Fréttatíminn - 28.11.2014, Page 62
„Það má líta á fallegar verslanir að einhverju leyti líkt og safn þar sem má snerta og máta, og hugsanlega kaupa ef manni líkar
vel við,“ segir Sindri Snær Jensson, annar eigandi herrafataverslunarinnar Húrra Reykjavík.
Jólin nálgast og tíminn flýgur
frá okkur á aðventunni.
Jólaföt eru ómissandi hluti
af jólaundirbúningnum – það
er væntanlega enginn sem
vill enda á nærfötunum
eða sokkum einum fata á
aðfangadag eftir að hafa
uppgötvað að í öllum jóla-
æsingnum gleymdist að
kaupa sjálf jólafötin. Sindri
Snær Jensson, eigandi
herrafataverslunarinnar Húrra
Reykjavík, er svo sannarlega
ekki einn af þeim og hér
segir hann frá því helsta sem
mun einkenna jólatískuna hjá
karlpeningnum.
KarmannatísKa Jólafötin
H erratískan tekur nú ekki miklum stakkaskiptum á milli jóla en menn vilja vera
fínir yfir hátíðirnir. Ég persónulega
sé ekki þörfina á því að setja upp háls-
tau því það getur verið þvingandi og
yfir jólin vill manni líða vel. Þess í stað
mæli ég með fallegri ljósri skyrtu og
jafnvel vandaðri ullarpeysu yfir og
þá frekar með O-hálsmáli en V-Háls-
máli. Gollan, eða jakkapeysan eins
og svo margir kalla hana, er á undan-
haldi eftir nokkur góð ár í tísku.“
Erum stödd í miðri sportbylgju
Aðspurður hvort eitthvert „trend“
verði ráðandi þessi jól segir Sindri:
„Ef við tölum almennt þá erum við
stödd í miðri sportbylgju sem má telja
bæði jákvætt og neikvætt. Strigaskór
eru orðnir meiri heilsársvara og fara
þeir oftast vel með fæturna en aftur
á móti eru margir líka farnir að líta
á jogging buxur sem valkost til dag-
legs brúks sem ég tel ekki smekklegt.
Þegar kemur að skyrtum er mikið um
oxford skyrtur með „button-down“
kraga og jafnvel slíkar skyrtur í þykk-
ari efnum. Köflóttar skyrtur eru einn-
ig með endurkomu þessa dagana eftir
smá lægð undanfarin ár.“
Nýstraujuð hvít skyrta
Fyrir þá sem vilja fara öruggu leið-
ina þá er hvít skyrta alltaf klass-
ísk. „Það er ekkert betra en að vera
hreinn og fínn, nýklipptur og rakað-
ur fyrir jólin og klæða sig í nýstrauj-
aða hvíta skyrtu,“ segir Sindri og
bætir við: „Þá ætla ég að vera smá
leiðinlegur og lýsa andúð minni á
öllum þessum ljótu jólapeysum sem
fólk virðist leyfa sér að klæðast á al-
mannafæri. Þetta er ágætis húmor
og allt það en 95% af þessum peys-
um er hrein og bein sjónmengun.“
Sindri segir þó að fólk ætti almennt
ekkert að vera að stressa sig á jóla-
dressinu. „Þetta snýst allt um að
líða vel og njóta jólanna.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Jólin verða smekkleg
og þægileg hjá
karlmönnum í ár
62 jólaföt Helgin 28.-30. nóvember 2014
Opnunartími: Virka daga kl. 11-18 Laugard. kl. 10-16
Laugavegi 178 l S. 555 1516 l Kíktu á síðuna okkar
Skyrtur
Verð 8.900 kr.
2 litir: svart og
hvítt.
Stærð 34 - 52.
Verð 11.900 kr.
Síð skyrta.
1 litur: svart.
Stærð 34 - 52..
"Kryddaðu fataskápinn”
RISA
ÍÞRÓTTA- OG LEIKFANGAMARKAÐUR
Í Laugardagshöll dagana 21-30. nóvember.
Stærsti markaðurinn hingað til.
Komdu og gerðu frábær kaup fyrir
alla fjölskylduna
Erum búin að fylla höllina aftur með
íþróttavörum og leikföngum og verðum með
enn meira úrval og betri verð. Opið
föstudag frá kl. 14:00-20:00 og
laugardag/sunnudag frá kl. 12:00-18:00
Frábær verð á íþróttavörum
Allt að 60% afsláttur af leikföngum