Fréttatíminn - 28.11.2014, Blaðsíða 10
Það sem mér kemur fyrst í hug
varðandi þessar niðurstöður er að
þær sýna allar að almenningur læt-
ur sig heilbrigðiskerfið varða. Hann
hefur áhyggjur af því og er áfram
um að heilbrigðiskerfið verði sett í
forgang og fái stuðning.
Heilbrigðiskerfið hefur náð frá-
bærum árangri en það hefur hrikt
í því að undanförnu og hefur það
komið skýrt í ljós og fólk áttað sig
á því að innviðirnir eru farnir að
láta á sjá. Niðurstöðurnar úr þess-
ari könnun endurspegla það. Hins
vegar er núna á þessu ári og því
næsta verið að forgangsraða fjár-
munum inn í heilbrigðiskerfið, bæði
til lækningatækja, til þess að byggja
nýjar byggingar á Hringbraut og til
annarra þátta í heilbrigðiskerfinu,
svo sem til rekstrar. Ný fjárlög gefa
mikilvæga viðspyrnu. Hins vegar
hefur fólk vissulega áhyggjur af
kjaramálum og því hvernig búið er
kjaralega að heilbrigðisstarfsfólki,
það sést á niðurstöðunum. Það eru
þrír þættir sem erfitt er að slíta í
sundur, kjaramál, rekstrarfé og upp-
bygging innviða. Það er frábært að
fá mikið fé áfram í uppbyggingu
inniviða og endurnýjun lækninga-
tækja en nú fáum við einnig aukið
fé til rekstrar, nú bætist við millj-
arður sem er mjög þýðingarmikið.
Við þurfum eftir sem áður að sýna
aðhald og eigum eftir að skoða það
hvað þessi milljarður dugar til að
gera.
Nýr spítali 2020
Mestu tíðindin eru hins vegar þau
að á fjáraukalögum er gert ráð fyrir
tæpum 900 milljörðum í nýbygging-
ar við Hringbraut. Það er ofboðs-
lega mikilvægt að það verkefni
fer nú aftur á fullan skrið og sam-
kvæmt núverandi plönum verði ný-
byggingar við spítalann reistar árið
2020. Það er gríðarlegt öryggis- og
þjónustumál en það blæs líka heil-
brigðisstarfsfólki von í brjóst. Það
er erfitt að undirstrika nógsamlega
mikilvægi þessa þáttar.
Á heildina litið er mikilvægt að
haldið verði áfram á þeirri braut
sem mörkuð var á þessu ári, þar
sem meira fé hefur verið veitt til
sérhæfðrar sjúkrahúsþjónustu.
Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ
Það kemur ekki á óvart að fólk
hafi miklar áhyggjur af heil-
brigðiskerfinu. Heilbrigðis-
kerfið er í vanda og margir
finna það á eigin skinni. Varð-
andi spurninguna um hvort
fólk sé hlynnt því að læknar
fái meiri hækkun en aðrir, ég
held að það hefði frekar átt
að spyrja fólk hvort það sé
tilbúið að falla frá lögbundnum
launahækkunum sem þarf að
gerast ef hækka á laun lækna
um þrjátíu eða fimmtíu prósent án þess að verð-
bólga fari af stað. Seðlabankinn hefur gefið það út
að það sé í lagi að hækka laun lækna umfram laun
annarra stétta ef heildarhækkun launa fari ekki
yfir 3,5%. Heildarhækkunin núna er 6,8% þannig að
heildarhækkun upp á 3,5% gæti einungis gengið upp
ef aðrar stéttir taka á sig launalækkun, sem ég sé
ekki gerast.
Síðan þarf að skoða hvort það verði sátt innan
spítalans fái læknar launahækkun umfram aðrar
stéttir.
Hér var gerð þjóðarsátt um leiðréttingu launa
kennara. Læknar styðja hana ekki með þessari
framgöngu. Verður það þá ekki þannig að næsti
hópur telur að gera eigi þjóðarsátt um hans rétt-
mætu kröfur? Meirihluti vinnumarkaðarins hefur
einungis fengið almennar launahækkanir undan-
farin ár og ekkert launaskrið hefur orðið. Hefur
hann þá ekki dregist aftur úr einhverjum hópi í
launahækkunum?
Þorbjörn Jónsson,
formaður Læknafélags Íslands
Niðurstöður könnunarinnar
eru í samræmi við þá tilfinn-
ingu sem við höfum haft. Við
höfum fundið mikinn stuðn-
ing við kjarabaráttu okkar.
Könnunin sýnir einnig mikinn
stuðning við þá kröfu okkar að
læknar fái meiri launahækkun
en aðrar stéttir en við teljum
það nauðsynlegt til að örva
nýliðun og sporna gegn brott-
falli. Í þessu tilviki er einfald-
lega ekki hægt að halda sig við
lágmarkshækkanir, þær duga ekki.
Þessi stuðningur er mjög mikill og styður það
áhersluatriði okkar að læknar þurfi talsverðar launa-
hækkanir til að sporna megi gegn falli heilbrigðiskerf-
isins. Þetta sýnir það jafnframt að almenningi þætti
eðlilegt að fara slíka leið þótt forystumenn einstakra
launþegasamtaka hafi ekki gefið færi á slíku. Ég held
að fólk skilji almennt í hve djúpum vanda við erum með
heilbrigðiskerfið og að úr honum verði ekki leyst öðru-
vísi en með auknu fjárframlagi frá ríkinu. Hækkun
launa lækna er klárlega skjótvirkasta leiðin til þess að
vinna gegn þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir.
Mönnunarvandinn er stærsti vandinn en svo er auð-
vitað líka víða húsnæðisvandi, líkt og á Landspítal-
anum, auk þess sem skortur er á endurnýjun stórra og
smárra tækja. Þetta eru ekki bara dýrustu og flóknustu
tækin sem þarf að endurnýja, heldur líka einfaldari
búnað. Allt þarf þetta að vera í lagi svo kerfið virki eins
og við viljum að það virki. Við viljum standast saman-
burðinn við Skandinavíu.
Bjarni Benedikts-
son fjármálaráðherra
í viðtali við RÚV þann
19. nóvember
„Ég held að það sé
engin almenn sam-
staða um einhverja
eina tiltekna stétt
langt út úr öllu korti
án þess að það séu
þá gerðar einhverjar
breytingar á bæði
starfsumhverfi og
launauppbyggingu.“
Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ í viðtali í
Morgunblaðinu 19.
nóvember :
„Ég sé ekki að það
sé hægt að búa til
þjóðarsátt um að einn
fái meira en annar.
Það væri hægt að
gera það fyrir fátækt
fólk, ég held að það
sé skilningur á því
að samfélagið eigi
að hjálpa þeim sem
minna mega sín. Ég
verð að viðurkenna
að ég hef aldrei litið á
lækna í þeim hópi.“
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
forsætisráðherra á
Alþingi 17. nóvember
„Við hljótum að spyrja
hvort hægt sé að
mynda einhvers konar
almenna sátt og þá
má meðal annars
spyrja stjórnarand-
stöðuna en ekki hvað
síst aðila vinnumark-
aðarins hvort menn
líti þannig á að staðan
réttlæti breytingar á
kjörum lækna, bætur
umfram það sem
hægt væri að semja
um í fyrsta áfanga
annars staðar.”
Páll Matthíasson, forstjóri landsPítalans:
Almenningur vill að heilbrigð-
iskerfið verði sett í forgang
Spurt var
Styður þú kjarabaráttu lækna?
13,5%
NEI
86,5%
JÁ
Fleiri konur en karlar styðja kjarabar-
áttu lækna, 92,7% kvenna og 80,6%
karla. Meiri stuðningur er hjá fólki
undir 50 ára, um 89% en 81% hjá fólki
yfir fimmtugt. Ekki var marktækur
munur eftir búsetu, menntun, starfi
eða heimilistekjum.
Ummæli um stöðuna
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins
Gefðu töfrandi stundir í jólapakkann. Kortið
er í fallegum umbúðum, gildir á sýningu
að eigin vali og rennur aldrei út.
10 fréttir Helgin 28.-30. nóvember 2014
www.ricedream.eu
Njóttu góðrar heilsu