Fréttatíminn - 28.11.2014, Blaðsíða 32
þessum tíma. Búsetan var ýmist í
kjallarakompu í Harlem, í frum-
kvöðlahúsi í Murray Hill þar sem
einn herbergisfélaginn hraut og
annar fór í sturtu klukkan 3 á næt-
urnar og síðustu vikurnar vorum
við fjórar í einu herbergi með
tveimur kojum.
Næstu fjórar vikurnar þar á eftir
voru ekki síður annasamar, enn
héldu mentorar áfram að veita hin
ýmsu ráð en Rakel segir það hafa
verið hluta af lærdómnum að þó
ákveðinn mentor sé gríðarlega
klár og vel að sér þá þýði það ekki
að hann sé alvitur um það sem
er fyrirtækinu þínu fyrir bestu.
Þrátt fyrir að reKode væri minnsta
teymið, en mest voru þær fjórar
og stundum bara Rakel, þurfti það
að skila jafn miklu af sér og halda
öllum boltum á lofti. Hin teymin
höfðu um borð fimm til tólf manns.
Sendi þeim alvöru póstkort
Fjarvistirnar frá fjölskyldunni
reyndu á en það var lán í óláni að
prógrammið hélt Rakel svo upp-
tekinni að það var varla tími til að
sakna. „Ég var í vinnunni nánast
allan sólarhringinn en reyndi að
sofa smá á milli. Ég nýtti tæknina
til að tala við fjölskylduna og talaði
við hana í gegn um Facetime og
Skype.“ Rakel fékk góð ráð frá
frumkvöðulinum Brad Feld, einum
af stofnendum TechStars, sem hún
heyrði fyrst af eftir að hann kom
til Íslands til að taka þátt í StartUp
Iceland. „Brad Feld sagði við mig
að samskipti í gegnum net og síma
væri ekki nóg heldur væri gott að
hafa eitthvað áþreifanlegra. Ég
ákvað því að senda krökkunum
póstkort nánast daglega þannig að
flesta morgna gátu þau sótt póst-
kort frá mér í póstkassann. Ég tók
myndir á símann minn og nýtti
snilldar app þar sem ég gat búið til
póstkort úr myndinni.
Ég sendi líka stundum
póstkort með gamalli
mynd af okkur saman
og alltaf skrifaði ég eitt-
hvað smá frá deginum
mínum og sameiginleg-
um upplifunum okkar.
Sonur minn límdi svo
öll þessi póstkort fyrir
ofan rúmið sitt þannig
að hann var á endanum
kominn með dágott
safn.“ Hún hitti börnin
sín líka stuttlega á
þessum þremur mánuðum þegar
skólinn hófst, á fótboltaferðalagi
sonarins í San Diego og þegar
dóttir hennar var á ferðalagi vegna
fyrirlestra sem hún flutti í Flórída.
„Hún ferðast bara sjálf og er orðin
nokkuð skóluð í því,“ segir Rakel
um dótturina.
Fyrstu forritunarnámskeiðin
fyrir börn á vegum reKode hófust
í þessum mánuði og hafa viðtök-
urnar verið afar góðar. Unnið er út
frá íslenska módelinu og eru nám-
skeiðin aldursskipt þannig að 6-10
ára börn eru saman á námskeiði og
svo 10-14 ára. „Við höfum fundið
fyrir miklu þakklæti, sérstaklega
frá foreldrum barna sem hafa ekki
fundið sig í öðru sem er í boði fyrir
börn.“
Tekur ekki karlmann með á
fundi
Það vakti nokkra athygli í við-
skiptahraðlinum að í teymi reKode
voru aðeins konur og var það eina
slíka teymið. Hins vegar voru fjög-
ur fyrirtæki stofnuð af konum og
er það hæsta hlutfallið í Techstars
frá upphafi. Miðað við árangur
Rakelar sem frumkvöðuls myndu
kannski einhverjir telja hana alltaf
hafa verið sérstakan femínista en
það er alls ekki svo. „Það hefur
verið gert grín að því hvað er ég
hef verið mikil karlremba. Fyrst
um sinn fussaði ég yfir sérstökum
kvennasamfélögum og fannst
alveg fáránlegt að það væru til
sérstakir kvennastyrkir og sjóðir.
Ég hef alltaf verið jafn vel, eða
betur launuð en karlkyns sam-
starfsmenn mínir og gengið í öll
störf sem ég hef haft áhuga á. Mér
fannst lengi vel að konur ættu bara
að sækja það sem þær vildu og að
þær þyrftu bara að ganga inn í öll
störf og þannig myndu þær komast
áfram,“ segir Rakel
sem hefur aldeilis
skipt um skoðun.
„Í Bandaríkjunum
upplifði ég það í fyrsta
skipti að það er öðru-
vísi að vera með vag-
ínu. Ég hef skilið sam-
hengið betur og ber
nú í brjósti endalaust
þakklæti til þeirra
sem hafa komið jafn-
réttismálum á Íslandi á
þann stað sem þau eru
í dag og er í dag stoltur
félagi FKA þar sem ég fæ stuðning
frá öflugu tengslaneti og get miðl-
að af minni reynslu. Baráttunni er
samt alls ekki lokið en Ísland er
þó komið mun lengra á veg heldur
en til dæmis Bandaríkin.“ Rakel
segist hafa lært af reynslunni eftir
að hún flutti út þar sem hún tekur
aldrei karlkyns samstarfsmann
með sér á fundi eða fyrirlestra
heldur aðeins konur. „Ef ég er á
fundi með karlmanni og varpa
fram spurningu til hans eru miklar
líkur á að hann horfi á karlkyns
samstarfsfélaga minn þegar hann
svarar heldur en mig. Stundum
átta karlmenn sig ekki á þessu en
stundum er þetta algjörlega með-
vitað.“
Hún tekur dæmi af einum men-
tornum í Techstars sem hún hefur
miklar mætur á og segir hann hafa
komið að máli við sig eftir að hún
greindi frá því að hún væri undr-
andi á því hversu jafnréttisbar-
áttan væri skammt á veg komin.
„Hann kom að máli við mig og
sagði að ef það væri eitthvað sem
ég sæi í hans fari og framkomu
sem ég teldi brjóta á rétti mínum
sem kona þá ætti ég að láta hann
vita því hann vildi ekki vera slíkur
maður.“
Rakel segist nú hætt að vera
karlremba og á góðri leið með að
verða rauðsokka. Hún hlaut hvatn-
ingarverðlaun FKA í ársbyrjun og
fyrir hálfu öðru ári valdi tímaritið
Forbes SKEMA á lista yfir þau tíu
fyrirtæki sem áhugaverðast verður
að fylgjast með og líklegt talið að
muni slá í gegn hjá neytendum.
Rakel virðist hafa tekið hárréttar
ákvarðanir á hárréttum tíma og
ævintýrið er rétt að byrja.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Hvað er
Viðskiptahraðall
Hlutverk viðskipta-
hraðals (e. business
accelerator) er að
hraða ferlinu sem
fyrirtæki fara í
gegn um frá því
hugmynd fæðist
og þar til viðskipti
fara að blómstra.
StartUp Reykjavík
og StartUp Iceland
eru dæmi um við-
skiptahraðla.
?
Allir fram-
kvæmda-
stjórarnir og
stjórnendur
Kaplan Tech-
stars saman
á Demo Day
þegar við-
skiptahrað-
linum lauk og
hvert teymi
kynnti sig fyrir
fjárfestum.
Það var gjarnan
þröngt á þingi þegar
Kaplan Techstars stóð
yfir en teymi reKode
lét það ekki á sig fá og
smelltu þessari mynd
af til að reyna að
fanga stemninguna.
Niðurtalning.
Í Bandaríkjunum upplifði
ég það í fyrsta skipti að það
er öðruvísi að vera með
vagínu.
KLAPPARSTÍGUR 40 · 101 REYKJAVÍK · SÍMI 571 4010
nndu okkur á facebook
32 viðtal Helgin 28.-30. nóvember 2014