Fréttatíminn - 28.11.2014, Síða 52
52 ferðalög Helgin 28.-30. nóvember 2014
sumarfrí Úrval fyrir sólarþyrsta næsta sumar
þ að flugu ríflega 117 þúsund Íslendingar til útlanda í sumar, samkvæmt talningu
Ferðamálastofu og fjölgaði ferðum
landans um tíund frá sama tíma árið
2013. Hversu stór hluti þessara far-
þega var á leið til suðurhluta Evr-
ópu er ekki vitað en í ljósi þess hver
framboð af sólarlandaferðum er
mikið má gera ráð fyrir að tugir þús-
unda Íslendinga heimsæki strendur
Miðjarðarhafsins á sumrin.
Þrjár ferðir í viku
Forsvarsmenn ferðaskrifstof-
anna hafa sagt að síðasta sumar
hafi gengið vel og það ríkir greini-
lega bjartsýni á að næsta ár verði
ennþá betra. Sem dæmi um það ætla
Heimsferðir, Úrval-Útsýn og Vita
allar bjóða upp á reglulegar ferðir
til Mallorca næsta sumar. Oft sam-
einast þessar stærstu ferðaskrif-
stofur landsins um leiguflug til sól-
arstranda en svo verður ekki með
ferðirnar til Mallorca. Það verður
því flogið þrisvar í viku frá Keflavík
til Palma næsta sumar en síðustu
ár hefur framboð á ferðum til sól-
areyjunnar verið mjög takmarkað.
Það stefnir líka í að íslenskum ferða-
mönnum á Tenerife yfir sumartím-
ann fjölgi umtalsvert því frá og með
vorinu verða ferðir þangað þrefalt
tíðari en síðasta sumar.
Fleiri ítalskar borgir
Ítalir hafa ekki farið sömu leið
í uppbyggingu ferðaþjónustunnar
og til dæmis Spánverjar og Grikkir
hafa gert. Ítölsku strandhótelin eru
til að mynda oft minni og ekki allt-
af með sundlaugar. Þeir sem halda
til Ítalíuskaga yfir sumarmánuðina
eru því ekki alltaf á leið í klassíska
sólarlandaferð. Undanfarin sumur
hefur hins vegar aðeins verið hægt
að fljúga beint héðan til Mílanó en
á næsta ári bætist við áætlunarflug
Primera Air til Bologna og WOW
air og spænska flugfélagið Vueling
munu fljúga til Rómar.
Tyrkland og Grikkland inni
Á meðan Spánn hefur verið fast-
ur liður á sumardagskrá ferðaskrif-
stofanna í áratugi þá hafa önnur
lönd í suðurhluta Evrópu dottið
inn og út af lista. Í hittifyrra komst
gríska eyjan Krít á kortið á ný og í
fyrra var töluvert úrval af ferðum
til Tyrklands. Ferðunum fjölgar til
tyrkneskra sólarstranda á næsta ári
og mun ferðaskrifstofan Nazar til
að mynda bjóða upp á flug þangað
frá Akureyri í haust. Einnig verður
hægt að fljúga beint til suðurhluta
Portúgals með Vita.
Það er ekki útilokað að fleiri borg-
ir og jafnvel lönd eigi eftir að bæt-
ast við úrvalið á næstunni. Þeir sem
ætla ekki að treysta á gott veður hér
heima hafa því úr nægum ferðum að
velja til suðurhluta Evrópu næsta
sumar.
Miklu fleiri sólarlandaferðir
Flugfélögin og ferðaskrifstofurnar eru byrjaðar að auglýsa sumarferðirnar og af úrvalinu að dæma
þá er gert ráð fyrir áframhaldandi ferðagleði Íslendinga.
v Höfundar kynna bækur sínar, sýnishorn
úr hannyrðabókum, boðið upp á smakk
úr matreiðslubókum.
v Lesið upp úr barnabókum eftir að
tendrað hefur verið á jólatrénu.
v 20% afsláttur í Eymundson, Smáralind
af bókunum sem kynntar verða.
v Sjá dagskrá www.salka.is
Sölkudagur
í Smáralind
v v v
laugardaginn 29. nóvember
kl. 12.30 - 16.00
Bókaútgáfan Salka
í gryfjunni, neðri hæð, við Debenhams
Komdu í Smáralind og kynntu þér frábærar bækur frá Sölku salka.is • Skipholti 50c • 105 Reykjavík
WOW air og Vueling fljúga til höfuðborgar Ítalíu næsta sumar. Aldrei áður hefur
íslenskum túristum staðið til boða áætlunarflug frá Keflavík til Rómar.
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Íslendingar ferðast ekki aðeins til
Kanaríeyja yfir veturinn því á sumrin er
flogið til Tenerife og í boði verða þrjár
ferðir í viku frá og með vorinu.