Fréttatíminn - 28.11.2014, Page 8
www.icewear.is
ÞINGHOLTSSTRÆTI, REYKJAVÍK - HAFNARSTRÆTI, AKUREYRI
LOÐSKINN
STÓRLÆKKAÐ VERÐ TIL JÓLA!
SIGYN Trefill úr kanínuskinni
kr. 15.400
SJÖFN Trefill úr kanínuskinni
kr. 15.200
9.540Tilboð9.660Tilboð
U m 70 prósent Íslendinga eru fylgjandi því að læknar fái meiri launahækkanir en aðrar starfsstétt-ir í samfélaginu, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun sem MMR vann fyrir Frétta-
tímann*. Um 87 prósent styðja kjarabaráttu
lækna og 92 prósent hafa áhyggjur af stöðu
heilbrigðiskerfisins.
Fyrsta læknaverkfall sögunnar hófst þann
27. október síðastliðinn og hefur lítið þokast í
samningaviðræðum, að sögn deilenda. Læknar
leggja áherslu á að fá leiðréttingu á launum
sínum sem þeir segja að hafa dregist aftur úr
launum annarra stétta undanfarin ár. Læknar
benda jafnframt á að kjarabarátta þeirra snúist
ekki aðeins um laun heldur einnig um eðlilega
endurnýjun í læknastéttinni því læknar sem
mennta sig erlendis snúa síður aftur heim að
námi loknu nú en áður.
Hringrás launahækkana
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur
gefið það upp að kröfur lækna hljóði upp á
að minnsta kosti þrjátíu prósenta hækkun
og að sett yrði af stað fyrirsjáanleg hringrás
launahækkana ef gengið yrði að þeim. Hann
hefur einnig sagt opinberlega að hann telji
enga almenna samstöðu um launahækkun
tiltekinnar stéttar umfram aðrar án þess að
einhverjar breytingar séu gerðar á starfsum-
hverfi og launauppbyggingu. Niðurstaða
könnunar Fréttatímans sýnir hins vegar, þvert
ofan í þessar fullyrðingar, að almenn samstaða
er meðal landsmanna að hækka laun lækna
umfram laun annarra stétta, þar sem sjö af
hverjum tíu aðspurðum eru hlynntir því.
Ekki munur eftir tekjuhópum
Þegar rýnt er nánar í svör við spurningunni:
„Hversu fylgjandi eða andvígur ert þú því að
læknar fái meiri launahækkanir en aðrir í sam-
félaginu?“ kemur í ljós að ekki er mikill munur á
svörum eftir tekjuhópum. Mestur stuðningur er
meðal tveggja tekjulægstu hópanna og hinum
hæsta, hjá fólki með heimilistekjur undir 250
þúsund og á bilinu 250-399 þúsund og svo hjá
fólki með heimilistekjur
yfir milljón. Hlutfallslega
minnsti stuðningurinn er
meðal fólks með tekjur á
bilinu 400-599 þúsund, þar
sem stuðningurinn er samt
sem áður rúm 65 prósent.
Ef svörin eru skoðuð
eftir störfum kemur í ljós
að mestur stuðningur er
meðal námsmanna, bænda
og sjómanna. Minnsti
stuðningurinn er meðal iðn-
aðarmanna og sérhæfðra í
iðnaði, þar sem 43 prósent
eru fylgjandi því að læknar
fái meiri launahækkun
en aðrar stéttir. Var það
eina starfsgreinin þar sem
fleiri voru andsnúnir því en
fylgjandi.
Áhugavert er að einn
af hverjum tíu þeirra sem
segjast ekki styðja kjarabar-
áttu lækna (sem eru sam-
tals 13,5% aðspurðra) eru
samt sem áður fylgjandi
því að læknar fái meiri
launahækkanir en aðrar
stéttir. Á móti kemur að alls
eru 15,4% þeirra sem styðja
kjarabaráttu lækna andvíg
því að þeir fái meiri launa-
hækkanir en aðrar stéttir.
Niðurstöðurnar skiljan-
legar
Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra segir
niðurstöðurnar skiljan-
legar. „Þær staðfesta í raun
það sem ég hef ítrekað
haldið fram að heilbrigðis-
kerfið okkar sé það þjón-
ustukerfi sem landsmenn
hafi kosið til þess að setja
upp til þess að annast um
veika og sjúka. Í það smáu
þjóðfélagi sem okkar er
þetta gríðarlega mikilvægt
verkefni. Við tengjumst öll
þessu þjónustukerfi með
einum eða öðrum hætti allt
okkar líf, flestir fæðast inn
í það og flest deyjum við í
því,“ segir Kristján.
„Svörin við fyrstu tveim-
ur spurningunum, sem
snúa að kjarabaráttu lækna,
koma mér heldur ekki á
óvart og eru í raun vitnis-
burður um það ágæta og
frábæra starf sem íslenskir
læknar vinna í okkar góða
samfélagi. Við búum við þá
gæfu að íslenskir læknar
eru afar vel hæft fólk til
þessara starfa og geta í
raun borið sig í hæfni sam-
an við kollega sína í hvaða
landi sem er. Það eru í mín-
um huga alveg gríðarleg
verðmæti í þjóðfélagi sem
telur ekki nema 328 þúsund
manns,“ segir hann.
„Svarið við spurningu
tvö [hvort fólk sé fylgjandi
eða andvígt því að læknar
fái meiri launahækkun en
aðrar stéttir í samfélaginu]
er í raun sláandi, sérstak-
lega miðað við það mat sem
forseti ASÍ hefur gefið út
um þessi mál. Þetta er mjög
merkilegt,“ segir Kristján
jafnframt.
„Ég bind ákveðnar vonir
við að viðræður samninga-
nefndanna séu komnar í
betri gang en þær voru og
vonast svo sannarlega að
menn nái saman sem fyrst.
Til þess að svo megi verða
þurfa báðir aðilar að slá
af sínum ítrustu kröfum,
leita málamiðlana og sætta
sjónarmið,“ segir hann.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Sjö af hverjum tíu Íslendingum eru
hlynntir því að læknar fái kjarabætur
umfram aðrar stéttir í samfélaginu,
samkvæmt nýrri könnun sem MMR vann
fyrir Fréttatímann. Ráðamenn hafa sagt
að eina lausnin í læknadeilunni sé að
sátt náist í samfélaginu um að læknar
fái meiri launahækkanir en aðrar stéttir.
Þjóðin hefur miklar áhyggjur af stöðu
heilbrigðiskerfisins og styður lækna í
sinni baráttu.
Þjóðarsátt um launahækkun
lækna umfram aðra?
* MMR gerði könnunina
að beiðni Frétta-
tímans. Um er að
ræða netkönnun sem
gerð var á dögunum
21.-25. nóvember og
var úrtakið Íslendingar
á aldrinum 18 ára og
eldri valdir handahófs-
kennt úr hópi álitsgjafa
MMR. Svarfjöldi var
1042. Niðurstöður
könnunarinnar eru
vigtaðar með tilliti til
kyns, aldurs, búsetu og
menntunar í þýði.
Mjög
miklar
áhyggjur
Frekar
miklar
áhyggjur
Frekar litlar
áhyggjur
Mjög
litlar
áhyggjur
Spurt var
Á heildina
litið, hversu
miklar eða
litlar áhyggjur
hefur þú af
stöðu heil-
brigðiskerfis-
ins á Íslandi?
Ekki var marktækur munur á svörum eftir aldri, menntun
eða heimilistekjum. Þjónustu- og afgreiðslufólk og verka-
fólk og ófaglærðir voru með mestu áhyggjurnar, í kringum
96% sögðust hafa mjög miklar eða frekar miklar áhyggjur.
Hlutfallslega minnstu áhyggjurnar höfðu iðnaðarmenn
þótt 82% þeirra segðust hafa mjög miklar eða frekar
miklar áhyggjur af stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi.
57,7% 34,5%
6,9%
0,8%
Nokkur munur var á afstöðu eftir kynjum. 78,2% kvenna
sögðust mjög eða frekar fylgjandi en 61,7% karla. Fleiri
höfuðborgarbúar eru því fylgjandi en fólk á lands-
byggðinni, 73% á móti 66%. Ekki er marktækur munur
eftir menntun og lítill munur er á svörum eftir tekjuhópum.
Mestur stuðningur er meðal tveggja tekjulægstu hópanna
og hinum hæsta, hjá fólki með heimilistekjur undir 250
þúsund og á bilinu 250-399 þúsund og svo hjá fólki með
heimilistekjur yfir milljón. Hlutfallslega minnsti stuðning-
urinn er meðal fólks með tekjur á bilinu 400-599 þúsund,
þar sem stuðningurinn er samt sem áður rúm 65 prósent.
Spurt var
Hversu fylgjandi eða
andvíg(ur) ert þú því
að læknar fái meiri
launahækkanir en
aðrar starfsstéttir
í samfélaginu? Alls
sögðust 69,8% vera
mjög eða frekar
fylgjandi því.
22%
46,9%
21,7%
8,5%
Mjög
fylgjandi
Frekar
fylgjandi
Frekar
andvíg(ur)
Mjög
andvíg(ur)
Framhald á næstu opnu
8 fréttir Helgin 28.-30. nóvember 2014