búið er að finna nýja
starfsemi í húsið en ekki má enn upplýsa hver hún er.
Fyrrum húsnæði landlæknis við Austurströnd 5, Seltjarnarnesi, hefur staðið autt frá því í júlí á þessu ári.
4 fréttir Helgin 28.-30. nóvember 2014