Fréttatíminn - 28.11.2014, Page 6
| REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI |
S V A R T U R F Ö S T U D A G U R
25%BARA Í DA
GAF
ÖL
LU
M V
ÖR
UM
B í l d s h ö f ð a 2 0 • R e y k j a v í k O G
D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i S Í M I 5 5 8 1 1 0 0
BA
RA
Í
DA
G
– F
ÖST
UDAGINN 28. NÓVEM
BEROPIÐ
TIL KLUKKAN
2200
*
* Gildir ekki ofan á önnur tilboð, t.d. ef vara er fyrir á jólatilboði.
S kema var að taka það stóra skref að flytja starfsemi sína úr Háskólanum í Reykjavík
þar sem við höfum verið með að-
stöðu og aðgengi að ómetanlegri
og faglegri ráðgjöf frá stofnun,“
segir Árdís Ármannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Skema. Starfsemi
fyrirtæksins er nýflutt að Síðu-
múla 23 þar sem þann 13. desemb-
er verður formlega opnað fyrsta
tæknisetur sinnar tegundar. Rak-
el Sölvadóttir stofnaði Skema árið
2011 en aðferðafræði fyrirtækisins
við að kenna ungu fólki, allt frá 6
ára aldri, að forrita er studd af rann-
sóknum á sviði sálfræði, kennslu-
fræði og tölvunarfræði. Rakel er bú-
sett í Bandaríkjunum þar sem hún
rekur fyrirtækið reKode Education,
móðurfélag Skema, sem byggir á
sömu aðferðafræði en Rakel kem-
ur til landsins til að vera viðstödd
opnunina.
Nýja húsnæðið er sérstaklega
innréttað fyrir starfsemina og ætl-
unin er að bjóða þar upp á hvetjandi
og uppbyggjandi tækniafdrep fyrir
börn og unglinga á aldrinum 6 til
16 ára. Fyrstu námskeiðin eru að
hefjast í byrjun desember og er þeg-
ar uppbókað á þau en meðal nám-
skeiða sem eru í boði eru grunn-
námskeið í forritun, forritun fyrir
lengra komna, tækjaforritun í Ma-
Menntun Fjöldi nýrra náMSkeiða hjá SkeMa er í þróun
Fyrsta tæknisetur
sinnar tegundar
Nýtt tæknisetur Skema
verður formlega opnað í
Ármúla þann 13. desember.
Tæknisetrið verður það fyrsta
sinnar tegundar en því er
ætlað að vera afdrep fyrir
börn og unglinga á aldrinum
6-16. Í bígerð er að bjóða upp
á fjölskyldunámskeið þannig
að skapast geti vettvangur
fyrir sameiginlegt áhugamál
foreldra og barna heima við.
Húsakynni Skema við Síðumúla 23 verða formlega opnuð í desember. Fyrstu nám-
skeiðin þar hefjast eftir mánaðarmót. Mynd/Skema
Tæknisetrinu er ætlað
að vera afdrep fyrir
börn og unglinga á
aldrinum 6-16 ára og
þar verður ýmislegt
við að vera annað en
forritunarsnámskeið.
Mynd/Skema
Slíkur tækni-
grunnur
verður
grunnkrafa
í nánast
öllum störf-
um innan
skamms.
key Makey og Finch, Unity 3D, vefsmíði og Mi-
necraft auk þess sem í þróun eru fleiri fjölbreytt
námskeið þannig að innan tíðar ættu ansi margir
hópar krakka að finna eitthvað tæknilegt við sitt
hæfi. „Markmiðið er að auka tæknilæsi komandi
kynslóða og tryggja þá tæknimenntun sem nauð-
synleg er til að skilja okkar tæknivædda samfélag.
Slíkur tæknigrunnur verður grunnkrafa í nánast
öllum störfum innan skamms,“ segir Árdís.
Rakel gekk frá upphafi með þá hugmynd í mag-
anum að opna tæknisetur og því er stórum áfanga
nú náð. Skema hefur verið að bjóða upp á forrit-
unarnámskeið í grunnskólum og heldur það starf
áfram þannig að tæknisetrið er í raun hrein við-
bót við starfsemina. „Við höfum verið í samstarfi
við 7-10 skóla á önn og höldum því áfram. Við
viljum að aðgengi að námskeiðum okkar sé greitt
og ákváðum því að færa forritunarkennsluna út í
hverfin líka og binda hana ekki bara við einn stað.
Það sem einnig er jákvætt er að hægt er að nýta
frístundastyrki til að greiða niður hluta af nám-
skeiðsgjaldinu,“ segir Árdís en Skema hefur staðið
fyrir námskeiðum bæði á landsbyggðinni og höfuð-
borgarsvæðinu.
Nú stendur yfir undirbúningur fyrir vorönnina
og segir Árdís í bígerð að bjóða m.a. foreldrum upp
á kynningarnámskeið þannig að þeir geti lært að
forrita með krökkunum sínum. Slík námskeið fyrir
fjölskylduna hafa þegar verið í boði og þá meðal
annars á fjölskyldudögum fyrirtækja. „Mörg for-
rit eru mjög einföld og það þarf bara aðstoð við
fyrstu skrefin. Með því að halda fjölskyldunám-
skeið sjáum við fyrir okkur að þarna geti skapast
vettvangur fyrir sameiginlegt áhugamál foreldra
og barna heima við,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Í kennsluefninu „Örugg saman“ er
meðal annars fjallað um hvað einkennir
heilbrigð og óheilbrigð sambönd, og
hvað telst andlegt, líkamlegt eða kyn-
ferðislegt ofbeldi.
Menntun eMbætti landlækniS geFur út ForvarnareFni gegn oFbeldi í SaMbönduM unglinga
Kennsluefni um ofbeldi í samböndum unglinga
e mbætti landlæknis hefur gefið út kennsluefni fyrir unglinga um heilbrigð samskipti sem
ætlað er sem forvarnarefni gegn and-
legu, líkamlegu og kynferðislegu of-
beldi í samböndum unglinga. Náms-
efnið heitir „Örugg saman“ og ætlað
til kennslu fyrir 9. og 10. bekk grunn-
skóla. Það byggir á reynslumeðferðum
til að fyrirbyggja ofbeldi, auka þekk-
ingu unglinga á því hvað einkennir
heilbrigð og óheilbrigð sambönd,
hvað telst andlegt, líkamlegt og kyn-
ferðislegt ofbeldi og auka líkur á því
að þau sem hafa upplifað ofbeldi leiti
sér hjálpar og að þau hjálpi vini eða
vinkonu sem þau vita af í slíkri stöðu.
„Þetta í fyrsta sinn sem námsefni
af þessu tagi er gefið út á Íslandi til
almennrar kennslu í skólum, og bætir
við mikilvægt efni sem þegar hefur
komið út í tengslum við vitundar-
vakningu gegn andlegu, líkamlegu
og kynferðislegu ofbeldi á vegum vel-
ferðarráðuneytisins, innanríkisráðu-
neytisins og mennta- og menningar-
málaráðuneytisins sem hefur verið í
gangi nú í nokkur ár,“ segir Sigrún
Daníelsdóttir, verkefnisstjóri geð-
ræktar hjá embætti landlæknis.
Hjá embætti landlæknis er vonast
til að námsefnið verði kennt í sem
flestum skólum en formleg kynning á
því fer fram í Smáraskóla á þriðjudag.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
6 fréttir Helgin 28.-30. nóvember 2014